Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Side 17

Skessuhorn - 01.11.2017, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 17 Laugardaginn 4. nóvember á milli kl. 14:00 og 16:00 Til sýnis og sölu munir úr handavinnustofu Ágóði rennur til kaupa á efni fyrir vinnustofu og búnaði fyrir heimilisfólk Vöfflur með tilheyrandi verða seldar gegn vægu gjaldi, ágóði af vöfflu- og kaffisölu rennur til starfs- mannafélags Brákarhlíðar vegna fræðsluferðar Allir velkomnir Hlökkum til að sjá ykkur! Basar og vöfflusala í Brákarhlíð SK ES SU H O R N 2 01 7 Stykkishólmsbær Hafnargötu 3 340 Stykkishólmur Sími: 433-8100 netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is KT.: 620269-7009 SK ES SU H O R N 2 01 7 Til íbúa í Stykkishólmi Samkvæmt skráningu á vegum Stykkishólmsbæjar hefur hlutfall sorps sem fer til endurvinnslu minnkað. Sú þróun er ekki ásættanleg og bendir til þess að bæta þurfi sorpflokkun. Undirritaður, fyrir hönd bæjarstjórnar, vill hvetja íbúar Stykkishólms og gesti okkar til þess að bæta flokkun á sorpi og koma þannig til móts við þá eindregnu stefnu Stykkishólmsbæjar að vera í fremstu röð þeirra sveitarfélaga sem leggja áherslu á umhverfismál. Góð flokkun sorpsins og aukin endurvinnsla er til marks um vilja til þess að hafa umhverfismálin í hávegum. Tökum höndum saman og bætum flokkun sorpsins sem fellur til í Stykkishólmi. Stykkishólmi, 1. nóvember 2017 Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar Átt þú sumarhús eða íbúð sem þú vilt leigja? Orlofssjóður BHM óskar eftir að taka á leigu sumarhús eða íbúðir um land allt og annars staðar í Evrópu til að framleigja til sjóðfélaga sumarið 2018. Húsnæðið þarf að vera í mjög góðu ástandi, fullbúið húsgögnum og öðrum viðeigandi húsbúnaði. Þar þarf jafnframt að vera pláss fyrir 6–8 manns í gistingu. Áhugasamir húseigendur sendi tölvupóst með myndum af eigninni á obhm@bhm.is. Fram komi upplýsingar um staðsetningu, bygg- ingarár, ástand, stærð, fjölda svefnplássa og hugmyndir um leiguverð. SK ES SU H O R N 2 01 7 Snæfellsbær Hjúkrunarfræðingur óskast við Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar í Ólafsvík auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa í 80-100% stöðugildi. Á Jaðri eru 12 hjúkrunarrými og 5 dvalarrými. Heimilið var nýlega stækkað og allt tekið í gegn. Þar er vinnuaðstaða með því besta sem gerist. Nánari upplýsingar veitir Inga Jóhanna Kristinsdóttir forstöðumaður í síma 857-6605. Skriflegum umsóknum er tilgreini menntun, fyrri störf og 2 umsagnaraðila ber að skila til forstöðumanns Jaðars fyrir 20. nóvember 2017 á netfangið jadar@snb.is ellegar á póstfangið Hjarðartún 3a, 355 Ólafsvík. Ólafsvík er einn af þremur þéttbýliskjörnum sem mynda sveitarfélagið Snæfellsbæ. Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um Snæfellsjökul: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Arnarstapi, Hellnar, Hellissandur, Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur. Í góðu veðri er Ólafsvík í tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík og veðrið er að sjálfsögðu alltaf gott undir Jökli! Hér býr gott fólk sem er alltaf tilbúið til að bjóða nýja Snæfellsbæinga velkomna. Í Snæfellsbæ er sérstaklega fallegt umhverfi þar sem Snæfellsjökul ber hæst, enda býður bæjarfélagið upp á alla flóru landsins þegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi. Útivist og íþróttir er hægt að stunda hvenær sem er ársins, skíði og snjóbretti, gönguferðir, golf, hestamennsku, sund og margt fleira. Nýtt glæsilegt íþróttahús er í Ólafsvík. Öflugt tónlistarlíf er í sveitarfélaginu og félagastarfsemi með miklum blóma. Forstöðumaður Frábær stemning og góður mór- all hefur myndast í CrossFit stöð- inni CrossFit Ægi, sem var opnuð á Akranesi í september. Bræðurnir Gunnar Smári og Jóhann Örn Jón- björnssynir ásamt Sunnefu Burgess eiga stöðina og segja þau viðtökur bæjarbúa hafa verið mun betri en þau þorðu að vona. „Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt, bæði hversu margir hafa komið að æfa hjá okkur og að fylgjast með fólki á æf- ingum og sjá alla bæta sig, einhver sem gat kannski ekki gert armbeygju í fyrsta tíma en tekur 20 í dag,“ segir Sunnefa í samtali við blaðamann. Allir sem vilja æfa CrossFit verða að sækja grunnnámskeið áður en mætt er í WOD, Workout of the day. „Núna í lok vikunnar verða sjö hópar búnir að ljúka grunn- námskeiði hjá okkur, sem gerir 140 manns. Það er langt framúr okk- ar allra björtustu vonum. Næstu grunnnámskeið hefjast eftir helgi og er orðið fullt á þau öll og lang- ur biðlisti kominn á helgarnámskeið sem verður haldið 11.-12. nóvem- ber. Við erum alveg rosalega stolt og meyr yfir þessu öllu,“ segir Sunnefa. „Ég held líka að fólk sé ánægt hjá okkur, en þeir sem hafa lokið grunn- námskeiði eru flestir búnir að vera duglegir að mæta í WOD. Það kem- ur svo betur í ljós núna 6. nóvember, þegar fyrstu áskriftarkortin hjá okk- ur renna út, hversu margir ætla að halda áfram. Við gerum okkur grein fyrir að CrossFit er ekki fyrir alla, annað hvort elskar fólk þetta eða finnur sig alls ekki í þessu. En við erum mjög bjartsýn á framhaldið,“ segir Sunnefa og bætir því við að þau leggi mikla áherslu á að öllum líði vel í tímum og að nóg pláss sé fyrir alla. „Við viljum ekki sprengja þetta alveg og gætum þess að taka ekki of marga inn í einu. Við viljum halda í þessa góðu stemningu,“ bæt- ir hún við. Tveir gestakennarar með mikla reynslu á sínu sviði hafa haldið helg- arnámskeið hjá CrossFit Ægi og að sögn Sunnefu er stefnt að fleiri slík- um námskeiðum. „Evert Víglunds- son var með grunnnámskeið hjá okkur í september og Kári Walter var með helgarnámskeið í ólymp- ískum lyftungum núna í október. Þessi námskeið gengu mjög vel og voru vel sótt. Bæði Evert og Kári hafa sýnt áhuga á að koma aftur til okkar en ekkert hefur verið neglt niður ennþá,“ segir Sunnefa. Fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa Cross- Fit er hægt að finna allar upplýsing- ar á heimasíðu CrossFit Ægis, www. crossfitaegir.is. arg Frábær stemning í CrossFit Ægi Æfing dagsins í gangi. Hópur ungra kvenna sem æfir hjá Crossfit Ægi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.