Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.11.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 21.11.2019, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið isband.is UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 270 MOSFELLSBÆR S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP© OG RAM Á VETRARLÍF Í REIÐHÖLL LÉTTIS 23. OG 24. NÓVEMBER. BÍLASÝNING HJÁ CAR-X AKUREYRI MÁNUDAGINN 25. NÓVEMBER Á MILLI KL. 10-14 UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS OG J EP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 270 MOSFE LSBÆR S. 534 4 3 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 STJÓRNSÝSLA Bryndís Hlöðvers­ dóttir ríkissáttasemjari mun taka við starfi ráðuneytisstjóra í for­ sætisráðuneytinu um næstu áramót. Verður hún flutt milli embættanna samkvæmt heimild í lögum um rétt­ indi og skyldur starfsmanna ríkisins. Bryndís hefur gegnt embætti ríkissáttasemjara frá árinu 2015 en áður var hún meðal annars rektor Háskólans á Bifröst auk þess að sitja á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið og Samfylkinguna. Ragnhildur Arnljótsdóttir, núver­ andi ráðuneytisstjóri, mun taka við nýju embætti hjá fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg. Þar mun hún meðal annars vinna að undirbúningi formennsku Íslands í Evrópuráðinu 2022. – sar Bryndís verður ráðuneytisstjóri REYK JAVÍK Foreldrar barna við Kelduskóla Korpu eru ekki af baki dottnir þó að borgarstjórn hafi samþykkt tillögu um að leggja niður skólahald þar næsta haust. Foreldrar ekki af baki dottnir Sævar Reykjalín, formaður Foreldrafélags Kelduskóla. „Það er sárt að stjórnmálamenn­ irnir tóku ekki mark á nemendum og foreldrum. Það var ekki litið við þeirra ábendingum og rökum. Við erum hins vegar ekki af baki dottin og ætlum að leita okkar réttar,“ segir Sævar Reykjalín, formaður foreldra­ félags Kelduskóla. „Við ætlum að vera fullviss um að við höfum gert allt sem við gátum áður en við gef­ umst endanlega upp.“ – ab NÝSKÖPUN Í dag verður undirrituð viljayfirlýsing nýsköpunarráðherra, Háskóla Íslands og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans um samstarf til að efla samfélagslega nýsköpun. Verður unnið að því að auka mögu­ leika félagasamtaka á að starfa að félagslegum umbótum innan stofn­ unar sem fær heitið Vaxandi – mið­ stöð samfélagslegrar nýsköpunar. „Við stefnum að því að skapa vett­ vang félaga og almennra borgara til að þróa hugmyndir og lausnir við að bæta samfélagið og gera þær sjálf­ bærar,“ segir Ómar H. Kristmunds­ son, prófessor á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, en verkefnið grund­ vallast á tíu ára rannsóknarvinnu hans og Steinunnar Hrafnsdóttur, sem einnig er prófessor við sama svið. Samfélagsleg nýsköpun tengist hinum svokallaða þriðja geira. Þriðji geirinn, eða félagshagkerfið, er í raun það starf sem hvorki heyrir til hins opinbera né einkageirans. Hér eru á ferðinni félagasamtök að stærstum hluta en í sumum tilvikum sjálfs­ eignarstofnanir, samvinnufélög og jafnvel hlutafélög. Það sem einkenn­ ir þennan rekstur er að ekki er sóst eftir hagnaði, félagsleg gildi eru höfð að leiðarljósi og verkefni eru unnin að einhverju leyti í sjálfboðavinnu. Yfirlýsingin verður undirrituð klukkan 10 í sal Þjóðminjasafnsins. Ávörp flytja Ómar, Steinunn, Jón Atli Benediktsson rektor, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra, Jónas Guð­ mundsson, formaður Almanna­ heilla, og Lars Hulgaard, prófessor við Hróarskelduháskóla. – khg Lýsa yfir vilja til að efla samfélagslega nýsköpun RÚV gegnir mikil- vægu hlutverki í íslensku samfélagi og því brýnt að umgjörðin sé traust og trú- verðug. Lilja Alfreðs- dóttir, mennta- og menningar- málaráðherra Þörfin fyrir sam- félagslega nýsköpun hefur aukist verulega á síðastliðnum árum. Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Háskóla Íslands Bryndís Hlöðversdóttir. Nánar má lesa um málið á frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Ríkisútvarpið brýtur lög með því að vera ekki með sam­ keppnisrekstur í dótturfélagi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkis­ endurskoðunar um starfsemi RÚV ohf. Þar kemur einnig fram að ef RÚV hefði ekki selt lóðir í Efstaleiti hefði stofnunin orðið ógjaldfær. Lög sem kveða á um að RÚV skuli stofna dótturfélag eru frá árinu 2013 en gildistöku umrædds ákvæðis var frestað til 2018. Segir í skýrslunni að ákvæðið um dótturfélag sé til að tryggja að ríkisstyrkir renni ekki til annarrar starfsemi en almanna­ þjónustu. Samtök iðnaðarins sendu stjórn RÚV bréf í september í fyrra þar sem lögin voru áréttuð og sagt að aðgerðarleysi stjórnarinnar leiddi til röskunar á samkeppnismarkaði. Lilja Alfreðsdóttir, mennta­ og menningarmálaráðherra, sagði í fyrra brýnt að hrinda stofnun dótturfélaga um samkeppnisrekstur RÚV í framkvæmd, það væri í hönd­ um stjórnar RÚV. Töldu þá stjórn­ endur RÚV að það dygði að aðskilja reksturinn í bókum stofnunarinnar. Ráðherra segir að nú sé búið að taka af öll tvímæli um það. „Ég fór þess á leit við Ríkisendurskoðun að vinna skýrslu um fjárhagslega aðgreiningu almannaþjónustu og samkeppnisreksturs í bókhaldi Rík­ isútvarpsins ohf. Það er mikilvægt að eyða allri óvissu í þessum efnum. Ríkisendurskoðun tekur af öll tví­ mæli um nauðsyn þess að stofna dótturfélag fyrir samkeppnisrekstur og ég mun beina þeim tilmælum til stjórnar,“ segir Lilja. Kári Jónasson, formaður stjórnar RÚV, segir að nú sé komin fullvissa fyrir því að það sé í lagi að stofna dótturfélög en óvissa hafi ríkt um það vegna virðisaukaskattsmála. „Þetta er það sem við höfum verið að bíða eftir og nú munum við bara bretta upp ermarnar og í næstu viku munum við setja á stofn vinnuhóp og undirbúa stofnun dótturfélags. Þetta átti að vera tilbúið í vor frá Ríkisendurskoðun en hefur dregist. Við erum mjög fegin að vera loksins búin að fá stimpilinn frá Ríkisendur­ skoðun,“ segir Kári. Í skýrslunni segir að RÚV hefði orðið ógjaldfært ef ekki hefði komið til lóðasala í Efstaleiti. Sá hagnaður var tekju­ færður á árunum 2016 til 2018. „Án lóðasölunnar hefði Ríkisútvarpið ohf. orðið ógjaldfært. Ef litið er á af komu félagsins fyrir tekjuskatt og án söluhagnaðar hefði heildaraf­ koma tímabilsins verið neikvæð um 61 milljón króna,“ segir í skýrslunni. Kári bendir á að fjárhagur RÚV hafi batnað mikið á undanförnum árum þótt ekkert megi út af bera. Ráðherra segir brýnt að á þessu verði tekið. „Þessar ábendingar Ríkisendurskoðunar eru gagnlegar er varða fjárhagsstöðuna. Það er brýnt að á þessu verði tekið og beini ég því til stjórnar að bregðast hratt við. RÚV gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi og því brýnt að umgjörðin sé traust og trúverðug,“ segir Lilja. arib@frettabladid.is RÚV ber að stofna dótturfélag utan um samkeppnisrekstur Starfshópur verður skipaður í næstu viku til að undirbúa stofnun dótturfélags. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ríkisútvarpið brýtur lög með því að vera ekki með samkeppnisrekstur í dótturfélagi. Vinnu- hópur um stofnun dótturfélags verður skipaður í næstu viku. RÚV hefði orðið ógjald- fært ef ekki hefði komið til lóðasala í Efstaleiti. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -3 5 0 4 2 4 4 9 -3 3 C 8 2 4 4 9 -3 2 8 C 2 4 4 9 -3 1 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.