Skessuhorn - 01.08.2018, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 31. tbl. 21. árg. 1. ágúst 2018 - kr. 750 í lausasölu
arionbanki.is
Það tekur aðeins örfáar mínútur
að skrá sig í viðskipti hjá Arion banka.
Af því að okkar lausnir snúast um
tíma og þægindi.
Þægilegri
bankaþjónusta
gefur þér tíma
20 ÁR
Lúsina burt!
Augndropar!
Annir í heyskap
um allt Vesturland
Bændur á vestanverðu landinu
hafa ekki átt sjö dagana sæla í sum-
ar. Erfiðlega hefur gengið að heyja
fyrir skepnurnar vegna vætutíðar
sem verið hefur nær óslitið í júní
og júlí. Veður var þó skaplegra í
síðustu viku og sólin skein nokkra
daga í röð. Bændur um allt Vestur-
land nýttu tækifærið, slógu tún sín
og söfnuðu heyi fyrir skepnurn-
ar. Þar sem blaðamaður ferðað-
ist um nær endilangann landshlut-
ann síðdegis á föstudag, frá Akra-
nesi að Reykhólum, var á flestöll-
um bæjum annað hvort flatt á tún-
um eða verið að heyja. Heyskap-
ur stóð víða yfir fram yfir helgi,
þar sem hann hékk þurr. Bænd-
ur sem blaðamaður ræddi við bú-
ast þó ekki við sérstaklega góðum
heyjum, enda grasið orðið úr sér
sprottið þegar loksins var hægt að
slá það.
kgk
Hér heyja bændur
á Innnesi undir
Akrafjalli að morgni
mánudags.
Ljósm. áþ.
Ástand Vesturlandsvegar um Kjalar-
nes hefur verið mikið í umræðunni
undanfarin misseri, einkum sunn-
arlega á Vesturlandi. Á dagskrá er
að breikka veginn í 2+1 en þang-
að til þær framkvæmdir hefjast þarf
að halda veginum við. Einkum eru
það hjólför vegarins, sem eru orðin
djúp á löngum köflum, sem vegfar-
endur telja að skapi hættu við akst-
ur. Nokkrir vegfarendur, sem sett
hafa sig í samband við Skessuhorn,
segjast langþreyttir á að bíða eftir
viðhaldi vegarins.
En þeir þurfa ekki að bíða mik-
ið lengur. Viðhald Vesturlandsveg-
ar um Kjalarnes er á dagskrá um
miðjan ágústmánuð. Þetta segir G.
Pétur Matthíasson, forstöðumaður
samskiptadeildar Vegagerðarinn-
ar, í samtali við Skessuhorn. Hvað
varðar breikkun vegarins segir
hann þær framkvæmdir á döfinni
á næsta ári. „Við reiknum með að
vinna við 2+1 veg hefjist á næsta
ári, með fyrirvara um fjárveitingar
á fjárlögum og nýja samgönguáætl-
un sem boðuð er í haust,“ segir G.
Pétur Matthíasson.
kgk
Viðhald framundan
á Kjalarnesi
Börnin skemmtu sér
konunglega í froðurenni-
brautinni sem slegið var
upp á bæjarhátíðinni Á
góðri stund sem haldin var
í Grundarfirði um helgina.
Sjá nánar bls. 21.
Ljósm. tfk.