Fréttablaðið - 21.11.2019, Síða 6
VIÐSKIPTI Icelandair ætlar á næstu
fimm árum að tryggja jafnt kynja-
hlutfall meðal stjórnenda félags-
ins. Hlutfall karla eða kvenna verði
ekki undir 40 prósentum árið 2025.
Þá ætlar fyrirtækið að fjölga stöðu-
gildum kvenflugmanna um 25 pró-
sent og stöðugildum karlflugþjóna
um 25 prósent miðað við núverandi
stöðu. Að auki ætlar fyrirtækið sér
að fjölga konum í störfum f lug-
virkja með því að kynna f lug-
virkjastörf og -nám fyrir stúlkum
og taka einkennisfatnað flugþjóna
til endurskoðunar.
„Við höfum unnið markvisst
að jafnréttismálum síðustu ár
og uppfært stefnu okkar þar sem
samfélagsábyrgð er ríkur þáttur.
Icelandair hefur ákveðið að leggja
fjögur heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna til grundvallar stefnu
sinni í samfélagsábyrgð og er jafn-
rétti kynjanna eitt af þeim,“ segir
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumað-
ur samskipta og samfélagsábyrgðar
hjá flugfélaginu.
„Við erum að setja kynjajafnrétti
á dagskrá,“ segir Elísabet Helgadótt-
ir, framkvæmdastjóri mannauðs
hjá Icelandair. „Við höfum verið
að horfa til þess að fjölga konum í
stjórnendastöðum í fyrirtækinu og
það hefur verið hraður gangur í því
síðustu ár. Fyrir rúmlega tíu árum
var engin kona í framkvæmdastjórn
eða stjórn fyrirtækisins. Í dag er
kynjahlutfallið í stjórn félagsins 40
prósent konur og 60 prósent karlar
og í framkvæmdastjórn eru þrjár
konur af átta framkvæmdastjórar.
Þá er kynjahlutfall meðal annarra
stjórnenda en þeirra sem sitja í
framkvæmdastjórn jafnt.
Það hefur verið átak í því að fjölga
kvenflugmönnum, það hefur hækk-
að úr 6,5 prósentum í 12 prósent á
áratug. Hlutfall karlflugþjóna hefur
einnig hækkað, var 5 prósent en er
nú 9 prósent, við viljum vinna í því
að hvetja karlmenn til að sækja um
störf sem flugþjónar,“ nefnir hún og
segir vinnu í jafnréttisáætlun ekki
orðin tóm.
„Við erum vakandi fyrir öllu í
starfi fyrirtækisins og að kynin hafi
jöfn tækifæri. Við viljum að það sé
jafnt í nefndum og verkefnavinnu
þegar kemur að stórum ákvarð-
anatökum innan fyrirtækisins. Þá
ætlum við að draga úr skaðlegum
staðalímyndum sem eru ríkjandi
um kynin í f lugi,“ segir Elísabet.
Hún segir mikilvægt að huga að
einkennisfatnaðinum, enda klæðist
stærstur hluti starfsmanna slíkum
fatnaði við störf sín. „Við erum í
heildarendurskoðun á einkennis-
fatnaði samhliða því að draga úr
skaðlegum staðal ímyndum í okkar
iðnaði. Við viljum samræma reglur á
milli kynja. Það hafa til dæmis verið
ákveðin viðmið hvað varðar skó-
fatnað og farða sem verður breytt
í takt við nútímann. Konur eiga
að hafa val um það hvort þær eru á
háum hælum eða með farða. En við
drögum ekki úr kröfum, starfsfólk
okkar er þekkt fyrir glæsileika og
þannig verður það áfram. Númer
eitt, tvö og þrjú er öryggi um borð,“
leggur Elísabet áherslu á.
Ásdís segir ímynd f lugfélagsins
fara saman við ímynd þjóðar. „Við
erum íslenskt f lugfélag, kennt við
Ísland sem er mjög framarlega í
jafnréttismálum. Við teljum eðli-
legt að við getum staðið undir þeim
hagsmunum sem jafnrétti er fyrir
Íslendinga,“ segir hún.
