Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 12
EKKI MISSA AF SÝNINGU ÁRSINS Allra síðustu sýningar komnar í sölu 6 Grímuverðlaun borgarleikhus.is Skert samkeppnishæfni íslensku bankanna gerir það að verkum að viðspyrnan sem vaxtalækkunum Seðlabankans er ætlað að veita sam- drætti í hagkerfinu verður minni en hún gæti annars verið. Þetta segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, í samtali við Fréttablaðið. Hagar réðust nýverið í útgáfur skuldabréfa upp á samtals 8 millj- arða króna á skuldabréfamarkaði en að sögn Finns bauðst fyrirtækinu ekki bankalán á þeim kjörum sem stjórnendur þess sóttust eftir. „Það virðist ekki vera nægt fram- boð af krónum á hagstæðum kjörum þrátt fyrir að vextir hafi lækkað töluvert. Þegar bankarnir geta ekki boðið samkeppnishæf kjör þá verða þeir að lána á hærri vöxtum, þeir missa af bestu lántakendunum og útlánin verða áhættusamari. Þeir eiga ekki kost á því að bjóða í bestu lántakendurna. Þar eru þeir ekki við borðið,“ segir Finnur. Skerta samkeppnishæfni bank- anna megi einkum rekja til heimatil- búins vanda. Þeir búi við háar eigin- fjárkröfur, háar arðgreiðslukröfur frá eigendum og sértæka skattlagn- ingu á borð við bankaskattinn, sem er hluti af kostnaðarverði á lána- markaði. Þessir þættir hafi töluverð áhrif á kjörin sem bankarnir geta boðið heimilum og fyrirtækjum. Hagar gátu gripið til þess að gefa út skuldabréf í krafti stærðar og trausts rekstrar. Finnur segir að skert samkeppnishæfni bankanna geti hins vegar bitnað verulega á fyrir- tækjum sem hafa ekki aðra valkosti en bankalán. Nauðsynlegt sé fyrir heimilin og atvinnulífið að hafa val- kosti þegar kemur að fjármögnun. „Hagar eru komnir fyrir vind en ég óttast að þeir sem eru að fara að endurfjármagna sig á næstu mánuð- um eða á næstu misserum geti lent á vegg. Kjörin verða ekki með þeim hætti sem æskilegt er þrátt fyrir að stýrivextir hafi lækkað.“ Eins og greint var frá í Markað- inum í gær stefnir Arion að því að minnka lánasafn bankans til fyrir- tækja um 20 prósent fyrir árslok 2020 en í lok þriðja ársfjórðungs nam bókfært virði fyrirtækjalána bankans um 404 milljörðum. Útlánasafn Arion til fyrirtækja hefur dregist saman um tæplega sjö prósent á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Stjórnendur bankans telja að arðsemi af fyrirtækjaútlánum bank- ans sé ekki ásættanleg og er stefnt að því að hún verði yfir tíu prósent. Vaxtamunur minnkar Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir að banka- skatturinn sé vissulega einn þáttur sem taka þurfi með í reikninginn þegar bankinn ákvarðar vexti. „Það sem skiptir mestu máli er að það sé fyrirsjáanleiki í því hvernig skatturinn muni breytast þann- ig að við getum stýrt verðlagningu með réttum hætti. Vaxtamunurinn á Íslandi er vissulega hærri en víða annars staðar, aðallega vegna þess að við verðum að standa undir tölu- vert hærri gjöldum en þekkjast í nágrannalöndunum. Vaxtamunur- inn hjá Landsbankanum hefur á hinn bóginn verið að minnka á sama tíma og hagkvæmni í rekstri hefur aukist. Það hefur gert okkur kleift að lækka vexti umtalsvert.