Velferð - 01.06.2019, Page 14

Velferð - 01.06.2019, Page 14
14 Málgagn Hjartaheilla Margir læra einnig grunnendurlífgun í tengslum við nám eða starf, þannig lærir allt björgunarsveitarfólk grunnend- urlífgun, allir atvinnubílstjórar fá kennslu tengda meira- prófi nu, sjómenn fá kennslu í Slysavarnarskóli sjómanna, margir framhaldsskólanemendur hafa val um að taka áfanga í grunnendurlífgun, margir vinnustaðir hafa kosið að senda starfsfólk sitt á slík námskeið. Þá er óupptalið allir þeir nemar í heilbrigðisfræðum og heilbrigðisstarfsfólk sem skylt er að læra grunnendurlífgun. Ætlast er til að allir sem á einhvern hátt koma að aðhlynn- ingu sjúklinga fari á slík námskeið. Áhersla er lögð á verk- legar æfi ngar og eru námskeiðin skipulögð með tilliti til þess hvers konar deild starfsmaður vinnur á og hvers konar heilbrigðisstarfsmann um er að ræða. Heilbrigðisstarfsfólk sem starfar á bráðadeildum, svo sem slysadeild, gjörgæslu, hjartadeildum, lærir sérhæfða endurlífgun, en þar eru er framkvæmd fl óknari inngrip eins og öndunaraðstoð og ly agjöf. Endurlífgunarráð Íslands hefur umsjón með öllum námskeiðum í sérhæfðri endurlífgun fullorðinna og barna á landinu. Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri, ásamt Sjúkrafl utningaskólanum, skipuleggja námskeiðin í samvinnu við endurlífgunarráð. Skoða – hringja – hnoða Líklegt er að Ísland eigi jafnvel enn eitt metið á þessum vettvangi, þ.e. að geta státað af því að eiga hæsta hlutfall almennings sem lært hefur endurlífgun. Þó þarf að hafa í huga að nauðsynlegt er að halda kunnáttunni við og fara á endurmenntunarnámskeið. Endurlífgunarráð og þeir sem lært hafa endurlífgun vilja vekja athygli og umræðu á þess- um málum og hvetja alla til að læra réttu viðbrögðin. Því alltaf er hægt að gera betur. Lærum öll endurlífgun svo við séum í stakk búin þegar á þarf að halda í þrem einföldum skrefum – Skoða – hringja – hnoða. Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir er sérfræðingur í bráðahjúkrun og starfsmaður Endurlífgunarráðs Íslands. Valgerður Hermannsdóttir er hjúkrunarfræðingur, varafor- maður Hjartaheilla og situr í Endurlífgunarráði Íslands. það skiptir öllu máli að þeir sem verða vitni að atburðinum kunni til verka bregðist hratt við og að hjartastuðtæki séu sem víðast.

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.