Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 39
Það fylgdu því ýmsir kostir að vera „spyrnt upp“ um bekk í barnaskóla og fá þar með að stunda nám samhliða þeim sem fremri manni virtust, a.m.k. árinu eldri. Ókostirnir fólust hins vegar í tálmunum af ýmsum toga, m.a. er leið að fermingum árgangsins. Sá er þetta ritar var þá einungis 12 vetra og ótækur talinn til ferm- ingar að mati helstu kirkjunnar manna í höfuðborginni. Maður knúði á hjá fjölmörgum kirkjum, háfættur og borubrattur, var iðu- lega vel tekið, þar til í ljós kom hinn raunverulegi lífaldur. „Tólf ára börn getum við ekki fermt, við verðum því miður að varna þeim þeirrar þjónustu,“ var einatt viðkvæðið, þar til knúið var dyra í Fríkirkjunni. Þar blasti við manni holdgervingur mildi og kristilegs kærleika, séra Þorsteinn Björnsson, sá hljómprúði Fríkirkju- prestur er sungið hafði með fegurra móti en áður hafði þekkst lagið „Ó, Jesú, bróðir besti“. Svo vel hafði til tekist að sjálft Ríkisútvarpið hafði sett sálminn á spilunarlista þess tíma, þannig að reglulega mátti heyra þennan him- neska flutning Fríkirkjuprestins á öldum ljósvakans. Séra Þorsteinn skildi vel vanda hins unga og viljuga fermingar- barns og lýsti sig reiðubúinn til að veita undanþágu frá þeirri megin- reglu að börn skyldu hafa náð a.m.k. 13 ára aldri með tilheyrandi andlegum þroska áður en til ferm- ingar gæti komið. Fermingunni er jú ætlað að vera staðfesting (Con- firmation) hins þroskaða, fullveðja einstaklings á sjálfri skírninni. Nú var ýmsum létt, því til- hugsunin um að sitja einn eftir ófermdur í 2. bekk Hlíðaskóla hafði satt að segja plagað mann heil- Kirkja Frímannsins er Fríkirkjan Jakob Frímann Magnússon fermdist í Fríkirkjunni í Reykjavík aðeins tólf ára. Prestur Frí- kirkjunnar setti ekki aldurinn fyrir sig. FRÉTTA- BLAÐIÐ/STEFÁN Minningarguðsþjónustur vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi hafa verið haldnar árlega í Fríkirkjunni í Reykjavík í meira en aldarfjórðung. Kveikt er á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst. Minningarstund þessi er alþjóð- leg og heitir á ensku Candlelight Memorial Day. Árlega mætir Margrét J. Pálma- dóttir með sína fögru söngfugla og söngkonuna Berglindi Björk Jónasdóttur. Organisti í athöfn- inni er venjulega Gunnar Gunn- arsson. Baba og félagar f lytja yfirleitt magnaða Afríkutrommu- tónlist og að vanda er boðið upp á veitingar í Safnaðarheimili Frí- kirkjunnar að lokinni messu. Minningarstundin okkar hefur þróast í að verða notaleg sam- verustund fyrir alla fjölskylduna þar sem ungir og gamlir geta notið hlýlegs andrúmslofts og frábærrar tónlistar. Auk þess að minnast þeirra sem látnir eru fögnum við lífinu og þeim tækifærum sem HIV-jákvæðir hafa til eðlilegs lífs í dag. Vill stjórn HIV Ísland þakka Fríkirkjunni, séra Hirti Magna og öllu starfsfólki hennar sem hefur gefið vinnu sína og gert okkur mögulegt að njóta þessarar stundar með félagsfólki HIV sam- takanna, gera okkur sýnilegri og stuðlað að nánd og samstöðu. Einar Þór Jónsson, framkvæmdastjóri HIV Ísland Minningar- og þakkarstund HIV samtakanna Einar Þór Jónsson. Séra