Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Qupperneq 27

Skessuhorn - 01.11.2017, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 27 fengið misjöfn viðbrögð við þessari ákvörðun minni, en það er ótrúlegt hvað fólk getur haft mikla skoðun á lífi annarra. Ég hef t.d. fengið að heyra að barnið mitt ætti ekki að fá leikskólapláss, því ég tók ákvörðun um að gera þetta ein þá ætti ég bara að sjá alveg um hann sjálf. Margir hafa líka sakað mig um að vera vond móðir því ég er að eignast barn án föður. Ég tek svona athugasemdum ekki inná mig. Ég veit hvað er rétt fyrir mig og mína fjölskyldu og það eitt skiptir mig máli,“ segir Sunna og bætir því við að hún sé vel með- vituð um að með því að opna líf sitt á samfélagsmiðlum geti hún átt von á allskonar skilaboðum frá fólki. „Ég fæ samt mikið meira af jákvæð- um og skemmtilegum skilaboðum heldur en neikvæðum.“ Opnar sig um feimnismál „Ég man þegar ég eignaðist Jas- mín hafði ég enga hugmynd um hvað myndi koma eftir fæðinguna. Ég stóð í þeirri trú að um leið og barnið væri komið út væri allt þetta erfiða búið. Ég vissi ekki að það væri eðlilegt að hin ýmsu vandamál gætu fylgt í kjölfar fæðingar, enda fékk ég enga fræðslu um það,“ seg- ir Sunna, en hún hefur, frá því Axel Helgi fæddist, verið ófeimin við að segja frá öllu því sem líkami hennar er að ganga í gegnum. „Mín upplif- un er að þetta er mikið feimnismál, eins og fleiri málefni sem tengjast líkama kvenna. Guð forði fólki að heyra minnst á túrblóð eða útferð,“ segir Sunna og hlær. Ekki sagt allt „Þegar kona er búin að eignast barn er erfiði parturinn ekki endi- lega búnn, legið er lengi að dragast saman og því fylgja oft miklir verk- ir. Ég man hvað ég var reið yfir þessum verkjum fyrst, því maður er búinn að rembast lengi við að koma barni í heiminn og þá vill maður vera búinn með þetta slæma þegar barnið er loksins fætt. Með smá fræðslu hefði ég getað und- irbúið mig betur fyrir þetta. Svo fylgir úthreinsun í kjölfar fæðing- ar og gyllinæð er líka eitthvað sem flestar mæður hafa fengið að kynn- ast. Margar konur rifna og þá þarf að sauma og kynfærin verða bólg- in, sumar konur geta jafnvel ekki pissað í klósett lengi á eftir, heldur þurfa að pissa í sturtu og sprauta vatni á sig um leið. Konum er ekki nærri alltaf sagt frá þessu, allavega ekki áður en barnið fæðist.“ Vill opnari umræðu og fræðslu Sunna segir það ekki hafa verið planið að taka fyrir þetta málefni á Snapchat, heldur hafi það gerst þegar hún fann að þörf væri á að opna þessa umræðu „Ég hef heyrt margar vinkonur mínar tala um að þær hafi ekki fengið nærri nógu mikla fræðslu um hvað gerðist eft- ir fæðingu. Ég kom lítillega inná þetta á Snapchat og viðbrögðin voru rosaleg. Ég fékk fjölda skila- boða frá konum sem tóku und- ir þetta með mér. Margar þeirra sögðust hafa sömu sögu að segja og aðrar sendu mér skilaboð til að þakka mér fyrir upplýsingarnar því þær ættu von á barni en hefðu ekki fengið neina fræðslu um þetta. Ég skil ekki af hverju ljósmæður eða læknar ræði þetta ekki betur við verðandi mæður. Mér finnst þetta ekki feimnismál svo ég ákvað að tala opið um þetta og vona að heil- brigðisstarfsmenn bæti fræðslu fyr- ir verðandi mæður,“ segir Sunna að endingu. arg/ Ljósm. úr einkasafni Sunnu. Á laugardaginn gengu Íslendingar til alþingiskosninga. Hér í Norð- vesturkjördæmi bauð Framsóknar- flokkurinn fram framboðslista með kraftmiklu fólki víðsvegar úr kjör- dæminu. Eins og öllum er ljóst þá hefur flokkurinn gengið í gegnum talsverða erfiðleika. En á undan- förnum vikum hefur komið fram mikill kraftur og tekist hefur