Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 24
Einstök rúmföt frá Ítalíu, Þýskalandi og Kína bíða nýrra eigenda í Rúmföt.is.
Hjá Rúmföt.is finna allir sinn draumasængurfatnað og meira til. Úrvalið er heillandi þegar kemur að litum, munstrum og silkimjúkum vefnaði sem umvefur líkama og sál þegar hvílst er.
Góð rúmföt skipta máli,“ segir Björn Þór Heiðdal, eigandi verslunarinnar Rúmföt. is
sem selur lúxus rúmfatnað frá
Ítalíu, Þýskalandi og Kína.
„Ég hef haft áhuga á vönduðum
rúmfötum frá því ég man eftir
mér,“ segir Björn og heldur áfram:
„Foreldrar mínir áttu Þvottahús A.
Smith í Bergstaðastræti 52 og þar
kynntist ég rúmfötum höfuðborg-
arbúa. Á æskuárunum lét mamma
mig skipta reglulega um á rúminu
mínu. Hún var vön að rétta mér
hreinan bunka af rúmfötum sem
pabbi og starfsfólkið hjá A. Smith
hafði þvegið og straujað,“ rifjar
Björn upp sællar minningar.
Hann segist elska að sofa undir
vönduðum og góðum rúmfötum.
„Mamma keypti stundum
rúmföt í Fatabúðinni og Verinu, en
það kom líka fyrir að miðlungs góð
rúmföt, sem dagaði uppi í Þvotta-
húsinu, enduðu utan um sængina
mína og koddann. Ég var hins
vegar fljótur að skipta þeim út fyrir
þessi góðu sem ég vissi að væru til
uppi í skáp,“ segir Björn.
Eftir að rúmfataverslanirnar
Verið og Fatabúðin hættu starf-
semi segir Björn að erfitt hafi verið
að nálgast gæðarúmföt og per-
sónulega þjónustu á Íslandi.
„Rúmföt.is fetar að einhverju
leyti í fótspor þessara eldri rúm-
fatabúða. Við bjóðum til dæmis
upp á að sérsauma rúmföt í öllum
stærðum og saumar Margrét Guð-
laugsdóttir saumakona fyrir okkur
glæsileg rúmföt úr hágæða efnum,“
upplýsir Björn en þess má geta að
Margrét saumaði rúmfatnað fyrir
Fatabúðina og Icelandair-hótelin á
sínum tíma.
Frá bestu vefurum heims
Rúmfötin sem Björn býður upp
á í verslun sinni koma víða að úr
heiminum og eiga sameiginlegt að
vera þau allra vönduðustu sem völ
er á.
„Hér fást rúmföt frá f lottustu
vefurum Ítalíu, til að mynda
Quagli otti sem vefur dúka og
sængurföt fyrir Elísabetu Breta-
drottningu og sum af f lottustu
lúxushótelum veraldar,“ upplýsir
Björn.
„Eftir ítarlega leit að bestu rúm-
fötum í heimi ákvað Hótel Ritz í
París að bjóða gestum sínum upp
á rúmföt frá Quagliotti og víðfræg
lúxushótel eins og The Mark í New
York, MGM í Macau, The Peninsula
í Hong Kong, Armani í Mílanó og
101 Reykjavík Hótel bjóða gestum
sínum líka að sofa í Quagliotti-
rúmfatnaði,“ segir Björn, stoltur
af einstökum rúmfötum ítalska
vefarans sem sigrað hefur heiminn.
Í Rúmföt.is fæst einnig gæða
rúmfatnaður frá þýska vefar-
anum Curt Bauer.
„Mér fannst ég þurfa að bjóða
upp á breiðara vöruúrval þegar
ég opnaði nýju búðina á Nýbýla-
vegi 28 og eiga eitthvað til handa
öllum. Ég vil að fólk geti komið
í búðina mína og fundið rúmföt
sem það virkilega langar í. Þýsku
rúmfötin eru kannski ekki ódýr
en þau eru virkilega mjúk, falleg
og endingargóð,“ segir Björn.
