Velferð - 01.06.2019, Síða 12
12 Málgagn Hjartaheilla
Alþjóða endurlífgunardagurinn
(„Restart a Heart Day“) er haldinn um allan heim 16.
október ár hvert. Tilgangurinn er að vekja athygli á mikil-
vægi þess að allir læri grunnendurlífgun og geti brugðist
við þegar á þarf að halda.
Í yfirlýsingu sem Evrópuþingið sendi frá sér 2012 var kall-
að eftir verkefnum sem stuðlað gætu að aukinni lifun eftir
skyndilegt hjartastopp. Meðal þeirra verkefna var að auka
þjálfun og kunnáttu almennings í grunnendurlífgun,
ölga sjálfvirkum hjartastuðtækjum á opinberum stöðum,
breyta löggjöfum þar sem þörf krafði, til að öðrum en heil-
brigðisstarfsfólki væri leyfi legt að he a meðferð og nota
hjartastuðtæki, og vekja almenning til vitundar um mál-
efnið. Endurlífgunardagurinn sameinar öll þessi verkefni
en herferðin var sett á laggirnar af Evrópska endurlífgunar-
ráðinu (ERC) 16. október 2013 sem íslenska endurlífgun-
arráðið er aðili að.
„Við getum öll bjargað lífi “
var yfi rskrift alþjóðlega endurlífgunardagsins, 16. október
árið 2018. Það ár var dagurinn í fyrsta sinn haldinn hátíðleg-
ur á heimsvísu og tóku allir samstarfsaðilar Alþjóða endur-
lífgunarráðsins (ILCOR) þátt í verkefninu. Alþjóða endurlíf-
gunarráðið samanstendur af endurlífgunarráðum um allan
heim, þar á meðal þeim evrópska, ameríska, kanadíska,
ástralska auk endurlífgunarráðs Asíu, Nýja Sjálands og Suð-
ur-Afríku. Verkefnið, og herferðin sem því fylgir, hefur því
vaxið mikið á fáum árum.
Það er til mikils að vinna, því hjartastopp utan spítala deyð-
ir þrjár milljónir manna í heiminum á ári, þar af 700.000
manns í Evrópu. Talið er að á Íslandi fari um 150 – 200
manns í hjartastopp á ári , en hjartastopp er þriðja algengasta
dánarorsökin á Vesturlöndum.
Allt að sjö af hverjum tíu hjartastoppum eiga sér stað í
heimahúsi, þar sem einhver nákominn einstaklingur verður
vitni að atburðinum í meira en helmingi tilfella. Lífslíkur
þessara einstaklinga hafa verið undir 10% í Evrópu en sú
meðhöndlun sem einstaklingur fær á fyrstu þremur til ór-
um mínúturnar eftir hjartastopp getur bætt lífslíkur hans
um allt að 50%. Lífslíkur einstaklings byggja því að miklu
leyti á því hvort einhver nálægt honum geti veitt honum
hjartahnoð og rafstuð sem fyrst.
Líklega eru fl estir einstaklingar sem fara í hjartastopp utan
spítala upphafl ega í sleglatifi eða sleglahraðtakti. Sleglatif
einkennist af hraðri og óreglulegri afskautun í hjartanu.
Hjartað missir samhæfi ngu sína og hættir að dæla blóði.
Kjörmeðferð við hjartastoppi af völdum sleglatifs er
hjartahnoð og hjartarafstuð eins fl jótt og hægt er. Með
því að he a hjartahnoð strax er blóðfl æði, og þá um leið
súrefnisfl æði, haldið við í líkamanum. Einstaklingar geta
því lifað af hjartastopp ef nærstaddir bregðast strax við á
réttan hátt á meðan sleglatif er enn til staðar. Því skiptir öllu
máli að þeir sem verða vitni að atburðinum kunni til verka,
bregðist hratt við og að alsjálfvirk hjartastuðtæki séu sem
víðast.
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir og Valgerður Hermannsdóttir
Við getum öll bjargað lífi