að virkja grasrót flokksins víðsveg- ar um landið. Á ferðum okkar um kjördæmið fundum við fyrir mik- illi jákvæðni og hún endurspeglað- ist í úrslitum kosninganna. Þegar búið var að telja öll atkvæði þá fékk Framsóknarflokkurinn 18,42% at- kvæða og er næststærsti flokkurinn í kjördæminu. Undirrituð voru kjörin á Alþingi fyrir okkar kjördæmi og við vilj- um með þessari stuttu grein þakka ykkur fyrir þann stuðning sem þið sýnduð bæði okkur og Framsókn- arflokknum. Þessu fylgir mikil ábyrgð og við munum leggja okkur fram að standa undir henni. Norð- vesturkjördæmi er stórt og víðfemt. Það að ná tveimur þingmönnum auðveldar okkur að ná utan um kjördæmið. Við viljum að lokum hvetja íbúa kjördæmisins til að vera í sambandi við okkur um mál sem brenna á fólki. Við erum hér fyrir ykkar til- stilli og mikilvægt að samstarf okk- ar verði gott á kjörtímabilinu. Með góðri kveðju og þökk fyrir stuðninginn. Ásmundur Einar Daðason og Halla Signý Kristjánsdóttir Takk fyrir stuðninginn! Pennagrein Borgfirðingurinn Sunna Rós Bax- ter er einstæð móðir sem býr nú í Keflavík. Hún eignaðist sitt annað barn, Axel Helga, föstudaginn 13. október síðastliðin. Fyrir átti hún Jasmín, átta ára. Sunna fæddi Axel Helga heima og sýndi frá fæðing- unni á Snapchat, þar sem nokkur þúsund manns fylgdust með. „Ég er mjög opin manneskja og á ekk- ert erfitt með að hleypa fólki nokk- uð nærri mér. Margir höfðu fylgst með allri meðgöngunni á Snapchat og voru spenntir að sjá fæðinguna líka svo ég ákvað að sýna bara frá öllu,“ segir Sunna aðspurð hvers vegna hún hafi ákveðið að sýna frá fæðingunni. „Þar hjálpaði vissulega að hafa fæðinguna heima. Ég er ekki viss um að ég hefði getað sýnt frá öllu ef ég hefði verið á sjúkra- húsi. Það er mun afslappaðra að fæða heima hjá sér, ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af hvaða ljósmóð- ir væri með mér eða að ég þyrfti jafnvel að skipta um ljósmóðir í miðri fæðingu. Ég vissi nákvæm- lega hverjir yrðu viðstaddir og ég valdi það fólk sjálf. Þó fæðingin hafi vissulega verið löng og tekið mik- ið á var andrúmsloftið gott og mér fannst yndislegt að geta haft Jasmín með, en ég efast um að hún hefði fengið að vera hjá mér á spítala. Fæðingin var einnig tekin upp fyr- ir heimildamynd um heimafæðing- ar svo mér fannst lítið mál að deila henni líka á Snapchat, með öllum sem höfðu beðið spenntir með mér alla meðgönguna,“ bætir Sunna við og hlær. Eignaðist Axel Helga ein Sunna er eina foreldri Axels Helga en hún fór í tæknisæðingu til að verða ófrísk. „Ég get vel skilið að fyrir margar konur sé þetta erfitt að hugsa sér að eignast barn ein, sér- staklega ef um er að ræða óplanaða meðgöngu eða ef viðkomandi kona er að eignast fyrsta barn. Það á alls ekki við um mínar aðstæður. Ég tók ákvörðun um að eignast Axel Helga og skipulagði það sjálf. Ég vissi líka alveg út í hvað ég væri að fara, eða eins mikið og foreldri getur vitað um það, en ég hef verið ein með Jasmín frá upphafi. Hún á pabba sem býr í Noregi svo hún fer ekki mjög oft til hans, þó hún fari stund- um. Ég gerði mér því alveg grein fyrir hvernig það er að vera einstæð móðir,“ segir Sunna. „Ég vildi ein- faldlega eignast annað barn en ég vildi ekki fara í samband, svo þetta var leiðin sem ég valdi. Ég hef alveg Sýndi frá fæðingu í beinni útsendingu Sunna Rós Baxter með Axel Helga nýfæddan í fanginu og hjá þeim er Jasmín, 8 ára dóttir Sunnu, sem fékk að fylgjast með fæðingu bróður síns. Sunna með börnin sín tvö, Jasmín og Axel Helga Sunna og Axel Helgi. Sunna fæddi Axel Helga heima.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.