Skessuhorn - 13.09.2017, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 15
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Snæfellsbær
Starf markaðs- og kynningarfulltrúa
hjá Snæfellsbæ er laust til umsóknar
Snæfellsbær óskar eftir að ráða hæfileikaríkan og áhugasaman einstakling í starf markaðs- og kynningarfulltrúa.
Starfið er margþætt og krefst góðrar færni á ýmsum sviðum.
Hlutverk og ábyrgðarsvið:
Um er að ræða umsjón með markaðs-, upplýsinga- og kynningarmálum í Snæfellsbæ, m.a. umsjón með vef Snæfells-
bæjar, samfélagsmiðlum tengdum Snæfellsbæ, auglýsingagerð, sérverkefnum, samantektum og skýrslugerð. Fulltrúinn
þarf að vera leiðandi í sínu starfi og hugmyndaríkur þegar kemur að því vinna við styrkumsóknir og skýrslugerð vegna
markaðs-, menningar- og ferðamálatengdra verkefna af hálfu Snæfellsbæjar.
Fulltrúinn aðstoðar starfsmenn/nefndir Snæfellsbæjar, einstaklinga og félagasamtök, í samráði við bæjarstjóra og bæjar-
ritara, við skipulagningu og utanumhald viðburða í Snæfellsbæ.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg en þó ekki skilyrði.
Reynsla af umsjón og uppbyggingu vefsvæða er kostur og jafnframt menntun eða reynsla á sviði framsetningar
kynningarefnis. Gott vald á ritun íslensku og ensku er skilyrði, jafnframt þekking á ritvinnslu (excel, word, powerpoint)
og góður hæfileika til að tjá sig í rituðu máli.
Stafið krefst frumkvæðis og metnaðar. Umsækjandi þarf jafnframt að vera sjálfstæður í vinnubrögðum og hafa góða
skipulagshæfileika ásamt góðri hæfni í mannlegum samskiptum.
Annað:
Um er að ræða fullt starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga og
SAMFLOTs bæjarstarfsmannafélaga.
Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf eigi síðar en 1. nóvember 2017.
Umsóknarfrestur er til og með 22. september nk.
Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn til Lilju Ólafardóttur, bæjarritara, á netfangið lilja@snb.is, eða til
Kristins Jónassonar, bæjarstjóra, á netfangið kristinn@snb.is. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar
sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni til starfsins út frá ofangreindum
hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina a.m.k. 2 umsagnaraðila í umsókn sinni.
Öllum umsóknum verður svarað.
Hausta tekur og við förum að huga
að því að geyma mat til vetrarins
Skyrmysa er tilvalin til að sýra
slátrið og ýmsan annan mat.
Fáanleg í 2,5, 5 og 10 ltr brúsum
Hægt að panta í Ljómalind í síma 437 1400 eða
á Erpsstöðum í síma 868 0357
Einnig er hægt að panta á netfanginu erpur@simnet.is
www.erpsstadir.is Rjómabúið á facebook.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Snæ-
fellsbæjar var haldinn fyrir rúmum
23 árum síðan, þriðjudaginn 14.
júní árið 1994. Gunnar Már Krist-
ófersson setti þann fund, en hann
var aldursforseti þeirra níu bæjar-
fulltrúa sem tóku sæti í bæjarstjórn
nýsameinaðs sveitarfélags. Fyrsta
mál á dagskrá var að kjósa Pál Ing-
ólfsson forseta bæjarstjórnar.
Síðastliðinn fimmtudag, 7. sept-
ember, fundaði bæjarstjórn Snæ-
fellsbæjar 300. sinni. Fundað var
í Ráðhúsi Snæfellsbæjar á Hellis-
sandi og fundarstjórn var í höndum
Björns H. Hilmarssonar, forseta
bæjarstjórnar.
Í tilefni af þessum tímamótum
smellti Kristinn Jónasson bæjar-
stjóri mynd af viðstöddum fund-
armönnum. Var hún birt í gær á
Facebook-síðu Snæfellsbæjar. Á
myndinni eru frá vinstri: Kristján
Þórðarson, Svandís Jóna Sigurð-
ardóttir, Fríða Sveinsdóttir, Lilja
Ólafsdóttir bæjarritari, Björn H
Hilmarsson, Rögnvaldur Ólafs-
son, Júníana Björg Óttarsdóttir og
Kristjana Hermannsdóttir.
kgk
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
hefur fundað 300 sinnum
Keppt hefur verið í Ryderkeppni
milli Golfklúbbsins Vestarr og
Golfklúbbsins Mostra síðan árið
2001 og er keppnin tvískipt og
er hverjum degi skipt í þrennt.
Byrjað er að spila eftir Texas-fyr-
irkomulagi. Önnur keppnin er
greensome og síðan lýkur keppni
með tvímenningi. Fyrri keppnis-
dagur Ryderkeppninnar var leik-
inn á Víkurvelli í Stykkishólmi í
vor en sá síðari fór fram á Báravelli
í Grundarfirði síðastliðinn laug-
ardag. Vestarmenn höfðu tveggja
vinninga forskot eftir fyrri keppn-
isdaginn þegar félögin mættust á
laugardaginn. Þátttaka var góð, en
28 keppendur voru skráðir til leiks,
14 frá hvoru félagi.
Á meðan keppni stóð býð-
ur heimaliðið upp á veitingar og
að venju voru þær með veglegra
móti. Í mótslok var grillað fyr-
ir alla og keppnin gerð upp með
gleði og gamni. Þema dagsins var
möguleg sameining sveitarfélag-
anna og áhrif þess á starf klúbb-
anna. „Keppnin var drengileg og
skemmtileg. Vestarr bætti einum
vinningi við og sigraði saman-
lagt með þremur vinningum. Ás-
geir Guðmundsson var liðsstjóri
Mostra og Garðar Svansson var
liðsstjóri Vestarr,“ segir í tilkynn-
ingu frá Golfklúbbnum Vestarr.
kgk/ Ljósm. sk.
Vestarr sigraði
Ryderkeppnina
Keppendurnir 24 sem tóku þátt Ryderkeppni Vestarr og Mostra sl. laugardag.
Garðar Svansson, liðsstjóri Vestarr, með bikarinn sem lið hans hlaut að launum
fyrir sigurinn. Ásgeir Guðmundsson, liðsstjóri Mostra, klappar fyrir sigurvegur-
unum.