Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2017, Síða 19

Skessuhorn - 13.09.2017, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2017 19 Vel var mætt í fyrsta prjónakaffi vetrarins hjá Rifssaumi í Rifi síðasta laugardag. Þar voru saman komnar konur til að hittast, prjóna, læra af hvorri annarri og hafa gaman. Rifs- saumur hefur staðið fyrir prjóna- kaffi í nokkur ár í miðri viku. Til stendur að hafa fleiri svona hittinga og líklega á þessum tíma þar sem hann virðist henta vel. Rifssaumur stendur einnig fyrir prjónahelgi í samstarfi við Önnur Þóru Böðvars- dóttur yogakennara sem hefur not- ið sívaxandi vinsælda. þa Fyrsta prjónakaffið í Rifssaumi Skotfélag Snæfellsness hélt árlegt pæjumót sunnudaginn 10. sept- ember síðastliðinn. Pæjumótið var haldið í fyrsta sinn árið 2016 eftir vel heppnað konukvöld skotfélags- ins. Þá var sú hugmynd viðruð í fyrsta sinn að halda mót eingöngu fyrir konur. Heppnaðist það svo vel að mótið er komið til að vera. Alls voru keppendur 15 talsins að þessu sinni og var þeim skipt í tvo flokka. Annars vegar þær sem höfðu keppt áður og svo þær sem aldrei höfðu tekið þátt í keppni. Keppt var með .22 kalíbera rifflum á 50 metra færi. Lydía Rós Unnsteinsdóttir varð hlutskörpust þeirra óvönu en Anna Karen Ingibjargardóttir og Sigríður Hjálmarsdóttir voru í öðru og þriðja sæti. Það var síðan Aðal- heiður Lára Guðmundsdóttir sem sigraði í keppni þeirra reynslumeiri en Mandy Nachbar og Dagný Rut Kjartansdóttir lentu í öðru og þriðja sæti. Mótið heppnaðist mjög vel þrátt fyrir smá norðan kulda og ljóst er að áhuginn fyrir skotfimi er að aukast. tfk Árlegt pæjumót Skotfélags Snæfellsness Hildur Ingadóttir sem kom alla leið frá Akranesi til að taka þátt í pæjumótinu er hér einbeitt á svip. Lydía Rós Unnsteinsdóttir er hér að skjóta beint í mark. Þátttakendur stilltu sér upp fyrir myndatöku í lok móts. Sundgarpar úr Sundfélagi Akraness syntu hið árlega Faxaflóasund síð- astliðinn laugardag. Synt er frá Reykjavík til Akraness og komið í land á Langasandi, en leiðin er samtals um 21 kílómetri að lengd. Það eru sundfélagar 14 ára og eldri sem taka þátt í Faxa- flóasundinu. Að þessu sinni voru tólf krakkar sem skiptust á að synda yfir flóann. Þegar nálgast Akranes stungu sér allir til sunds og syntu saman síðasta spölinn. Faxaflóasundið er árviss viðburð- ur og áheitasund. Félagar úr sund- félaginu höfðu safnað áheitum í að- draganda sundsins, bæði hjá ein- staklingum og fyrirtækjum. Ágóð- inn er nýttur til að standa straum af kostnaði við æfingaferðir sem farn- ar eru annað hvert ár. „Sundið gekk alveg ótrúlega vel. Krakkarnir voru um fimm klukku- stundir á leiðinni og við vorum komin á Akranes mun fyrr en við bjuggumst við,“ segir Harpa Hrönn Finnbogadóttir hjá Sundfélagi Akraness í samtali við Skessuhorn. Hún segir sundfólkið hafa fengið góða fylgd á leiðinni. „Júlíus Víðir Guðnason fylgdi okkur á hafnsögu- bátnum Jötni alla leiðina. Þetta var í tólfta skiptið sem hann fylgir okkur, við gætum ekki gert þetta án hans. Einnig voru með í för fé- lagar úr Björgunarfélagi Akraness sem fylgdu krökkunum á gúmmí- bátum á meðan þeir syntu,“ segir Harpa þakklát. „Þannig að þetta gekk allt saman alveg brillíant vel. Við hjá Sundfélagi Akraness viljum þakka öllum sem studdu okkur við Faxaflóasundið. Bæði þeim aðstoð- uðu okkur við sjálft sundið og einn- ig þeim sem hétu á krakkana og studdu þannig við starf sundfélags- ins,“ segir Harpa Hrönn Finnboga- dóttir