“ Á heildina litið hafa ný útlán íslensku bankanna til fyrirtækja dregist töluvert saman á milli ára. Nettó ný útlán til fyrirtækja miðað við síðustu sex mánuði á undan námu um 150 milljörðum í ágúst á síðasta ári en í sama mánuði í ár nam upphæðin tæplega 70 milljörðum. Lilja Björk bendir á að á síðasta ári hafi bankarnir lánað umtalsvert meira til fyrirtækja en árin á undan. Samanburður milli ára verði að taka mið af því. Á síðasta fjórðungi ársins 2018 hafi bankarnir hins vegar byrj- að að draga úr nýjum útlánum vegna óvissu um framtíð WOW air. „Við þurftum að horfa gagnrýnum augum á efnahagsumhverfið eins og önnur fyrirtæki og frekar draga úr heldur en að gefa í, enda mikil óvissa um hversu víðtæk áhrifin af falli WOW air yrðu,“ segir Lilja Björk. Ný útlán Landsbankans á fyrstu níu mánuðum þessa árs námu alls 70 milljörðum króna. Þar af voru 40 milljarðar vegna lána til einstakl- inga, aðallega til fasteignakaupa, og um 30 milljarðar vegna lána til fyrir- tækja. „Það er mikilvægt að einstakl- ingar hafi aðgang að hagstæðum og góðum kjörum á fasteignalánum. Þetta skiptir meðal annars miklu máli fyrir byggingaverkefni sem nú er unnið að,“ segir Lilja Björk. Á fundi efnahags- og viðskipta- nefndar Alþingis í október var rætt um að aðgerðarleysi stjórn- valda þegar kemur að rekstrarum- hverfi bankanna geti orðið til þess að niður sveifla hagkerfisins verði dýpri en ástæða er til. Þar sagði Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnu- lífsins, að verulegt áhyggjuefni væri að sjá snarpan viðsnúning í útlánum bankanna. Stjórnvöld gætu brugðist við með því að lækka sérstaka skatta á banka hraðar en áform væru um en í vor var lækkun bankaskattsins frestað til ársins 2021. thorsteinn@frettabladid.is Geta lent á vegg við endurfjármögnun Skert samkeppnishæfni bankanna dregur úr áhrifum vaxtalækkana Seðlabankans. Ný útlán til fyrirtækja hafa dregist saman á árinu. Bitnar á fyrirtækjum sem hafa ekki aðra valkosti við fjármögnun en bankalán. Fyrirtækjalánasafn Arion minnkar hratt. Lausafjárstaðan gæti verið betri Á síðasta fundi Fjármálastöð- ugleikaráðs í lok september kom fram að viðnámsþróttur bankanna væri enn töluverður en lausafjárstaða þeirra, sér- staklega í íslenskum krónum, gæti verið betri. Einnig var vikið að lausafjárstöðunni á fundi ráðsins í sumar en þá var tekið fram að staðan hefði versnað. Í riti Seðlabankans um fjár- málastöðugleika í október kom fram að hágæða lausafjáreignir bankanna í krónum hefðu lækkað um 182 milljarða króna frá miðju ári 2017. Þannig var lausafjárhlutfallið í lok annars fjórðungs lægst hjá Landsbank- anum, 45 prósent, 94 prósent hjá Íslandsbanka og 116 pró- sent í tilfelli Arion banka. Til samanburðar var sambærilegt hlutfall á bilinu 90 til 193 pró- sent á árinu 2016. Íslensku viðskiptabankarnir hafa dregið töluvert úr útlánum til fyrirtækja á milli ára. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR 250 200 150 100 50 0 de s. 1 3 ap r. 14 ág ú. 14 de s. 14 ap r. 15 ág ú. 1 5 de s. 15 ap r. 16 ág ú. 16 de s. 16 ap r. 17 ág ú. 17 de s. 17 ap r. 18 ág ú. 18 de s. 18 ap r. 19 ág ú. 19 ✿ Nettó ný útlán til fyrirtækja í milljörðum króna síðustu 6 og 12 mánuði n 6 mánuðir n 12 mánuðir 60 50 40 30 20 10 0 -10 -20 -30 Ég óttast að þeir sem eru að fara að endurfjármagna sig á næstu mánuðum eða á næstu misserum geti lent á vegg. Finnur Árnason, forstjóri Haga Við þurftum að horfa gagnrýnum augum á efnahagsumhverfið og frekar draga úr heldur en að gefa í. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans MARKAÐURINN 1 4 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 B -0 0 8 C 2 4 3 A -F F 5 0 2 4 3 A -F E 1 4 2 4 3 A -F C D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.