Skessuhorn


Skessuhorn - 01.11.2017, Síða 31

Skessuhorn - 01.11.2017, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 31 Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins. Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni, hafnaði í öðru sæti á Saler Valencia mótinu sem lauk á Spáni á föstudag- inn. Valdís og hin sænska Emma Nilsson voru jafnar fyrir lokahring mótsins. Valdís lék þriðja og síðasta hringinn á pari og lauk leik í mótinu á samtals fimm höggum undir pari, aðeins einu höggi á eftir Emmu sem fór með sigur af hólmi. Er þetta besti árangur Valdísar á LET Access mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu. Mótið á Spáni var það síðasta á LET Access mótaröðinni á þessu keppnistímabili. Valdís tók þátt í sex þeirra og endaði þrisvar sinnum meðal fimm efstu. Framundan hjá Valdísi eru mót á LET Evrópumótaröðinni, í Abu Dhabi, Indlandi og Kína. Valdís háir harða baráttu um að halda keppnis- rétti sínum í þeirri mótaröð, sem er sú sterkasta í Evrópu. kgk Valdís Þóra hársbreidd frá sigri Íslandsmeistaramót 15 ára og yngri í glímu var haldið á Hvols- velli laugardaginn 28. október. Glímufélag Dalamanna sendi fjórar efnilegar glímudrottningar til keppni í mótinu. Jasmín Hall Valdimarsdóttir keppti í flokki tíu ára stúlkna og gerði sér lítið fyrir og sigraði í sínum flokki. Í flokki ellefu ára stúlkna kepptu þær Jóhanna Vigdís Pálmadóttir, Dagný Sara Viðarsdóttir og Dagný Þóra Arnarsdóttir. Jóhanna hafnaði þar í öðru sæti, Dagný Sara í því þriðja og Dagný Þóra í sjötta sæti. kgk Dalastúlkur gerðu það gott í glímunni Efnilegar glímudrottningar úr Glímufélagi Dalamanna. Ljósm. UDN. Knattspyrnufélag ÍA samdi í liðinni viku við tvo leikmenn sem spila munu í Inkasso deildinni næsta sumar með félaginu. Annars vegar var samið við Hall Flosason um að verða áfram með liðinu næstu tvö árin og hins vegar gengur FH ingurinn Hörður Ingi Gunnarsson til liðs við Skaga- menn og mun spila með félaginu næstu þrjú árin. Knattspyrnumaðurinn Hallur Flosason er 24 ára og uppalinn hjá ÍA. Hann hefur verið einn af lykil- mönnum Skagamanna og því metur félagið hann sem mikilvægan hlekk í liðið. Hallur hefur spilað 65 leiki með meistaraflokki og skorað þrjú mörk. Þá var skrifað undir þriggja ára samning við Hörð Inga Gunnarsson og gildir samningur því út leiktíðina 2020. Hörður Ingi er fæddur 1998 og er uppalinn hjá FH. Hann spilaði sjö leiki í Pepsi deildinni í sumar með Víkingi Ólafsvík. Einnig spilaði hann tíu leiki fyrir HK í Inkassó deildinni. Hörður hefur líka leikið með U17, U19 og U21 árs landsliðum Íslands. mm Hallur og Hörður Ingi semja við ÍA Frá undirritun samnings við Hörð Inga. Frá undirritun samningsins við Hall Flosason. Eftir rólega byrjun haustsins á mótum, tóku sundmenn Sund- félags Akraness þátt í sterku móti hjá SH um helgina. 