Vinsælar nýjungar
Ómótstæðilegar vörur fást nú
fyrir jólin hjá Birni í Rúmföt.is.
„Við vorum að fá Mulberry-
silkikoddaver í nokkrum litum
en þau hafa verið mjög vinsæl
og kosta aðeins 5.900 krónur
án kants,“ upplýsir Björn sem á
einnig von á alvöru lúxus dún-
sængum frá þýska fyrirtækinu
OBB.
„Sængurnar frá OBB eru úr dýr-
asta gæsadúni sem völ er á. Ég sá
þær á sýningu í janúar og kolféll
fyrir þeim. Ytra byrðið er úr 460
þráða bómullar-percale efni með
Aloe vera-áferð og það gerist ekki
mýkra né f lottara,“ segir Björn og
hjá Rúmföt.is er í nógu að snúast
hjá Möggu saumakonu við að
sauma dásamleg vöggusett úr
600 þráða ítölskum satínefnum
sem eru tilvalin vöggugjöf eða
jólagjöf handa hvítvoðungum.
Sanngjarnt verð
Þegar kemur að innkaupum á
rúmfatnaði hefur verð lítil áhrif á
val Björns.
„Ég spyr aldrei hvað sé ódýrt;
bara hvað sé það besta. Sumir
sætta sig við 200 þráða rúm-
föt en ég vil aðeins það f lott-
asta, 300 til 600 þræði úr bestu
fáanlegu efnum. Sængurföt eru
fremur áhugamál en bissness í
mínum huga og því reyni ég að
hafa álagningu í lágmarki. Verð
á rúmfötunum eru því ekki há
miðað við einstök gæðin,“ upp-
lýsir Björn um yndisleg rúmföt
sem fást í úrvali lita og fal legum
mynstrum við allra hæfi.
Rúmföt.is selur einnig vönduð,
kínversk rúmföt.
„Í Kína látum við framleiða fyrir
okkur gæðarúmföt úr 300, 600 og
800 þráða satín- og damask-efnum.
Gæðin eru mikil og verðin enn
betri,“ segir Björn og bætir við að
hægt sé að fá mjög glæsilegan satín-
rúmfatnað á 10.900 krónur fram
að jólum. „Það eru gæði sem aðrar
búðir rukka mun meira fyrir og
jafnvel selja ekki,“ segir Björn.
Frábærar viðtökur
Verslunin Rúmföt.is hefur fengið
frábærar viðtökur og salan hefur
farið fram úr björtustu vonum síðan
hún var opnuð á Nýbýlavegi 28 í
fyrra.
„Ég er innilega ánægður með
viðtökurnar og sérstaklega hversu
margir hafa komið aftur til að eign-
ast fleiri gæðarúmföt. Það leynir sér
ekki að þeir kunna að meta gæðin
og láta mig vita af því sem er alltaf
gefandi og gaman,“ segir Björn.
Rúmföt.is er á Nýbýlavegi 28. Sími
565 1025. Opið alla virka daga frá
klukkan 12 til 18 og á laugardögum
frá klukkan 11 til 15. Skoðið úrvalið
á rumfot.is.
Endurnærandi
og friðsæll
nætursvefn er
tryggður í vönd-
uðum og glæsi-
legum vefnaði
rúmfatanna hjá
Rúmföt.is.
Framhald af forsíðu ➛
Sængurföt eru
fremur áhugamál
en bisness í mínum huga
og því reyni ég að hafa
álagningu í lágmarki.
Ég spyr aldrei hvað sé
ódýrt; bara hvað sé það
besta.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
4
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:4
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
3
A
-E
7
D
C
2
4
3
A
-E
6
A
0
2
4
3
A
-E
5
6
4
2
4
3
A
-E
4
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K