Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Síða 2

Skessuhorn - 01.11.2017, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 20172 Tvær menningarhátíðir á Vestur- landi standa nú sem hæst. Það eru Vökudagar á Akranesi og Rökkur- dagar í Grundarfirði. Fjölbreytt dag- skrá er á báðum hátíðum og menn- ingarþyrstir Vestlendingar hvatt- ir til að kynna sér þá viðburði sem í boði eru. Það verður suðvestanátt 8-15 m/s og rigning eða jafnvel slydda til fjalla á morgun, fimmtudag. Úr- komulítið norðaustan- og austan- lands. Hægari vindur um kvöldið. Hiti 2 til 7 stig að deginum. Gengur í norðaustan 8-15 m/s á föstudag með éljum við norðausturströnd landsins. Hæg breytileg átt í öðr- um landshlutum fram eftir degi og stöku skúrir eða slydduél. Hiti ná- lægt frostmarki. Norðan 5-13 m/s á laugardag og dálítil él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað syðra. Hiti kringum frostmarkið. Gengur lík- lega í suðaustan storm með rign- ingu eða slyddu á sunnudag. Hlýnar í veðri, fyrst á Vesturlandi. Á mánu- dag er útlit fyrir suðlæga átt, frem- ur kalt veður og skúrir eða él á Suð- ur- og Vesturlandi. Annars staðar úr- komulítið. „Ætlar þú að ferðast til útlanda í vet- ur?“ Þeirri spurningu hafa lesend- ur svarað á vef Skessuhorns und- anfarna viku. „Já, örugglega“ sögðu flestir, eða 45%. „Nei, held ekki“ sögðu næstflestir eða 36%. „Veit það ekki ennþá“ sögðu 10% og sama hlutfall sagði „já, líklega“. Í næstu viku er spurt: „Eiga konur að stefna að sérstökum kvenna- framboðum?“ Vestlendingur vikunnar Guðbjörg Árnadóttir var á fimmtu- dag sæmd menningarverðlaunum Akraneskaupstaðar fyrir framlag sitt til menningarmála á Akranesi, eink- um leiklistar. Guðbjörg er Vestlend- ingur vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Veðurhorfur Vestlendingur vikunnar Aðaltvímenn- ingur BB framundan BORGARFJ: Borgfirsk- ir briddsspilarar luku und- irbúningstímabili sínu á mánudagskvöldið í Loga- landi, en þá var spilað síðasta kvöld hausttvímennings- ins en stigahæsta par bestu tveggja kvölda spila frítt í að- altvímenning; félagsins. Þeir félagar Heiðar og Logi voru hittnir enda báðir nýkomnir af rjúpu. Þeir skoruðu mest samanlagt og spila því frítt. Þeir Ingimundur og Bald- ur áttu hins vegar besta skor mánudagsins síðasta. Næstu fjögur mánudagskvöld verð- ur aðaltvímenningur BB á dagskrá. Spilaður verður ba- rómeter; 24-28 spil á kvöldi. „Ennþá eru nokkrir spilarar óheimtir og er vonast eftir þeim í Logaland á mánudag sem og öllum sem áður voru heimtir,“ segir í tilkynningu frá félaginu. -mm SÍÐASTI PÖNTUNARDAGUR ER TIL MIÐNÆTTIS Á MIÐVIKUDÖGUM. AFHENDING ER Á ÞRIÐJUDEGI Í KOMANDI VIKU. GSM: 865-2580 SMIÐJUVÖLLUM 17 300 AKRANES SÍMI: 431-2580 WWW.SANSA.IS BORGARNES OG NÁGRENNI: VIÐ MINNUM Á AÐ SANSABÍLLINN ER Á PLANINU HJÁ GEIRABAKARÍ, DIGRANESGÖTU 6 BORGARNESI Á ÞRIÐJUDÖGUM FRÁ KL. 17:00 - 18:00 - ÞÚ SÆKIR Kíktu inná SANSA.IS 1 32 Guðmundur Þór Pálsson, verktaki hjá GP Vélum á Akranesi, er heit- fengnari en gengur og gerist. Síð- degis á mánudaginn var hann að steypa fyrir utan Kirkjubraut 54 á Akranesi á stuttermabolnum. Guð- mundur var að steypa upp í sem nemur bílastæði fyrir einn bíl, en stæðið var of nálægt gangbraut sem liggur þar yfir götuna. Skapaði það hættu fyrir gangandi vegfarendur, því til að komast út úr stæðinu þurfti að bakka bílnum út á gangbrautina. Munaði oft litlu að slys yrðu af þeim sökum. Guðmundur var því kallaður til að steypa í stæðið, en hann tekur að sér alls kyns smáviðhald fyrir Akranes- kaupstað. Var hann til að