Velferð - 01.06.2019, Side 22

Velferð - 01.06.2019, Side 22
22 Málgagn Hjartaheilla GoRed á Íslandi 10 ára Hjartaheill senda árnaðaróskir Tíminn er stundum ótrúlega fl jótur að líða. Okkur hjá Hjartaheill fi nnst örstutt síðan rauðklæddu konurnar voru að stíga sín fyrstu skref hér á Íslandi, m.a. með stuðningi og í samstarfi við Hjartaheill, og he a störf að hjartavernd meðal kvenna. Á sama tíma virðist það langur tími þegar haft er í huga hver áhrif þeirra hafa verið á umræðu um hjarta- og æðasjúkdóma. Vegna starfa GoRed og áhrifaríkra herferða þeirra eru konur nú meðvitaðri en áður um áhættuþætti sem að þeim snúa. Mikilvægi þess að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og æðasjúkdóma verður seint ofmetið og þar hefur GoRed lagt sitt af mörkum svo eftir hefur verið tekið. Hjarta- og æðasjúkdómar eru ein algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og annars staðar í heiminum. Með forvörnum og fræðslu má draga verulega úr líkunum á þessum sjúkdómum. Hjartaheill lítur til baka með stolti fyrir hönd kvennanna sem starfa innan GoRed og við sem vinnum að málefnum Hjarta- heilla erum þakklát fyrir samvinnuna við samtökin, enda falla markmið þeirra í einu og öllu að starfi Hjartaheilla. GoRed fyrir konur á Íslandi er samstarfsverkefni Hjartaverndar, Hjartaheilla, Heilaheilla, hjartadeildar Landspítalans og fag- deildar hjartahjúkrunarfræðinga. Fyrir okkar leyti hefur það verið heiður að taka þátt í þessu öfl uga samstarfi sem vonandi á eftir að blómstra áfram á komandi árum. Á þessum tímamótum sendum við GoRed okkar innilegustu kveðjur með óskum um áframhaldandi samstarf og baráttu fyrir því að draga úr hjarta- og æðasjúkdómum á Íslandi. Með samstöðu náum við árangri. Stjórn og starfsfólk Hjartaheilla.

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.