Skessuhorn - 24.01.2018, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 24. JANúAR 201820
Feðgarnir Árni Ingvarsson á Skarði
í Lundarreykjadal og tveir sona
hans, Hjálmur og Þorvaldur, tóku
í haust í gagnið nýja skemmu þar
sem þeir reka fyrirtækið Búhag ehf.
Skemman er rúmgóð, um 450 fer-
metrar að flatarmáli og keypt frá
Landstólpa. Aðspurðir láta þeir vel
af verkefnastöðunni en þeir hafa
á undanförnum árum tekið að sér
fjölbreytt verk. Töluvert hefur ver-
ið að gera við járnsmíðar í verkefn-
um sem tengjast stækkun og fjölgun
ferðaþjónustufyrirtækja og nefna
þeir sem dæmi Fosshótel Reykholti.
Einnig hafa þeir unnið smærri verk
fyrir Lava-Hótel Varmalandi og
Krauma við Deildartunguhver. Þá
hefur á liðnum árum verið endur-
nýjuð hitaveitan á bæina í Lundar-
reykjadal og hefur stór hluti þeirr-
ar vinnu hvílt á þeirra herðum. Auk
ýmissa viðgerða segja þeir fjöl-
breytt verkefni önnur. Til dæm-
is hafi þeir framleitt mikið af pípu-
hliðum fyrir Vegagerðina, handrið
við stiga og innréttingar í gripahús.
Þeir feðgar segja að svipað mikið af
verkefnum þeirra komi í kjölfar til-
boða sem þeir gera eða verðhug-
mynda, en auk þess taka þeir að sér
verk í tímavinnu.
Vonað í þrjátíu ár að
afkoman batni
Um 240 kindur eru á Skarði og láta
þeir feðgar vel af því að hafa kindur
samhliða rekstri smiðjunnar. „Af-
koman af búrekstrinum er náttúr-
lega ekkert sérstök, en alltaf stend-
ur maður í voninni að hún fari að
lagast. Allavega man ég ekki eftir
öðru en hafa vonað það undanfar-
in 30 ár að nú taki landið að rísa.
En auðvitað væri maður ekki að
þessu nema af því við höfum gaman
að skepnum. Kindurnar nýta auk
þess landið og halda því snyrtilegu.
Það er fátt leiðinlegra en illa hirt
land og sinugróin tún vegna þess
að skepnur eru ekki lengur til stað-
ar til að halda gróðrinum hæfilega
niðri,“ segir Árni.
Bæta nú við réttingum
og bílasprautun
Þorvaldur Árnason er lærður vél-
virki og hefur nú í nokkur ár starfað
með föður sínum við búið og smíð-
arnar. Nú hefur Hjálmur bróðir
hans bæst í hópinn með þeim feðg-
um, en hann er lærður bílasmið-
ur og bílamálari. Búið er að kaupa
fullbúinn sprautuklefa og réttinga-
bekk og koma tækjunum fyrir í nýja
húsinu og stutt í að fyrsti bíllinn fari
inn í réttingu og sprautun hjá Bú-
hag. Þriðji sonur Árna er svo Snæ-
björn en hann er búsettur í Grund-
arfirði. Eiginkona Árna og móðir
bræðranna, Ágústa Þorvaldsdótt-
ir bóndi og kennari, lést sumarið
2015 eftir erfið veikindi.
Verulega bætt aðstaða
Árni segir að líkja megi nýja hús-
inu við byltingu, í samanburði við
um hundrað fermetra skemmu
sem hýst hefur starfsemina fram til
þessa. „Ég er auk þess mjög ánægð-
ur með viðskiptin við Landstólpa,
bæði gæðin á húsinu og verð. Ég
réði Kolbein Magnússon húsasmið
í Stóra-Ási sem byggingastjóra,
hann sá um uppsteypu sökkla og
plötu, Landstólpi sendi reisinga-
flokk og Þorvaldur og mágur minn
sá um rafmagnið. Hiti er í gólfi og
lýsingin góð sem er mikilvægt þeg-
ar mikið er unnið við svona vinnu.
Við erum því mjög hamingjusamir
með þessa aðstöðu og það er munur
að geta alltaf látið sig hlakka til að
mæta í vinnuna.“ Aðspurður segir
Árni að kostnaður við bygginguna
hafi orðið á áætlun, en húsið kostar
um 40 milljónir króna auk vinnu-
framlags þeirra feðga.
Gott mannlíf
Þeir feðgar eru sammála því að
helsti ókostur við að reka vélsmiðju
til sveita sé skortur á þriggja fasa raf-
magni. „Það háir ýmissi starfsemi
verulega þegar slíkt vantar og er
örugglega eitt stærsta byggðamál-
ið nú. Rarik útvegaði okkur í Búhag
þó svokallaðan „hrút“ sem umbreyt-
ir rafmagninu þannig að hægt er að
nota vélar sem framleiddar eru fyr-
ir þrjá fasa,“ segir Árni. Þeir feðgar
segja að það séu einkum kúabændur
sem fara illa út úr því að þriggja fasa
rafmagn er ekki til staðar. Ýmislegt
annað horfi hins vegar til betri veg-
ar. „Nú er til dæmis verið að leggja
nýjan veg neðst í Lundarreykja-
dal að sunnanverðu og það verður
mikill munur fyrir okkur sem hér
búum. Það er í raun að flestu leyti
gott að reka fyrirtæki hér. Við höf-
um hitaveitu, vegirnir eru að batna
og mannlífið er eins og allir vita frá-
bært. Verkefnastaða okkar er fín og
því erum við bara býsna bjartsýnir
nú í upphafi árs,“ segja þeir feðgar
Árni, Valdi og Hjálmur á Skarði.
mm
Feðgar bæta aðstöðuna og auka starfsemina
Feðgarnir Árni, Hjálmur og Þorvaldur reka Búhag ehf. á Skarði.
Nýja skemman var byggð á mel skammt frá bæjarhúsunum á Skarði.
Sama dag og blaðamaður kom við á Skarði kom Helgi Kristjánsson
frá HSK krönum með tíu tonna klippivél sem Skarðsfeðgar keyptu
notaða austur á Hvolsvelli. Þrátt fyrir að vera á bíl með krana og
löngum tengivagni var bíllinn við að komast allur þvert inn í húsið.
Steypt var í sökkla í lok apríl á liðnu ári en húsið var fullbúið í haust.
Ljósm. Búhagur.
Á þessari drónamynd sést hvenær verið að var leggja steypuna í
plötu nýju skemmunnar. Ljósm. Búhagur.
Grillvagn sem Búhagur smíðaði fyrir Landssamtök sauðfjárbænda/
markaðsráð kindakjöts 2010. Í honum er hægt að heilgrilla tvo
skrokka í einu. Ljósm. Búhagur. Fimm ristahlið í framleiðslu. Ljósm. Búhagur. Rúlluvagn úr smiðju þeirra feðga. Ljósm. Búhagur.