mynda að steypa á öðrum stað í bænum þenn- an sama dag, einnig á stuttermabol- num. Vel lá á Guðmundi, sem sagði vel hafa gengið að steypa og þvertók fyrir að sér væri kalt. Þvert á móti undraðist hann að blaðamaður væri íklæddur jakka og með húfu á höfði. Blaðamaður benti honum á að það væri næstum kominn nóvember og taldi töluvert óvenjulegra að vera úti á bolnum en í jakka. Guðmundur viðurkenndi að svo kynni vel að vera en fannst engin ástæða til að dúða sig. Rétt væri að vera klæddur eftir aðstæðum, það ætti við nú sem og eftir að vetur er genginn í garð. „Ég fer kannski í þunna flíspeysu í vetur, það ætti að vera meira en nóg fyr- ir mig,“ sagði hinn heitfengi Guð- mundur Þór Pálsson að endingu. kgk Steypt á stuttermabolnum í lok október Guðmundur Þór Pálsson, verktaki hjá GP Vélum, steypir á stuttermabolnum. Fyllt var upp í sem nemur einu bílastæði, sem var of nálægt gangbraut á horni Kirkjubrautar og Háholts. Guðmundur girðir hér vinnusvæðið af svo steypan fái að harðna í friði. Síðastliðinn miðvikudag var und- irritaður í atvinnuvegaráðuneytinu viðaukasamningur við Sóknaráætl- un Vesturlands sem felur það í sér að íslenska ríkið mun leggja fjöru- tíu milljónir króna í uppbyggingu Vínlandsseturs í Leifsbúð í Búð- ardal. Megin hlutverk Vínlands- seturs verður að byggja upp segul fyrir ferðamenn og efla ferðaþjón- ustu í Dalabyggð. Um er að ræða samstarfsverkefni sem Dalabyggð, Eiríksstaðanefnd og aðstandendur Landnámsseturs í Borgarnesi hafa unnið að á liðnum tveimur árum. Verkefnið er hugarsmíði hjónanna Kjartans Ragnarssonar og Sigríð- ar Margrétar Guðmundsdóttur í Landnámssetrinu. Gert er ráð fyr- ir að Vínlandssetur verði byggt upp sem samfélagsverkefni í eigu sveit- arfélagsins eða sem sjálfseignar- stofnun, en rekstur verði í höndum einkaaðila. Fjárveiting ráðuneytanna sem hlut eiga að máli byggir á stefnu- mótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014-2017; „einkum með vísan í sértækar aðgerðir á varnarsvæðum, sem og áherslum löggjafans um að sérstaklega skuli hlúa að svæð- um sem búa við langvarandi fólks- fækkun, atvinnuleysi og einhæft at- vinnulíf,“ segir í frétt ráðuneytisins vegna samningsins. „Dalir eru fyrst og fremst landbúnaðarhérað og eru breytingar í landbúnaði helsta or- sök fólksfækkunar. Ekki hefur ver- ið nægt framboð af atvinnutækifær- um á svæðinu til að taka við þeim sem bregða búi eða flytja úr sveit- unum af öðrum orsökum. Atvinnu- tækifærum í Búðardal hefur frekar fækkað með samdrætti í þjónustu, opinberri sem almennri. Sameining sýslumannsembætta, lögregluum- dæma og breytingar í bankakerfinu hafa fækkað störfum. Með fækkun starfa fækkar íbúum,“ segir í frétt frá atvinnuvegaráðuneytinu. Í samningnum um sóknaráætlanir 2015-2019 fyrir Vesturland, skuld- binda samningsaðilar sig, ríkið og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, sig til að auka ráðstöfunarfé til samninga um atvinnuuppbyggingu á samningstímanum. Heildarfram- lag ráðuneytanna til þessa verkefnis í Búðardal er eins og fyrr segir 40 milljónir króna. mm Ríkið leggur fjörutíu milljónir í uppbyggingu Vínlandsseturs Jón Gunnarsson ráðherra undirritaði samninginn fyrir hönd samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytisins, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Rakel Óskarsdóttir stjórnarformaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi fyrir hönd Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Vínlandssetri er ætlað að vera til húsa í Leifsbúð.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.