Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 14.11.2019, Blaðsíða 44
Svipmyndir úr starfi Fríkirkjunnar  Hjörtur Magni og Ebba fagna hér ásamt tveimur börnum sínum gleðigöngunni í Reykjavík. Brúðkaup í Fríkirkjunni. Fermingarbarn dansar fyrir gesti sína í Fríkirkjunni. Barnastarfið er mikilvægt í kirkju- starfinu. Séra Hjörtur Magni messar hér yfir kirkjugestum. Skyldi vera til hús umburðarlyndis og víðsýni, þar sem mannréttindi eru sett ofar máttlitlum kreddum og dyggri trú á bókstaf og bábilju? Skyldi vera til hús þar sem er hugur, vilji og geta til að samsama sig á vettvangi fyrir allar trúariðkanir, og sömuleiðis þá sem ekki trúa? Þar sem fagnað er til jafns; efahyggju, húmanisma? Skyldi vera til hús opið hverjum þeim sem hneigist til samkyns, gagnkyns eða er kynjaður á enn annan hátt í fjölbreyttri f lóru mannlífs? Skyldi vera til hús sem hefur og hafði hugrekki og kærleika að vígja til sambúðar samkynhneigða til jafns við gagnkynhneigða og hverja þá sem vilja láta blessa yfirlýsingu um sambúð sín í milli? Skyldi vera til hús haganlega byggt úr timbri – fagurt að utan sem innan, með góðan ómtíma – sem heldur vel utan um söng og hljóðfæraleik sem og talað orð? Býður upp á gott pípu-orgel sem hljómað getur jafn vel í allt að þúsund viðstödd- um eyrum – hvar sem þau eru staðsett í kirkjuskipinu? Ég svara því til að fenginni reynslu; já, þetta hús er til. Það er Fríkirkjan í Reykjavík og þetta samfélag er til, sem er söfn- uður Fríkirkjunnar í Reykjavík. Þetta er hús dugandi dygða. Kjarval sagði margt merkilegt og göfugt. Í litlu kveri, „Grjót“ sem hann skrifaði og gaf út 1930, segir; „Því enginn sem ekki er fær um að gera eitthvað fyrir hið ósannan- lega er algildur borgari.“ Það má vera að við séum í dag orðin viðskila við hugtök eins og „algildur borgari“. En hitt hefur ekki breyst, sem er innbyggð við- leitni allra; að vilja leggja sitt af mörkum til samfélags, til lífsins og gera eitthvað fyrir hið „ósannan- lega“. Það er, með öðrum orðum, að duga með hugrekki, hógværð, kærleika, gjafmildi, þolinmæði, veglyndi, tryggð og réttlæti. Og þó samfélag okkar hampi oft á tíðum þeim sem gera aðför að öllu því „ósannanlega“ í félögum sem vilja helst elta ólar við að miljónfalda hagsæld til útdeilingar fyrir fáeina útvalda, er þeim mun mikilvægara að lögð sé rækt við öll hús og samfélög sem vilja upphefja hið „ósannanlega“. Þar er að finna raunverulega farsæld og veg sem betrar manninn og styrkir og býr jafnframt til stólpa að máttugra samfélagi. Í anda hins fríþenkjandi, skrifa ég þessi orð, ég geri það í auðmýkt og þakklæti við fólkið sem ég ann, samfélag sem upplýsir mig og ekki síður í þakkarskuld við tunguna og hjartað, sem stundum ræður för og himininn sem vitnar flest ef ekki allt. Á okkar tímum er fengur að Fríkirkjunni í Reykjavík – þar sem hrein viðleitni og ábyggilegur vilji er til að vinna markvisst í þágu hins ósannanlega. Á tímamótum óska ég Fríkirkjunni í Reykjavík til hamingju með 120 ára afmælið. Ég vona jafnframt að safnaðarstarfið í kirkjunni verði áfram um formerki víðsýni og réttlætis og að í því húsi hefji sérhver sig ævinlega yfir dal- verpi bókstafs og kreddu. Egill Ólafsson (Reykjavík, á gormánuði, 2019) Hús dugandi dygða Egill Ólafsson tónlistarmaður setti saman ljóð í tilefni afmælisins. Dagskrá til áramóta FRÍKIRKJAN - FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN - LOGO B3 FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Í FULLUM LITUM / TVÍLITT1 LITUR - GRÁTÓNAR 1 LITUR - STIMPLAR - GYLLING FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK 17. nóv. sun. kl. 11:00 Hátíðarguðsþjónusta í tilefni 120 ára afmælis Fríkirkjunnar Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson mun ávarpa samkomuna. Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur leiðir samveruna og flytur hugleiðingu. Safnaðarfólk flytur ritningarlestra. Fjölbreytt tónlist undir stjórn Gunnars Gunnarssonar Sönghópurinn við Tjörnina, Hjómsveitin Mantra, djasstrompetleikarinn Arne Hiorth, strengjakvartett kirkjunnar. Barnakórinn við Tjörnina syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. 17. nóv. sun. kl. 16:00 Hátíðartónleikar í tilefni 120 ára afmælis Fríkirkjunnar Sönghópurinn við Tjörnina ásamt strengjakvartett kirkjunnar og djasshljómsveit. Einnig koma fram með kórnum Egill Ólafsson, Sara Grímsdóttir og Arne Hiorth. 24. nóv. sun. kl. 14:00 Fjölskyldumessa Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Barnakórinn við Tjörnina syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. 1. des. sun. kl. 14:00 Aðventuguðsþjónusta, fyrsti í Aðventu. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. 5. des. fim. kl. 12:00 Jól í bæ, jólatónleikar til styrktar Kvenlækningadeild 21A. Flytjendur: Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, sópran. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzosópran. Egill Árni Pálsson, tenór. Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari og stjórnandi. Kvennakórinn Concordia. Hljómsveit: Lilja Eggertsdóttir, píanó. Chrissie Guðmundsdóttir, fiðla. Íris Dögg Gísladóttir, fiðla. Vigdís Másdóttir, víóla. Kristín Lárusdóttir, selló. Þorgrímur Jónsson, kontrabassi. Pamela De Sensi, þverflauta. 8. des. sun. kl. 14:00 Aðventuguðsþjónusta, annar í Aðventu. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. 11. des. mið. kl. 20:00 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er ræðumaður kvöldsins og les úr bók sinni Um tímann og vatnið. Fram koma: Sönghópurinn við Tjörnina, hljómsveitin Mantra ásamt Gunnari Gunnarssyni og barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sr.Hjörtur Magni leiðir stundina. 12. des. fim. kl. 20:00 Tónleikar, Kristín Stefánsdóttir 15. des. sun. kl. 14:00 Jólatrésskemmtun Fríkirkjunnar í Reykjavík. Stundin hefst með samveru í kirkjunni. Síðan verður haldið upp í safnaðarheimili þar sem verður sungið og dansað í kringum jólatréð með jólasveininum. Kaffi og meðlæti fyrir alla. 16. des. mán. kl. 20:00 Æskujól, jólatónleikar þar sem fram koma Karólína Sif, Ari Ólafs og Pétur Ernir. Sérstakur gestur Högni Egilsson. 21. des. lau. kl. 20:00 & 22:30 Eitthvað fallegt, jólatónleikar Svavars Knúts, Kristjönu Stefánsóttur og Ragnheiðar Gröndal. 22. des. sun. kl. 14:00 Heilunarguðsþjónusta á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. 24. des. þri. kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Þóra Einarsdóttir sópran syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina ásamt strengjakvartett kirkjunnar syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. 25. des. mið. kl. 14:00 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. 27. des. fös. kl. 21:00 Hátíðartónleikar Árstíða 31. des. þri. kl. 16:00 Aftansöngur á gamlársdag. Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina 16 FRÍKIRKJAN 120 ÁRA 1 4 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 1 4 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :4 3 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 3 B -0 F 5 C 2 4 3 B -0 E 2 0 2 4 3 B -0 C E 4 2 4 3 B -0 B A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.