Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 29

Skessuhorn - 01.11.2017, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 29 Sumarhús til leigu Hef til leigu í skamman tíma lít- ið sumarhús. Upplýsingar í síma 897-5142. Stúdíóherbergi í Borgarnesi Til leigu stúdíóherbergi á besta stað í Borgarnesi með salerni, húsgögnum, ísskáp, örbylgjuofni, borðbúnaði, Stöð 2 o.fl. Sérinn- gangur. Nánari upplýsingar í síma 860-8588. Markaðstorg VesturlandsNýfæddir Vestlendingar LEIGUMARKAÐUR Markaðstorg Vesturlands Skráðu SMáauglýSinguna Frítt á www.SkeSSuhorn.iS Fyrir klukkan 12.00 á þriðju- döguM 27. október. Stúlka. Þyngd: 3.390 gr. Lengd: 49,5 cm. Foreldrar: Hafdís Mjöll Lárusdóttir og Björn Torfi Axelsson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 28. október. Drengur. Þyngd: 3.304 gr. Lengd: 51 cm. Foreldrar: Sunna Garðarsdóttir og Skúli Guðmundsson, Borgarnesi. Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir. 29. október. Drengur. Þyngd: 3.454 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar: Eva Dögg Einarsdóttir og Orri Þorkell Arason, Mosfellsbæ. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. Á döfinni Grundarfjörður - miðvikudagur 1. nóvember Menningarhátíðin Rökkurdagar stendur yfir í Grundarfirði um þessar mundir og lýkur hátíðinni laugardaginn 4. nóvember næstkomandi. Fjölmargir viðburðir af ýmsum toga. Dagskrá Rökkurdaga má finna á www. grundarfjordur.is. Akranes - miðvikudagur 1. nóvember Menningarhátíðin Vökudagar er í fullum gangi á Akranesi og stendur til 5. nóvember. Fjölbreytt dagskrá og fjölmargir viðburðir um allan bæ. Sjá ítarlega dagskrá á www.akranes.is. Borgarbyggð - miðvikudagur 1. nóvember Sviðamessa FAB. Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum heldur hina árlegu sviðamessu í Brún í Bæjarsveit kl. 14:00 til 17:00. Nýir félagar 60+ boðnir velkomnir í félagið. Akranes - miðvikudagur 1. nóvember Ungir gamlir, tvennir tónleikar í Bíóhöllinni á Akranesi. Hinu árlega tónlistarverkefni Ungir gamlir lýkur að venju með tvennum stórglæsilegum tónleikum í Bíóhöllinni. Markmið tónlistarverkefnisins er að gefa hinum yngri tónlistarmönnum á Akranesi tækifæri til að vinna með reyndara fólki og auka þannig líkurnar á því áhugi þeirra fleyti þeim lengra á sviði tónlistarinnar. Áhugasamir nemendur taka þá þátt í stuttum námskeiðum með þekktum tónlistarmönnum og setja svo upp stórglæsilega tónleika. Í ár kemur Páll Óskar Hjálmtýrsson fram með ungu tónlistarmönnum. Fyrri tónleikarnir fara fram kl. 17.30 og þeir seinni kl. 20.30. Borgarbyggð - miðvikudagur 1. nóvember Skallagrímur tekur á móti Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið verður í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi kl. 19:15. Borgarbyggð - fimmtudagur 2. nóvember Pokahlaup í Hyrnutorgi kl. 17:00 til 18:00. Pokahlaupið er upptaktur að umhverfisátaki Borgarbyggðar, sem miðar að vþí að minnka notkun burðarplastboka. Margnota pokar hafa verið saumaðir í Öldunni í Brákarey og eru merktir sem „pokar að láni“ og hugmyndin er að þeir sem gleyma margnot-pokunum sínum fái lánaðan poka sem þeir svo skila. Pokarnir verða í byrjun staðsettir við Bónus og Nettó. Aldan