Skessuhorn - 13.06.2018, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Íslandsmeistaramót öldunga og
unglinga í kraftlyftingum fór fram á
Akranesi um helgina. Mótið var fá-
mennt en góðmennt og góð stemn-
ing meðal keppenda og áhorfenda,
að því er fram kemur á Facebook-
síðu Kraftlyftingafélags Akraness.
Í bekkpressu í Junior flokki mætti
Svavar Örn Sigurðsson úr Kraftlyft-
ingafélagi Akraness til leiks. Hann
lyfti 155 kg sem er hans besta lyfta
til þessa og sigraði í greininni.
Fannar Björnsson úr Kraftlyft-
ingafélagi Akraness keppti í kraft-
lyftingum í Subjunior flokki. Hann
lyfti 150 kg í hnébeygju, 90 kg í
bekkpressu og 180 kg í réttstöðu.
Samanlagt 420 kg og 265,2 Wilks-
stig.
María Guðsteinsdóttir úr Ár-
manni mætti sterk til leiks í Masters
I flokki -57 kg. Hún lyfti 137,5 kg
í hnébeygju sem er nýtt Íslandsmet
í Masters I flokki. Í bekkpressunni
setti hún einnig nýtt Íslandsmet
með lyftu upp á 77,5 kg og endaði
svo daginn á að setja Íslandsmet í
réttstöðu í opnum flokki með því
að lyfta 168,5 kg. Samanlagt var
María því með 383,5 kg, sem er
nýtt Íslandsmet í Masters I flokki
og 445 Wilksstig.
Í karlaflokki sigraði Guðfinn-
ur Snær Magnússon úr Breiða-
bliki. Hann lyfti 350 kg í hnébeygj-
unni, 250 kg í bekkpressu og 275
kg í réttstöðu. Samanlagt 875 kg og
486,5 Wilksstig. kgk
Keppt í kraftlyftingum og
bekkpressu á Akranesi
Keppni í fullum gangi. Ljósm. Kraftlyftingafélag Akraness.
Ísland tók toppsætið í sínum riðli
þegar það vann góðan og mikilvæg-
an sigur á Slóvenum 2-0 í undan-
keppni HM kvenna á Laugardals-
velli á mánudagskvöld. Með sigrin-
um eru stelpurnar komnar upp fyr-
ir Þýskaland í riðlinum sem situr í
öðru sæti með 15 stig beint á eftir
Íslandi sem er með 16 stig eftir sig-
urinn.
Tveir lykilmenn voru ekki í lið-
inu, Sara Björk Gunnarsdóttir fyrir-
liði var fjarverandi vegna meiðsla á
hásin og Dagný Brynjarsdóttir ólétt.
Það kom ekki að sök þar sem aðr-
ar fengu að spreyta sig og stíga upp
fyrir vikið. Fyrri hálfleikur var held-
ur hægur og það gekk erfiðlega að
komast í gegnum slóvensku vörnina.
Það var ekki fyrr en á 54. mínútu að
fyrsta mark leiksins kom og var það
Glódís Perla Viggósdóttir sem skor-
aði eftir góða sendingu frá Hallberu
Guðnýju Gísladóttur. Stuttu seinna
var hún svo aftur á ferðinni þegar
hún skallaði boltanum í netið eftir
hornspyrnu á 67. mínútu. Þær slóv-
ensku gerðu lítið til að laga stöðu
sína það sem eftir var af leiktíma og
íslenskur sigur því staðreynd.
Stelpurnar eiga tvo leiki eftir í
undanriðli og verður næsti leikur á
móti sterku liði Þýskalands 1. sept-
ember sem verður algjör úrslitaleik-
ur um toppsætið í riðlinum. Heims-
meistaramótið sjálft fer svo fram í
Frakklandi á næsta ári.
glh
Ísland í efsta sætið
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði
bæði mörk Íslendinga í leiknum gegnu
Slóvenum. Ljósm/ Wikipedia.
Kári gefur hvergi eftir í toppbar-
áttu 2. deildar karla í knattspyrnu.
Liðið vann á sunnudag 3-2 sigur á
Leikni frá Fáskrúðsfirði í miklum
baráttuleik í Akraneshöll.
Gestirnir höfðu undirtökin í
upphafi leiks og komust yfir strax
á 5. mínútu með marki frá Degi
Inga Valssyni. Eftir því sem leið á
komust Káramenn betur og betur
inn í leikinn. Þeir sóttu æ stífar og
tókst að lokum að jafna metin á
44. mínútu. Ragnar Már Lárusson
fékk þá boltann í fætur og renndi
honum í markið af mikilli yfirveg-
un. Staðan í hálfleik var því jöfn,
1-1.