Á árunum 2001 til 2003 var Ice-
landair kært til kærunefndar jafn-
réttismála fyrir svokallaðar Dirty
Weekend auglýsingar sem voru
birtar í Bretlandi.
„Fyrirtækið og stefna þess er
gjörbreytt,“ segir Ásdís Ýr. „Það
eru nærri 20 ár síðan þessi herferð
fór af stað. Og sem betur fer erum
við komin langan veg. Við sjáum í
dag að önnur flugfélög í heiminum
fylgja okkar fordæmi í jafnréttis-
málum. Við viljum verða afgerandi
í jafnréttismálum á alþjóðavett-
vangi. Og það er spurning um sam-
keppnishæfni og sjálf bærni fyrir-
tækisins,“ leggur Ásdís áherslu á.
„Það er margsannað að f jöl-
breytni á vinnustað skilar sér í betri
ákvarðanatöku, það er margsann-
að. Jafnréttismál eru líka mikilvæg í
hugum neytenda okkar,“ segir Elísa-
bet. kristjanabjorg@frettabladid.is
Enginn mun verða
skikkaður í hælaskó
Icelandair tilkynnti á nýafstöðnu Heimsþingi kvenleiðtoga fyrirheit sín um
kynjajafnrétti. Fyrirtækið ætlar meðal annars að fjölga karlflugþjónum og
samræma reglur um milli kynja varðandi einkennisfatnað starfsmanna.
Kynjajafnrétti hefur verið sett á dagskrá hjá Icelandair. Elísabet og Ásdís Ýr. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
99%
flugvirkja eru karlar.
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI
AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Komdu í kaff i
baksturinn!
Allt í
Hversu eggjað
er það?
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur mun fjalla
um mörk opinberrar umf jöll-
unar lögreglu og ákæruvalds um
sakamál sem til rannsóknar eru.
Rétturinn féllst í vikunni á beiðni
Gísla Reynissonar um áfrýjun
dóms Landsréttar þar sem honum
voru dæmdar tvær og hálf milljón
í bætur í vegna svonefnds Aserta-
máls. Bæturnar fékk Gísli vegna
aðgerða lögreglu og ákæruvalds
v ið rannsók n Aser t a-málsins
sem varðaði meint stórfellt brot á
gjaldeyrislögum en Gísli og aðrir
ákærðu í málinu voru sýknaðir í
Héraðsdómi Reykjaness árið 2014.
Þær aðgerðir sem Gísli fékk
bætur fyrir voru handtaka, hús-
leit, haldlagning og rannsókn
f jarskiptagagna, kyrrsetning á
eignum og haldlagning fjármuna á
bankareikningi hans. Landsréttur
hafnaði hins vegar kröfu Gísla um
bætur vegna ummæla sem Helgi
Magnús Gunnarsson, þá yfirmaður
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra, lét falla á sérstökum
blaðamannafundi sem boðað var
til um málið þegar það var á rann-
sóknarstigi.
Í ákvörðun sinni um áfrýjunar-
leyfi féllst Hæstiréttur á að dómur
um þetta atriði geti haft fordæmis-
gildi en beiðni Gísla byggist meðal
annars á því að Hæstirréttur hafi
ekki áður fjallað um hvar leyfileg
mörk umf jöllunar lögreglu og
ákæruvalds séu um mál sem til
rannsóknar eru. Stjórnarskrárvar-
in réttindi vegist á við slíkt mat. – aá
Leggja á línur um opinbera umfjöllun
Helgi Magnús Gunnarsson sat fyrir
miðju á blaðamannafundi rannsak-
enda um Aserta-málið árið 2010.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
9
-4
8
C
4
2
4
4
9
-4
7
8
8
2
4
4
9
-4
6
4
C
2
4
4
9
-4
5
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K