Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 15

Velferð - 01.06.2019, Qupperneq 15
Velferð 15 Ritstjóri Velferðar var á Bíldudal á dögunum og átti þar ágætt spjall við Nönnu Sjöfn Pétursdóttur, sem fór í hjartauppskurð fyrir tíu árum. Hér á eftir deilir hún sögu sinni með lesendum Velferðar en fyrst langar mig að segja nokkur deili á henni. Nanna Sjöfn Pétursdóttir er fædd á Patreksfi rði, en fl utti 7 ára í Hafnar örð og ólst þar upp. Hún varð stúdent frá Flensborgarskóla og útskrifaðist frá HÍ með BA próf í sálarfræði. Tók svo upp- eldis og kennslufræði og mastersnám í stjórnun menntastofnana. Eiginmaður Nönnu, Jón Rúnar Gunnarsson, sem lést árið 2012, var frá Bíldudal og þangað lá leið þeirra árið 1986. Þar ráku þau verslun um skeið með foreldrum Rúnars og samhliða því kenndi Nanna Sjöfn við grunnskólann á Bíldudal og varð síðar skólastjóri þar. Hún sat í fyrstu bæjarstjórn Vesturbyggðar eftir sameiningu  ögurra sveitarfélaga 1994 og var forseti bæjarstjórnar um nokkurt skeið. Hún var skólastjóri sameinaðs grunnskóla Vesturbyggðar í  órtán ár, en starfar nú sem fræðslustjóri og persónuverndarfull- trúi Vesturbyggðar. Gefum nú Nönnu Sjöfn Pétursdóttur orðið: Vorið 2009, en þá var ég rúmlega fi mmtug, hafði ég um langan tíma verið undir miklu álagi í starfi . Ég var þá skólastjóri Grunnskóla Vesturbyggðar, sem var með höfuðstöðvar á Patreksfi rði en undir hann heyrðu líka skólarnir á Bíldudal og Barðaströnd. Þetta kostaði ferðir um erfi ða  allavegi að vetrar- lagi og mikið samræmingarstarf. Það var mörgu að sinna, þetta var þó nokkurt álag og dagarnir gátu orðið langir. Mamma var alltaf að ýta á mig að fara í Hjartavernd og láta skoða mig, af því að það er mikil ættarsaga hjá mér um hjartveiki, pabbi dó þegar hann var sex- tíu og tveggja ára. Ég hafði ekki tekið eftir neinum sérstökum einkennum öðrum en þeim að ég var stundum dálítið móð og fannst oft eins og ég væri með þungan stein fyrir brjóstinu. Ég hugsaði svo sem ekkert út í það Einkenni hjartasjúkdóma önnur hjá konum en körlum Nanna Sjöfn Pétursdóttir á Bíldudal segir sögu sína Það varð samt úr að ég dreif í þessu vorið 2009 og fór í skoðun. Þá kom í ljós að ég var með sykursýki tvö og var send strax á bráðavakt- ina til frekari athugunar. Þar fór ég í gegn um allan pakkann, hjarta- línurit og áreynslupróf og allt þetta. Þar fékk ég í ágæta útkomu, enda kom ég alltaf vel út í öllum áreynsluprófum. Svo heyri ég að læknirinn fer í símann og hún er að tala við einhvern og ég heyri að hún segir: „Hún kemur ágætlega út úr áreynsluprófi nu og þetta lítur allt vel út, eigum við ekki bara að senda hana heim?“ Það var nefnilega alltaf sagt við mig, nánast hvar sem ég fór: „Það verður allt í lagi með þig. Þú ert ung, þú ert kona og þú hefur aldrei reykt.“ Þetta voru eiginlega lausnarorðin hvar sem ég kom. Svo kom læknirinn og fór að fylla út útskriftarpappírana. Þá segi ég við hana og ætlaði bara svona að vera svolítið fyndin: „Þú veist að ég bý fyrir vestan, á Bíldudal.“ Já, hún kannaðist við það. „Já, sérðu til, á Bíldudal erum við búin að reikna það út, að ef við fáum hjarta- áfall þar þá munum við deyja.“ „Ha?!“ segir hún alveg klumsa. „Hvað meinarðu?“ „Já, ef við fáum hjartaáfall á Bíldudal þá er það of langt frá Patreksfi rði, þar sem heilbrigðisþjónustan og starfsfólkið er, til að bráðahjálp náist í tæka tíð. Það gæti sloppið á Tálknafi rði, en til Bíldudals tekur of langan tíma að komast, sérstaklega á veturna, svo það næst bara ekki ef menn fá hjartaáfall á Bíldudal.“ Nanna Sjöfn á vinnustað sínum á Bíldudal.

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.