Káramenn fengu síðan óska-
byrjun í síðari hálfleik. Þeir fengu
aukaspyrnu rétt utan vítateigs.
Páll Sindri Einarsson stillti bolt-
anum upp, lyfti honum yfir vegg-
inn og í netið. Glæsilegt mark hjá
Páli Sindra og hans fjórða auka-
spyrnumark í sumar.
Káraliðið féll aðeins til baka eft-
ir markið en höfðu áfram góð tök
á leiknum. Þeir bættu þriðja mark-
inu við á 86. mínútu þegar Gylfi
Brynjar Stefánsson skoraði eftir
laglega sókn. Staðan orðin 3-1 og
lítið eftir af leiknum. En gestirnir
neituðu að gefast upp og náðu að
minnka muninn á lokamínútunni
með marki frá Povilas Krasnovsk-
is. Darius Jankauskas var síðan
rekinn af velli í liði gestanna eft-
ir hættulega tæklingu í uppbótar-
tíma. Skömmu síðar var flautað til
leiksloka og 3-2 sigur Kára stað-
reynd.
Kári situr í þriðja sæti deildarinn-
ar með 15 stig, jafn mörg og Þrótt-
ur V. í sætinu fyrir ofan og einu
stigi á eftir toppliði Aftureldingar,
sem er einmitt næsti mótherji liðs-
ins. Leikur Kára og Aftureldingar
fer fram í Mosfellsbæ á morgun,
fimmtudaginn 14. júní. kgk
Gott gengi Kára heldur áfram
Káramenn fyrir leikinn gegn Leikni F. Ljósm. Knattspyrnufélagið Kári.
Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana
í vináttulandsleik í knattspyrnu á
fimmtudagskvöld. Ísland komst
yfir strax á 6. mínútu þegar Kári
Árnason skoraði með laglegum
skalla eftir hornspyrnu. Ísland
stýrði leiknum án þess þó að skapa
sér mörg færi í fyrri hálfleiknum.
Það var ekki fyrr en á 40. mínútu
að Íslendingar fengu almennilegt
færi á nýjan leik. Birkir Bjarnason
slapp einn í gegn eftir sendingu
Gylfa Þórs Sigurðssonar. Birkir
skaut að marki en Lawrence Zigi í
marki Gana varði skotið beint fyr-
ir Alfreð Finnbogason sem skallaði
hann í opið markið. Ísland var því
2-0 yfir í hálfleik.
Síðari hálfleikur fór frekar ró-
lega af stað en eftir því sem leið á
fóru Ganverjar að komast betur og
betur inn í leikinn. Þeir minnkuðu
muninn á 66. mínútu. Eftir horn-
spyrnu féll boltinn fyrir Kasim
Nuhu sem þrumaði honum upp
í samskeytin. Ganverjar jöfnuðu
síðan á 87. mínútu eftir ágætan
samleik. Þeir létu boltann ganga í
kringum teiginn þar til þeir fundu
Thomas Partey óvaldaðan í teign-
um sem þurfti ekki að hafa mikið
fyrir því að leggja boltann í netið.
Lokatölur urðu því 2-2.
Leikurinn var síðasti undirbún-
ingsleikur íslenska landsliðsins fyr-
ir HM í Rússlandi sem hefst næsta
fimmtudag. Liðið leikur sinn fyrsta
leik sinn viku síðar, laugardaginn
16. júní. Þá mætir Ísland liði Arg-
entínu með Lionel Messi í broddi
fylkingar.
kgk
Jafntefli við Gana í síðasta leik fyrir HM
Íslensku strákarnir fagna marki Kára Árnasonar gegn Gana. Ljósm. þe.
Skallagrímur hefur endurnýjað
samning sinn við bræðurna Kri-
stófer og Guðbjart Mána Gíslasy-
ni fyrir komandi tímabil í Dominos
deildinni. Kristófer spilaði stórt
hlutverk í að hjálpa liðinu upp úr 1.
deild og skoraði 13,7 stig að meðal-
tali og reif niður 4,8 fráköst. Máni
var hins vegar ekki eins mikið í el-
dlínunni með meistaraflokki en var
þó mikilvægur í liði unglingaflok-
ks sem komst í 8-liða úrslit á Íslan-
dsmótinu síðasta tímabil.
Það má því segja að leikman-
nahópur Skallagríms fyrir Domi-
nos deildina næsta vetur sé hægt og
rólega að taka á sig heildarmynd.
glh
Leikmannamál skýrast
enn frekar hjá Skallagrími
Bræðurnir Máni og Kristófer hafa endurnýjað samning sinn við Skallagrím.