23 sundmenn tóku þátt og gríðarlega góð stemn- ing var á bakkanum, alls voru 55 bætingar hjá hópnum um helgina. Bestum árangri Skagafólks- ins náði Brynhildur Traustadótt- ir en hún setti nýtt Akranesmet í 1500m skriðsundi stúlkna. Bætti hún gamla tímann sem var frá 2005 um 55 sek. og synti á tím- anum 18.25.27. Ágúst Júlíusson elsti sundamaðurinn SA tók gull í 50 og 100m flugsundi og brons í 200m flugsundi. Þess má geta að 100m flugsundið var sjötta stiga- hæsta sundið á mótinu hjá körlum skv. FINA stigum. Eftirtaldir sundmenn komu með verðlaun heim um helgina: Gull: Ágúst, Sævar Berg, Bryn- hildur, Sindri Andreas, Ásgerður Jing. Silfur: Sævar Berg, Sindri Andr- eas, Una Lára, Guðbjörg Bjartey. Brons: Ágúst, Sindri Andreas, Ingibjörg Svava, Brynhildur. Að sögn Trausta Gylfasonar for- manns Sundfélags Akraness er mikið að gera hjá félaginu núna. Um næstu helgi fara yngri sund- menn á mót í Reykjanesbæ á með- an Ágúst Júlíusson og Sævar Berg Sigurðsson munu keppa á sterku alþjóðlegu móti í Kristiansand í Noregi. Undirbúningur fyrir Ís- landsmeistaramót í 25m laug er einnig í fullum gangi, en það mót fer fram í Laugardalslaug dagana 17. til 19. nóvember. mm/tg Brynhildur setti Akranesmet í skriðsundi Brynhildur Traustadóttir. Blakdeild Ungmennafélags Grundar- fjarðar stóð fyrir svokallaðri æfinga- helgi í blaki um liðna helgi. Það var Birta Björnsdóttir, landsliðskona úr HK, sem sá um æfingarnar sem voru fyrir alla aldurshópa sem æfa blak. Góð mæting var hjá krökkunum sem skemmtu sér vel undir dyggri leið- sögn Birtu. Það voru fjölmargir sem styrktu þennan viðburð en Kjörbúð- in bauð öllum iðkendum upp á ávexti alla helgina og Ragnar og Ásgeir ehf bauð uppá pizzuveislu. Mikill hugur er í blakdeildinni og mikið af efnileg- um krökkum að koma upp. Stefnt er að því að halda aðra svona helgi fljót- lega eftir áramót og mun Birta þá mæta aftur til að leiðbeina iðkendum. tfk Frábær æfingahelgi í blaki Hópurinn stillti sér upp fyrir ljósmyndara Skessuhorns. Hrekkjavökumót Klifurfélags ÍA var haldið um helgina með pompi og prakt. Tóku um 25 ÍA klifrarar þátt í mótinu. Eins og venja er voru þátt- takendur klæddir upp í hrekkjavökus- tíl og fjölmargir áhorfendur fylgdust með og hvöttu sitt fólk áfram. Klifr- aðar voru 15 leiðir sem leiðasmið- ir ÍA sáu um að setja upp sérstaklega fyrir þetta mót og náðu þrír klifrar- ar að klára 14 af 15 leiðum. Að móti loknu fengu áhorfendur að spreyta sig á leiðunum og höfðu gaman að. Eftir kosninganótt var svo blás- ið til klifurs fyrir fullorðna á sunnu- degi og var þátttaka með besta móti. Mikill áhugi hefur verið fyrir fullorð- insklifri og er Klifurfélagi ÍA ljúft og skylt að verða við því, að sögn Þórðar Sævarssonar. „Hins vegar er aðstaða félagsins í kjallara íþróttahússins að Vesturgötu langt frá því að vera full- nægjandi en það segir sig sjálft að klifur í kjallara setur félaginu ákveðn- ar skorður. Meðal annars eru fjölda- takmarkanir í hópa vegna plássleys- is og aðstaðan er ófullnægjandi fyrir eldri og reyndari klifrara. Það er því von félagsins að hægt verði að finna annað og hentugra húsnæði und- ir aðstöðu félagsins hið fyrsta. Með bættri aðstöðu myndi vera hægt að bjóða upp á opna tíma fyrir almenn- ing í klifur en núverandi aðstaða býður ekki upp á slíkt svo vel sé,“ segir Þórður. Framundan hjá Klifurfélagi ÍA er fyrsta mót Íslandsmeistaramóta- raðarinnar og fer það fram helgina 18.-19. nóvember í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA verður með keppendur í öllum yngri flokkum ásamt flokki ungmenna (U-19) kvenna. mm/þs Klifurfélag ÍA hélt Hrekkjavökumót

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.