Velferð - 01.06.2019, Side 19

Velferð - 01.06.2019, Side 19
Lykilvöldin færði til  ármálaráðherra Erlingur Ásgeirsson, stjórnarformaður Nýs Landspítala ohf. eftir ávarp Gunnars Svarssonar, framkvæmdastjóra NLSH, en á könnu þess fyr- irtækisins er Hringbrautarverkefnið þar sem meginverkið er að byggja nýjan meðferðarkjarna spítalans. Því næst afhenti Bjarni Benediktsson  ármálaráðherra Svandísi Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra lyklavöldin sem aftur afhenti þau forstjóra spítalans, Páli Matthíassyni. Landspítala hefur verið falið að reka sjúkrahótelið næstu tvö árin. Stefnt er að því að opna sjúkrahótelið 1. apríl. Fjöldi manns var við athöfnina á sjúkrahótelinu, þar á meðal nokkrir fyrrverandi heilbrigðisráðherrar. Nýja sjúkrahótelið stendur við nýnefnda Hildigunnargötu sem liggur frá kvennadeild og aðalinngangi á Landspítala Hringbraut upp að Barónsstíg. Húsið tengist kvennadeilda- húsi með undirgöngum og þar með öðrum starfseiningum Landspítala. Staðsetning þess í kjarnastarfseminni við Hr- ingbraut er þannig ákafl ega góð fyrir þá sjúklinga sem þar eiga eftir að dvelja og aðstandendur þeirra. Sjúkrahótelið er 4.300 fermetrar á  órum hæðum, alls 75 herbergi; einstaklingsherbergi,  ölskylduherbergi, herbergi fyrir fatlaða og setustofur. Á neðstu hæð er gestamóttaka, aðstaða til veitinga og tvö herbergi sem eru ætluð fyrir þjón- ustu hjúkrunarfræðinga. Nýtt hlaðvarp Landspítala Í byrjun febrúar var nýju Hlaðvarpi Landspítala hleypt af stokkunum. Hlaðvarpið er kærkomin viðbót í þá fl óru af upplýsingaveitum sem nýtt er til að miðla því öfl uga starfi sem fram fer hér á spítalanum og á oft erindi við lands- menn alla. Í fyrsta þætti hlaðvarpsins var rætt við Hans Tómas Björnsson, nýráðinn yfi rlækni erfða- og sameinda- læknisfræðideildar, sem er framúrskarandi vísindamaður á heimsmælikvarða. Hlaðvarpið veitir okkur meðal annars tækifæri á að leggja á djúpið í ítarlegri um öllun um fl ókin mál enda hentar þessi miðlunarleið mörgum vel. Eina sem þarf er farsími, snjalltæki eða tölva ásamt heyrnartólum eða hátalara. Hér eru ýmis tækifæri til að  alla almennt um spennandi efni, en sömuleiðis opnar þessi möguleiki nýjar víddir í sjúklinga- fræðslu sem spennandi verður að þróa áfram. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á Internetinu, vef spítalans og samfélagsmiðlum ásamt helstu hlaðvarpsveitum, til dæmis Spotify og Podcast Addict. Úr forstjórapistli Landspítala 8.2.2019 Innleiðing móttökukerfi s á dag- og göngudeildir á Landspítala Móttökustandur hefur verið tekinn í notkun fyrir innritun á hjartaómun 14D, gang- og bjargráðseftirlit 14D og göngu- deild hjartabilunar 14F á Landspítala Hringbraut. Móttökustandur hefur einnig verið settur upp í almennu göngudeildinni 10E og Hjartagátt 10D á Landspítala Hring- braut. Skjólstæðingar skrá sig inn sjálfi r með því að slá inn kenni- tölu, svara spurningum varðandi smitgát og ofnæmi og fá leiðbeiningar um hvert þeir eigi að fara, t.d. á hvaða bið- stofu. Ekki þarf að gefa sig fram við móttökuritara. Við inn- skráningu merkjast þeir sjálfkrafa mættir í sjúkraskrárkerfi ð Sögu er vísað á rétta biðstofu. Sá sem veitir þjónustuna fær boð um að skjólstæðingur sé mættur. Þessir móttökustandar eru hluti af innleiðingu móttökukerf- is á dag- og göngudeildum á Landspítala sem er ætlað að skila mikilli hagræðingu og auknum þægindum bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga Landspítala. Fréttir o g myndir teknar af fréttavef Landspítala. Af fréttavef Landspítala Landspítali fékk nýtt sjúkrahótel formlega afhent við athöfn 31. janúar 2019. Velferð 19

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.