mun halda utan um verkefnið og bæta á pokum eftir þörfum, þar til jafnvægi hefur náðst. Margt verður að skoða úr héraði á pokahlaupinu, skemmtun og ræðustúfar. Snæfellsbær - fimmtudagur 2. nóvember Opin æfing og samsöngur í Langaholti kl. 20:30. Karlakórinn Kári og Karlakórinn Heiðbjört verða með opna æfingu og samsöng í Langaholti í Staðarsveit. Frítt inn og allir velkomnir. Stykkishólmur - föstudagur 3. nóvember Vesturlandsslagur í körfunni! Snæfell tekur á móti ÍA í 1. deild karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi. Borgarbyggð - föstudagur 3. nóvember Tónleikar með Hafdísi Huld á Sögulofti Landnámsseturs kl. 20:00. Hafdís Huld sendi fyrr á árinu frá sér sýna fjórðu sólóplötu Dare to Dream Small og heldur nú tónleika hér á landi til þess að fagna útgáfunni. Platan hefur fengið frábæra dóma bæði hér heima og erlendis. Með Hafdísi á tónleikunum verður Alisdair Wright en saman hafa þau komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum um allan heim undanfarin 11 ár. Miðasala á www.midi. is. Grundarfjörður - laugardagur 4. nóvember Hljómsveitin Á móti sól á stórdansleik í Samkomuhúsinu í Grundarfirði. Húsið opnar kl. 23:00. Aldurstakmark er 18 ár og miðaverð er kr. 3.000, miðasala við innganginn. Borgarbyggð - sunnudagur 5. nóvember Vígsluafmæli Stafholtskirkju. Í byrjun nóvember verða liðin 140 ára frá því Stafholtskirkja var vígð. Af því tilefni verður hátíðarmessa þar sem frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og sr. Elínborg Sturludóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukór Stafholtskirkju leiðir söng undir stjórn Jónínu Ernu Arnardóttur. Messan hefst kl. 14:00. Að henni lokinni verður boðið til kaffisamsætis á prestssetrinu. Borgarbyggð - fimmtudagur 9. nóvember Tónleikar með Guitar Islancio. Þeir Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarsson og Jón Rafnsson í Guitar Islancio verða með tónleika á sögulofti Landnámsseturs fimmtudaginn 9. nóvember. Á efnisskránni eru lög af nýútkomnum geisladiski, ,,Þjóðlög”, auk laga úr ýmsum áttum. Verð aðgöngumiða 2.500 Miðasala við innganginn – posi á staðnum. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Næstkomandi laugardag klukkan 13 mun Áslaug Jónsdóttir frá Melaleiti í Hvalfjarðarsveit lesa fyrir yngstu börnin á Bókasafni Akraness úr ný- útkominni bók sinni. Áslaug skrif- ar fyrir börn og eru Skrímslabæk- urnar hennar með vinsælli bókum á bókasafninu og hafa þær hlotið fjölda verðlauna og verið gefnar út í nokkr- um löndum. Fyrsta barnabók Áslaug- ar kom út árið 1990 en síðan hefur hún skrifað margar myndabækur fyr- ir yngstu börnin og þrjú barnaleikrit. Hún hefur jafnframt unnið við sjón- listir af ýmsu tagi, myndlýst eigin bækur og annarra, teiknað fyrir dag- blöð, tímarit og annað prentað efni sem og hannað leikmyndir. mm Áslaug les fyrir yngstu börnin Jón Bjarnason organisti í Skál- holti og píanóleikari heldur tón- leika sem bera yfirskriftina Tungl- skin og öldugangur í Vinaminni á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn 1. nóvember klukkan 20. Á tón- leikunum verður myndasýning með skýja- og náttúruljósmynd- um, sem Jón hefur tekið, á með- an hann