Velferð - 01.06.2019, Síða 3
Velferð 3
Frá ritstjóra
Í íslenskri orðabók er sagt að málgagn sé: „blað eða rit sem
túlkar málefni eða málstað.“ Þetta hefur verið hlutverk Velferðar
í þrjá áratugi. Fljótlega eftir stofnun Landssamtaka hjarta-
sjúklinga, sem nú heita Hjartaheill, kom í ljós að nauðsynlegt
var að koma skilaboðum til félagsmanna og landsmanna allra.
Skilaboðum um störf og hlutverk LHS, sem var ærið þýðingar-
mikið á fyrstu áratugunum, þegar verið var að vinna að því að
fá hjartaaðgerðir fl uttar hingað heim til Íslands. Það tókst og
þar með skapaðist næsta verkefni; að safna peningum til þess að
auðvelda kaup á nauðsynlegum tækjabúnaði á spítölunum. Það
þurfti líka að ölga félagsmönnum og auglýsa félagsstarfi ð, sem
þá var í miklum blóma. Velferð hefur verið vettvangur fyrir allt
þetta og miklu meira.
Stjórnendur hins unga Landssambands hjartasjúklinga áttuðu
sig snemma á þessu, en töldu bolmagnið ekki fyrir hendi til að
he a sjálfstæða útgáfu. Þá naut LHS velvildar SÍBS, og pistlar,
fréttir og tilkynningar voru skrifaðir í málgagn SÍBS, sem fyrst
var blaðið Reykjalundur, sem kom út einu sinni á ári. Fljótlega
eftir það tóku SÍBS fréttir við, og var ætlunin að gefa þær út
nokkrum sinnum á ári. Einnig þar voru fréttir frá LHS vel-
komnar og birtust þar í nokkur ár.
Árið 1989 var ákveðið að he a sjálfstæða útgáfu og fyrsta
tölublað Velferðar leit dagsins ljós. Blaðið reyndist ekki einungis
vera gott málgagn og kærkomin tenging við félagsmenn, heldur
líka drjúg tekjulind fyrir samtökin, öfugt við það sem talið hafði
verið. Það kom nefnilega í ljós að Landssamtök hjartasjúklinga
og árangursrík barátta þeirra fyrir bættri aðstöðu í heilbrigð-
iskerfi nu naut mikils stuðnings og velvilja í samfélaginu. Þess
vegna varð auðvelt að safna peningum með styrktarlínum og
auglýsingum. Útgáfa blaðsins hefur staðið undir sér öll þessi ár
og frekar styrkt rekstur Hjartaheilla en að vera baggi á honum.
Það er nokkur vinna að gefa út blöð. Allan þennan tíma hafa
valist mjög hæfi r menn til að ritstýra blaðinu og auglýsingaöfl un
hefur verið á hendi fagfólks, nú mörg síðustu ár í höndum Öfl -
unar, sem hafa unnið gott starf í þágu blaðsins.
Í vaxandi umróti nútímans, heimi tölvutækni, margmiðlunar,
snjallsíma og ótal nýjunga á þessu sviði má það teljast gott að
geta haldið sjó með gamaldags og góðan prentmiðil. Mat okkar
á þessu er, að það er enn þörf fyrir blaðið Velferð og í samræmi
við það verður starfað enn um sinn. Hvort útgáfutíðni, blaðsíð-
u öldi eða önnur atriði munu breytast verður tíminn að leiða
í ljós. Velferð stendur enn keik í umróti ölmiðlunar, komin á
miðjan aldur og lætur engan bilbug á sér fi nna.
Til hamingju Hjartaheill með málgagnið ykkar!
Pétur Bjarnason.
Velferð í þrjátíu ár
Velferð
málgagn og fréttabréf Hjartaheilla.
Útgefandi: Hjartaheill, Síðumúla 6,
108 Reykjavík, sími: 552 5744.
Heimasíða Hjartaheilla: hjartaheill.is
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Pétur Bjarnason.
Ritnefnd: Ásgeir Þór Árnason,
Sveinn Guðmundsson
Prentun og umbrot: GuðjónÓ
Forsíðumynd: 1. tbl. Velferðar 1989
Upplag: 7.100
Aðsendar greinar eru á ábyrgð höfunda.
Velferðarráðuneytið styrkir starfsemi Hjartaheilla.
Efni blaðsins
3 Frá ritstjóra
4 Velferð geymir sögu okkar
5 Velferð í þrjátíu ár
8 Endurlífgun
12 Við getum öll bjargað lífi
15 Einkenni hjartasjúkdóma önnur hjá konum en körlum
19 Af fréttavef Landspítala
20 Rafrettur – eru bragðefnin varasöm?
21 Heimsleikar líffæraþega
23 Golfmót Hjartaheilla 2019
25 Salt: Ertu að fá of mikið af því?
27 Næring eldra fólks sem er við góða heilsu