Hjörtur Magni talar á tímamótum réttindabaráttu samkynhneigðra. Á menntaskólaárunum varð mér alltaf ljósara og ljósara að ég átti enga samleið með þjóðkirkjunni. Þessi sýn mín fólst þá helst í því hvernig kirkjan og biskupinn ræddu mannrétt- indi samkynhneigðra, en í sömu andrá tók Fríkirkjan í Reykjavík fagnandi á móti öllum, að því að ég best fékk séð fordómalaust. Ég fann mitt fólk hér, og er þakk- lát fyrir þá mannlegu stefnu og virðingu fyrir öllum sem ein- kennir Fríkirkjuna. Elín Björk Jónasdóttir Fann fólkið mitt í Fríkirkjunni Elín Björk Jónasdóttir. Þegar ég kom í Fríkirkjuna í Reykjavík fyrir ári var mér heilsað með brosandi and- litum, hlýju faðmlagi og engla- röddum. Það voru forréttindi mín og blessun að geta unnið með Gunnari Gunnarssyni og þessum einstaka kór og hljóðfæraleik- urum að flutningi djassmessunnar okkar, The Jazz Mass. Innilegar hamingjuóskir með afmælið frá mér til þessa einstaka safnaðar og megi Guð halda áfram að blessa þjónustu ykkar og rými.“ Kveðja frá Ike Sturm Ike Sturm kontrabassaleikari, djass- skáld og tónlistarstjóri St. Peter’s Church á Manhattan. mikið. Maður hugsaði strax með sér að Fríkirkjan mundi að líkindum frá þessum tíma best hæfa þeim Frí- manni sem svo hafði verið skírður 12 árum áður og leitaði nú stað- festingar þeirrar skírnar. Ekki spillti fyrir að ferm- ingin, sem var innblásin, falleg og eftirminnileg, reyndist einnig afar gjöful í veraldlegum skilningi. Auk góðra gjafa helltist yfir ferm- ingarbarnið reiðufé er dugði vel til kaupa á rauðu Farfisa rafmagns- orgeli – kjörgrip er nýttur skyldi til yndisauka og frekari tekjuöflunar á vettvangi fyrirsjáanlegrar hljóm- sveitarmennsku. Hlýhugur minn í garð Fríkirkj- unnar allar götur síðan hefur m.a. speglast í athöfnum þar á borð við skírn, fermingu og giftingu auk þess sem fjölskyldan er öll skráð í þessa góðu alþýðukirkju sem svo listilega var hönnuð og reist á fegursta stað Reykjavíkur. Sóknarpresturinn, séra Hjörtur Magni Jóhannsson, er einhver allra besti, alþýðlegasti og frjálslyndasti prestur sem við höfum eignast og maklegur þess að feta í fótspor séra Þorsteins. Auk þess hefur hann og söfnuðurinn borið gæfu til að laða að kirkjunni einn fremsta tón- listarmann landsins, hinn fjölhæfa af burðamann Gunnar Gunnars- son, organista og söngstjóra. Í sameiningu hafa þeir gert Fríkirkjuna að eftirsóttum tón- leikastað sem skartar fyrsta f lokks hljómgæðum, hljóðfærum, söngv- urum og hljóðfæraleikurum. Það kann að felast ákveðin þversögn í því að telja það til for- réttinda að tilheyra kirkju sem stofnuð var af þeim sem ekki töldu sig njóta sannmælis, hvað þá for- réttinda við upphaf 20. aldarinnar í Reykjavík. Það er engu að síður svo að Frí- kirkjan er kirkjan mín og verður til hinsta dags. Það hvílir blessun yfir þessu góða og fallega Guðs húsi í hjarta Reykjavíkur. Megi það svo áfram verða um ár og aldir. Jakob Frímann Magnússon 11FRÍKIRKJAN 120 ÁRA F I M MT U DAG U R 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 3 A -E 2 E C 2 4 3 A -E 1 B 0 2 4 3 A -E 0 7 4 2 4 3 A -D F 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.