leikur píanótónlist eftir nokkra af helstu meisturum píanó- bókmenntanna. Helst ber að nefna Tunglskinsónötu Beethovens og hina frægu cís moll prelúdíu eft- ir Rachmaninoff. Ljósmyndunum hefur verið raðað upp með tilliti til stemningar píanóverkanna sem leiknin eru á tónleikunum. Á efn- isskránni eru verk sem ná yfir þró- un píanósins og píanótónlistar með verkum eftir J.S. Bach, (1685-1750) Beethoven, Chopin, Liszt, Rachm- aninoff, Debussy og endar á Mau- rice Ravel (1875 –1937) Bösendor- fer flygillinn í Vinaminni er frábært hljóðfæri og það stefnir í dásamlega kvöldstund Tónleikarnir eru í um klukku- stund og eru liður í dagskrá Vöku- daga, menningar- og listahátíðar á Akranesi. Aðgangseyrir kr. 2.500 en Kalmansvinir greiða kr. 1.500. -fréttatilkynning Píanótónleikar og myndasýning Jóns Bjarnasonar í Vinaminni Laugardaginn 4. nóvember næst- komandi verður opið hús í Heil- brigðisstofnun Vesturlands í Borg- arnesi frá klukkan 11 til 14. Þetta er í fjórða skipti sem starfsfólk býð- ur íbúum að kíkja við á heilsugæslu- stöðinni og njóta fræðslu um valið efni. Nú sem fyrr er valinn sami dagur og basar heimilisfólks í Brák- arhlíð er haldinn. Linda Kristjáns- dóttir yfirlæknir í Borgarnesi segir að þessu sinni verði gestir fræddir um stoðkerfisverki og meðhöndlun við þeim. „Þetta er orðinn fastur og heim- ilislegur liður í okkar starfi og við veljum alltaf eitt viðfangsefni sem þema á hverju ári. Áður höfum við haft þema um sykursýki, öndunar- færasjúkdóma, reykingar og andleg vandamál. Nú ætlum við hins vegar að fjalla um stoðkerfisvandann. Við munum bjóða upp á stutta fyrir- lestra um verki og meðhöndlun við þeim, hvað sé til ráða og farið yfir úrræði. Við sýnum veggspjöld með leiðbeiningum og hvar fólk get- ur aflað sér upplýsinga, svo sem á netinu. Þá mun sálfræðingur okkar fjalla um hugræna atferlismeðferð. Mest áhersla verður lögð á að fjalla um hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem glíma við stoðkerfisverki og á því eru ýmsir vinklar með og án lyfja,“ segir Linda. Í boði verða léttar veitingar. „Við starfsfólkið bjóðum alla velkomna til okkar, fólk á öllum aldri,“ segir Linda. mm Fjallað um stoðkerfisverki á opnu húsi í HVE Borgarnesi Sunnudaginn 5. nóvember næst- komandi er allra heilagra messa í kirkjum landsins og kirkjudagur Akraneskirkju. „Á þeim degi er lát- inna minnst og heiðruð minning þeirra sem látist hafa síðastliðið ár. Við hátíðarmessu kl. 14 verða les- in nöfn þeirra sem voru jarðsungn- ir frá Akraneskirkju frá kirkjudegin- um árið 2016. Einnig verða tendruð kertaljós til minningar um látna ást- vini. Eftir messu býður kirkjunefndin til kirkjukaffis í Vinaminni. Allir eru velkomnir til messu,“ segir í tilkynn- ingu frá prestum Akraneskirkju. Um kvöldið sunnudaginn 5. nóvember klukkan 20 verður Sálma- kvöld í Vinaminni. „Fluttir verða sálmar eftir þá Sigurð Flosason og Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Kór Akraneskirkju syngur og Sigurður og Aðalsteinn Ásberg munu segja frá til- urð sálma sinna og hvers vegna þeir semja sálma.“ mm Kirkjudagur Akraneskirkju og Sálmakvöld næsta sunnudag

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.