Velferð - 01.06.2019, Síða 22
22 Málgagn Hjartaheilla
GoRed á Íslandi 10 ára
Hjartaheill senda árnaðaróskir
Tíminn er stundum ótrúlega fl jótur að líða.
Okkur hjá Hjartaheill fi nnst örstutt síðan rauðklæddu konurnar voru að stíga sín
fyrstu skref hér á Íslandi, m.a. með stuðningi og í samstarfi við Hjartaheill, og
he a störf að hjartavernd meðal kvenna.
Á sama tíma virðist það langur tími þegar haft er í huga hver áhrif þeirra hafa
verið á umræðu um hjarta- og æðasjúkdóma. Vegna starfa GoRed og áhrifaríkra herferða þeirra eru konur nú meðvitaðri en
áður um áhættuþætti sem að þeim snúa. Mikilvægi þess að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og æðasjúkdóma verður
seint ofmetið og þar hefur GoRed lagt sitt af mörkum svo eftir hefur verið tekið.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum. Með forvörnum
og fræðslu má draga verulega úr líkunum á þessum sjúkdómum.
Hjartaheill lítur til baka með stolti fyrir hönd kvennanna sem starfa innan GoRed og við sem vinnum að málefnum Hjarta-
heilla erum þakklát fyrir samvinnuna við samtökin, enda falla markmið þeirra í einu og öllu að starfi Hjartaheilla.
GoRed fyrir konur á Íslandi er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Hjartaheilla, Heilaheilla, hjartadeildar Landspítalans og fag-
deildar hjartahjúkrunarfræðinga. Fyrir okkar leyti hefur það verið heiður að taka þátt í þessu öfl uga samstarfi sem vonandi á
eftir að blómstra áfram á komandi árum.
Á þessum tímamótum sendum við GoRed okkar innilegustu kveðjur með óskum um áframhaldandi samstarf og baráttu fyrir
því að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum á Íslandi. Með samstöðu náum við árangri.
Stjórn og starfsfólk Hjartaheilla.