að endingu. kgk Syntu yfir Faxaflóann Sundgarpar úr Sundfélagi Akraness koma í land á Langasandi sl. laugardag eftir að hafa synt frá Reykjavík. Krakkarnir skiptast á að synda yfir Faxaflóann þar til nálgast Akranes að allri stinga sér til sunds og synda saman síðasta spölinn. Ljósm. bbm. Þrjú Íslandsmeistaramót í kraftlyft- ingum fóru fram á Akranesi um liðna helgi. Keppt var í íþróttahúsinu við Vesturgötu og mótshaldari var Kraft- lyftingafélag Akraness. Á laugardeginum var keppt í bekk- pressu. Kraftlyftingafélag Akraness eignaðist þar Íslandsdsmeistara því Einar Örn Guðnason sigraði 105 kg flokk karla með lyftu upp á 225 kg þá vann Viðar Engilbertsson til silfur- verðlauna í 93 kg flokki karla með lyftu upp á 110 kg. Einar Örn hrósaði einnig sigri í stigakeppni karla. Sigur- lyfta hans í 105 kg flokki skilaði hon- um 134,5 Wilksstigum. Stigahæst kvenna varð Sóley Margrét Jónsdótt- ir úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar. Hún lyfti mest 120 kg og hlaut 100,7 Wilksstig fyrir vikið. Metaregn í klassískri bekkpressu Félagar úr Kraftlyftingafélagi Akra- ness gerðu gott mót í klassísku bekk- pressunni. Steinunn Guðmundsdótt- ir hreppti silfurverðlaun í 72 kg flokki kvenna með 65 kg lyftu, Einar Örn fékk silfur í 105 kg flokki karla með 182,5 kg, Bjarki Þór Sigurðsson fékk silfrið í 120 flokki karla með 155 kg og Viðar Engilbertsson hreppti bronsið í 93 kg flokki karla með 125 kg lyftu. Stigahæst voru þau Ingimund- ur Björgvinsson og Fanney Hauks- dóttir, bæði úr Kraftlyftingafélagi Reykjavíkur. Fanney sigraði í 63 kg flokki kvenna með lyftu upp á 107,5 kg sem skilaði henni 115,9 Wilksstig- um. Ingimundur sigraði 105 kg flokk karla á nýju Íslandsmeti með 200 kg og 120,7 Wilksstig. Fleiri met féllu í klassískri bekk- pressu á mótinu á Akranesi. Ragn- heiður Kr. Sigurðardóttir úr KFR setti met í klassískri bekkprssu í 57 kg flokki með lyftu upp á 81 kg. Vikt- or Ben Gestsson úr KFR tók metið í +120 kg flokki (opnum aldursflokki og U23) með 205 kg lyftu og Sóley Margrét setti nýtt met í +84 kg flokki U18 og U23 með lyftu upp á 82,5 kg. Júlían JK og Sóley stigahæst í réttstöðu Á sunnudag fór síðan fram Íslands- meistaramótið í réttstöðulyftu. Kraftlyftingafélag Akraness eignað- ist þar þrjá Íslandsmeistara. Viðar Engilbertsson sigraði í 93 kg flokki karla með lyftu upp á 235 kg, Einar Örn sigraði í 105 kg flokki með 285 kg lyftu og Bjarki Þór sigraði í 120 kg flokki með 290 kg. Í stigakeppninni urðu hlutskörp- ust þau Sóley Margrét í kvenna- flokki og Júlían J.K. Jóhannsson í karlaflokki. Sóley sigraði í +84 kg flokki kvenna með 200 kg lyftu í þriðju tilraun. Skilaði lyftan henni 167,9 Wilksstigum og naumu for- skoti á Örnu Ösp Gunnarsdóttir úr Kraftlyftingafélagi Mosfellsbæjar sem hafnaði í öðru sæti. Júlían keppti, líkt og Sóley, í yfir- þungavigt og vann þar öruggan sig- ur með lyftu upp á 370 kg. Hlaut hann einnig stigabikar karla með 201,5 Wilksstig. kgk Fjöldi meta var sleginn á Akranesi um helgina Einar Örn Guðnason tvöfaldur Íslandsmeistari Einar Örn Guðnason úr Kraftlyftingafélagi Akraness hampaði Íslandsmeistaratitl- inum í 105 kg flokki í réttstöðulyftu og í bekkpressu með útbúnaði. Ljósm. Sveinn Þór. Sóley Margrét Jónsdóttir úr Kraftlyftingafélagi Akureyrar varð þrefaldur Íslands- meistari. Hún sigraði í +84 kg flokki kvenna í bekkpressu, klassískri bekkpressu og réttstöðulyftu. Ljósm. Sveinn Þór.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.