Skessuhorn - 24.01.2018, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. JANúAR 2018 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Þarftu að láta skoða
GÆÐI neysluvatnsins
hjá þér?
Efnagreining ehf á Hvanneyri
býður upp á örverugreiningar
vatnssýna á mjög góðu verði
(aðferðafræði samþykkt af MAST
í háum sem mjög lágum styrkjum
ENSÍM - OG ELISA MÆLINGAR TÍTRANIR
LITMÆLINGAR ORKUEFNAMÆLINGAR
efnagreining@efnagreining.is sími 661 2629
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Samgöngumál á Vesturlandi
Opinn fundur um samgöngumál á Vesturlandi
Miðvikudaginn 24. janúar kl. 18:00 til 20:00
í Tónbergi, sal Tónlistarskólans á Akranesi
Fundarstjóri er Páll S. Brynjarsson
Dagskrá fundarins:
18:00 Rakel Óskarsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi
setur fundinn
18:10 Eyjólfur Árni Rafnsson formaður starfshóp um
möguleika á framkvæmdum á stofnleiðum í
nágrenni Reykjavíkur og fjármögnun þeirra
18:30 Geirlaug Jóhannsdóttir sveitarstjórnarfulltrúi
og formaður byggðarráðs Borgarbyggðar
18:50 Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ
19:05 Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra
19:25 Opnað fyrir umræður í sal
19:50 Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á
Akranesi slítur fundi
Boðið verður upp á súpu og
hressingu þegar fundi lýkur.
Nánari upplýsingar og skráning á fundinn má nálgast á
vef Akraneskaupstaðar, www.akranes.is. Erum einnig
á facebook – Fundur um samgöngumál á Vesturlandi.
Þriðjudaginn 16. janúar síðastliðinn
var endanlega gengið frá samein-
ingu hestamannafélaganna Faxa og
Skugga. Þá um kvöldið var haldinn
sameiginlegur framhaldsaðalfund-
ur beggja félaganna þar sem ný lög
voru samþykkt og kosið í stjórn og
nefndir nýs félags. Efnt var til raf-
rænnar kosningar um nafn á nýja fé-
lagið. Hægt var að kjósa um nöfn-
in Borgfirðingur, Taktur, Fjöður,
Skeifa og Glampi. Á fyrsta stjórn-
arfundi á mánudagskvöldið var ljóst
að Hestamannafélagið Borgfirðing-
ur varð hlutskarpast í kosningunni,
hlaut 41,67% atkvæða, en næst kom
Hestamannafélagið Taktur. 156
manns kusu í tillögu um nafn, en
320 höfðu atkvæðisrétt.
Á stofnfundinum í síðustu viku
var Þórdís Arnardóttir kosin fyrsti
formaður Hestamannafélagsins
Borgfirðings. Með henni í stjórn
eru: Haukur Bjarnason, Marteinn
Valdimarsson, Reynir Magnússon,
Sigurþór Óskar Ágústsson, Björg
María Þórsdóttir, Guðrún Fjeldsted
og Kristján Gíslason.
„Það er ætlun nýrrar stjórnar að
ganga rösklega til verka, bæði hvað
varðar hin praktísku atriði samein-
ingarinnar og eins að því að efla
félagslega þáttinn, ekki hvað síst
með öflugu æskulýðsstarfi. Að-
staða félagsins til mótahalds og ann-
ars félagsstarfs er með því sem best
gerist og fjárhagsstaða er góð. Það
er von okkar, og raunar vissa, að
hér hafi verið tekið framfaraspor í
félagsstarfi hestamanna. Borgfirsk-
ir hestamenn koma nú sameinaðir
fram undir einu merki og öflugri en
nokkru sinni fyrr,“ segir í tilkynn-
ingu frá stjórn hins nýja félags. Nú
er unnið að stofnun Facebook síðu
og nýrrar heimasíðu fyrir Hesta-
mannafélagið Borgfirðing.
mm
Sameinað félag heitir Hesta-
mannafélagið Borgfirðingur
Svipmynd frá upphafi stofnfundar félaganna.
Alls söfnuðust rúmlega 2,1 milljón
króna í minningarsjóð Arnars Dórs
Hlynssonar, ungs Skagamanns
sem lést langt fyrir aldur fram í
september síðastliðnum. Sjóður-
inn var stofnaður af fyrirtækinu
Sansa, árgangi 1979 á Akranesi og
Íþróttabandalagi Akraness. Það
var Þórður Már Gylfason í Sansa
sem hratt söfnuninni formlega af
stað fimmtudaginn 11. janúar með
áskorunum á Facebook. Þar að
auki hét hann því að Sansa myndi
láta 750 krónur af hverjum matar-
pakka sem pantaður var fyrir vik-
una á eftir renna í sjóðinn.
Þegar búið var að taka saman
öll framlög fyrirtækja og einstak-
linga og gera upp Facebook-leik-
inn stóð sjóðurinn í 2.127.250
krónum. Þórður afhenti afrakst-
ur söfnunarinnar í húsnæði Sansa
á laugardaginn. Hann kvaðst hafa
fundið fyrir mikilli samstöðu með-
al Skagamanna við söfnunina. Hún
hafi farið langt fram úr björtustu
vonum og kvaðst hann fullviss þess
að peningarnir myndu nýtast til
góðra verka.
Helga Sjöfn Jóhannesdóttir, for-
maður ÍA, tók við ávísuninni fyr-
ir hönd þeirra aðildarfélaga sem
njóta munu góðs af í framtíðinni.
Þakkaði hún stofnendum sjóðs-
ins fyrir framtakið og bar þeim
þakklæti þeirra aðildarfélaga sem
sjóðnum er ætlað að styrkja í
framtíðinni. Þórður bætti því við
að stjórn minningarsjóðs Arnars
Dórs hyggðist úthluta lágum upp-
hæðum fyrst um sinn með það að
markmiði að efla sjóðinn án þess
að ganga á höfuðstólinn.
kgk
Rúmar tvær milljónir í
minningarsjóð Arnars Dórs
Þórður Már Gylfason í Sansa afhenti Helga Sjöfn Jóhannesdóttur, formanni ÍA, afrakstur söfnunarinnar í húsnæði Sansa sl.
laugardag. Ljósm. ÍA.