Skessuhorn - 11.07.2018, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 201826
MT: Stefán Gísli með verðlauna-
gripinn síðastliðinn sunnudag.
Hvað gerir þú þegar það er rok
og rigning úti?
Spurni g
vikunnar
Saga Nótt Friðriksdóttir
Er inni að leika.
Jóna Björk Guðmundsdóttir
Ég „chilla“ inni.
Þóra Kristín Ríkharðsdóttir
Ég er inni í símanum.
Hafrún Tinna Hafsteinsdóttir
Er heima að „chilla“.
Gréta Jóhannesdóttir
Hef það kósý.
(spurt á Akranesi)
Íslendingar eru í auknum mæli
farnir að liggja í köldum körum sem
virðast fylgja öllum sundlaugum í
dag eða stunda sjósund við strend-
ur landsins í góðum félagsskap.
Þeir sem stunda þetta sport reglu-
lega vilja meina að þetta sé gott fyr-
ir heilsu og sál á meðan aðrir hrista
hausinn við tilhugsunina að sjokkera
líkamann með köldu vatni af fúsum
vilja. Borgnesingarnir Guðný Jóna
Jóhannsdóttir og Þuríður Helga-
dóttur kunna vel við sjósundið og
grípa óspart tækifærin til að skella
sér í sjóinn. „Maður verður fullur af
orku eftir smá stund í sjónum, það
er erfitt að lýsa tilfinningunni. Þú
gætir farið heim til þín og málað
allt húsþakið, orkan er svo mikil,“
segir Guðný Jóna um tilfinninguna
sem hún fær hverju sinni eftir dýfu
í sjóinn.
Fyrstu skiptin í sjónum
Það var á árgangsmóti á Akra-
nesi fyrir sex árum sem Guðný
Jóna prófaði að fara í sjóinn í fyrsta
skiptið. „Ég var búin að ákveða fyr-
ir árgangsmótið að taka þátt í öllu
sem var búið að skipuleggja. Ein
af bekkjarsystrum mínum stund-
aði sjósund reglulega og því var
þetta einn af dagskrárliðum móts-
ins. Ég var mjög spennt að prófa og
var búin að girnast þetta í einhvern
tíma. Eftir fyrsta skiptið var ekki
aftur snúið,“ segir Guðný en hún er
ættuð frá Skaganum og lék sér mik-
ið á uppeldisárunum við Langasand.
„Það var alltaf verið að sulla eitt-
hvað í sjónum, maður ólst nánast
upp í fjörunni á Akranesi. Stundum
fór maður niður á Langasand með
vindsæng og stundum var maður
næstum drukknaður í Krókalóni,“
segir hún hlæjandi og hristir haus-
inn. „Þetta blundar í manni.“
Þuríður prófaði sjósund fyrst fyr-
ir rúmum fimm árum síðan. „Ég
var í göngu á Hesteyri þar sem eng-
in baðaðstaða var til staðar. Þá var
annað hvort að vera skítugur í fjóra
daga eða láta sig hafa það og baða
sig í sjónum sem við svo gerðum.
Ekki nóg með það þá fórum við eft-
ir sjóbaðið í Hesteyraránna til að
skola saltið af okkur og það var auð-
vitað ennþá kaldara,“ segir Þuríður
hlæjandi og bætir við. „Maður fann
svo daginn eftir hvernig líkaminn
vann öðruvísi. Það var minni þreyta
til staðar og minna um verki.“
Aðstæður erfiðar við
Borgarnes
Guðný og Þuríður eru báðar bú-
settar í Borgarnesi en fara oft til
Akraness í sjósund þar sem aðstæð-
ur þar eru betri og minna um sterka
strauma sem Borgarfjörðurinn er
þekktur fyrir. „Því miður, þá eru að-
stæðurnar hérna í Borgarnesi ekki
nóg og góðar til sjósunds. Mikl-
ir straumar í firðinum og leirinn
gerir erfitt fyrir. Það þarft til dæm-
is alltaf að vera flóð ef við förum í
Borgarfjörðinn en stundum er það
ekki einu sinni nóg,“ segja vinkon-
urnar og minnast þess að hafa synt
einn daginn frá Englendingavík út
í Litlu Brákarey og náð til botns á
leiðinni þrátt fyrir háflóð.
Mínúta á móti gráðu
„Þetta getur verið rosa átök fyrir
líkamann, sérstaklega þegar þú ferð
í fyrsta skiptið. Maður hálfpartinn
missir andann,“ segir Guðný. „Það
er erfiðast þegar vatnið fer upp fyr-
ir brjóstkassann, svo venst þetta.
Maður þarf bara að passa sig að vera
ekki of lengi í senn,“ bætir Þuríð-
ur við. En hvað er að vera of lengi í
sjónum? „Það er einstaklingsbund-
ið. Oft er talað um mínútu á móti
gráðu. Ég fór til dæmis um dag-
inn þegar sjórinn var níu gráður, þá
var ég tíu mínútur í sjónum. Þeg-
ar það er gott veður þá getur maður
leyft sér að vera örlítið lengur,“ seg-
ir Guðný. „Þetta er vissulega sjokk í
hvert skipti en um leið og maður er
búin að jafna sig ofan í sjónum þá er
þetta svo gott. Maður nær alveg að
verkjastilla líkamann. Þetta er svo
hressandi,“ segir Þuríður.
Alltaf kalt sama hvernig
veðrið er
Eflaust eru einhverjir lesend-
ur Skessuhorns forvitnir um sjó-
sundsiðkun og velta fyrir sér hvar
og hvenær sé gott að byrja. „Fólk
á bara að drífa sig af stað,“ segja
þær einróma. „Flestir gera þau
mistök að ætla að byrja að sumri
til og heldur að það sé eitthvað
auðveldara vegna þess að það er
hlýrra úti,“ segir Guðný. „Það er
bara ekkert þannig. Það er alltaf
jafn kalt að fara ofan í sjóinn sama
hversu kalt er, sjokkið er eins. Mér
þykir meira að segja meira kikk að
fara að vetri til þegar það er snjór
úti, það er ógeðslega skemmti-
legt,“ segir hún brött. „Fólk er
alltaf velkomið að koma og prófa.
Hjá Sjóbaðsfélagi Akraness er vel
tekið á móti nýliðum og þeim
boðið að fá lánaða hanska og skó
þegar þeir prófa í fyrsta skiptið.
Hægt er að fara á Facebook síðu
félagsins, Sjóbaðsfélag Akraness
og skoða tímatöfluna. Enginn fer
einn í sjóinn,“ bætir Þuríður við
að endingu.
glh
Hér má sjá vinkonurnar ganga í sjóinn sem var um níu gráðu heitur.
„Þú gætir farið heim til þín og málað húsþakið“
Vinkonur úr Borgarnesi segja frá sjósundi og kostum þess
Þuríður og Guðný Jóna í Brákarey í Borgarnesi rétt áður en þær fóru í sjóinn.
Aðstæður til Sjósunds við Borgarnes eru ekki þær ákjósanlegustu.