Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.11.2019, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 21.11.2019, Qupperneq 6
VIÐSKIPTI Icelandair ætlar á næstu fimm árum að tryggja jafnt kynja- hlutfall meðal stjórnenda félags- ins. Hlutfall karla eða kvenna verði ekki undir 40 prósentum árið 2025. Þá ætlar fyrirtækið að fjölga stöðu- gildum kvenflugmanna um 25 pró- sent og stöðugildum karlflugþjóna um 25 prósent miðað við núverandi stöðu. Að auki ætlar fyrirtækið sér að fjölga konum í störfum f lug- virkja með því að kynna f lug- virkjastörf og -nám fyrir stúlkum og taka einkennisfatnað flugþjóna til endurskoðunar. „Við höfum unnið markvisst að jafnréttismálum síðustu ár og uppfært stefnu okkar þar sem samfélagsábyrgð er ríkur þáttur. Icelandair hefur ákveðið að leggja fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til grundvallar stefnu sinni í samfélagsábyrgð og er jafn- rétti kynjanna eitt af þeim,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumað- ur samskipta og samfélagsábyrgðar hjá flugfélaginu. „Við erum að setja kynjajafnrétti á dagskrá,“ segir Elísabet Helgadótt- ir, framkvæmdastjóri mannauðs hjá Icelandair. „Við höfum verið að horfa til þess að fjölga konum í stjórnendastöðum í fyrirtækinu og það hefur verið hraður gangur í því síðustu ár. Fyrir rúmlega tíu árum var engin kona í framkvæmdastjórn eða stjórn fyrirtækisins. Í dag er kynjahlutfallið í stjórn félagsins 40 prósent konur og 60 prósent karlar og í framkvæmdastjórn eru þrjár konur af átta framkvæmdastjórar. Þá er kynjahlutfall meðal annarra stjórnenda en þeirra sem sitja í framkvæmdastjórn jafnt. Það hefur verið átak í því að fjölga kvenflugmönnum, það hefur hækk- að úr 6,5 prósentum í 12 prósent á áratug. Hlutfall karlflugþjóna hefur einnig hækkað, var 5 prósent en er nú 9 prósent, við viljum vinna í því að hvetja karlmenn til að sækja um störf sem flugþjónar,“ nefnir hún og segir vinnu í jafnréttisáætlun ekki orðin tóm. „Við erum vakandi fyrir öllu í starfi fyrirtækisins og að kynin hafi jöfn tækifæri. Við viljum að það sé jafnt í nefndum og verkefnavinnu þegar kemur að stórum ákvarð- anatökum innan fyrirtækisins. Þá ætlum við að draga úr skaðlegum staðalímyndum sem eru ríkjandi um kynin í f lugi,“ segir Elísabet. Hún segir mikilvægt að huga að einkennisfatnaðinum, enda klæðist stærstur hluti starfsmanna slíkum fatnaði við störf sín. „Við erum í heildarendurskoðun á einkennis- fatnaði samhliða því að draga úr skaðlegum staðal ímyndum í okkar iðnaði. Við viljum samræma reglur á milli kynja. Það hafa til dæmis verið ákveðin viðmið hvað varðar skó- fatnað og farða sem verður breytt í takt við nútímann. Konur eiga að hafa val um það hvort þær eru á háum hælum eða með farða. En við drögum ekki úr kröfum, starfsfólk okkar er þekkt fyrir glæsileika og þannig verður það áfram. Númer eitt, tvö og þrjú er öryggi um borð,“ leggur Elísabet áherslu á. Ásdís segir ímynd f lugfélagsins fara saman við ímynd þjóðar. „Við erum íslenskt f lugfélag, kennt við Ísland sem er mjög framarlega í jafnréttismálum. Við teljum eðli- legt að við getum staðið undir þeim hagsmunum sem jafnrétti er fyrir Íslendinga,“ segir hún. Á árunum 2001 til 2003 var Ice- landair kært til kærunefndar jafn- réttismála fyrir svokallaðar Dirty Weekend auglýsingar sem voru birtar í Bretlandi. „Fyrirtækið og stefna þess er gjörbreytt,“ segir Ásdís Ýr. „Það eru nærri 20 ár síðan þessi herferð fór af stað. Og sem betur fer erum við komin langan veg. Við sjáum í dag að önnur flugfélög í heiminum fylgja okkar fordæmi í jafnréttis- málum. Við viljum verða afgerandi í jafnréttismálum á alþjóðavett- vangi. Og það er spurning um sam- keppnishæfni og sjálf bærni fyrir- tækisins,“ leggur Ásdís áherslu á. „Það er margsannað að f jöl- breytni á vinnustað skilar sér í betri ákvarðanatöku, það er margsann- að. Jafnréttismál eru líka mikilvæg í hugum neytenda okkar,“ segir Elísa- bet. kristjanabjorg@frettabladid.is Enginn mun verða skikkaður í hælaskó Icelandair tilkynnti á nýafstöðnu Heimsþingi kvenleiðtoga fyrirheit sín um kynjajafnrétti. Fyrirtækið ætlar meðal annars að fjölga karlflugþjónum og samræma reglur um milli kynja varðandi einkennisfatnað starfsmanna. Kynjajafnrétti hefur verið sett á dagskrá hjá Icelandair. Elísabet og Ásdís Ýr. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 99% flugvirkja eru karlar. Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Komdu í kaff i baksturinn! Allt í Hversu eggjað er það? Afgreiðslutímar á www.kronan.is DÓMSMÁL Hæstiréttur mun fjalla um mörk opinberrar umf jöll- unar lögreglu og ákæruvalds um sakamál sem til rannsóknar eru. Rétturinn féllst í vikunni á beiðni Gísla Reynissonar um áfrýjun dóms Landsréttar þar sem honum voru dæmdar tvær og hálf milljón í bætur í vegna svonefnds Aserta- máls. Bæturnar fékk Gísli vegna aðgerða lögreglu og ákæruvalds v ið rannsók n Aser t a-málsins sem varðaði meint stórfellt brot á gjaldeyrislögum en Gísli og aðrir ákærðu í málinu voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjaness árið 2014. Þær aðgerðir sem Gísli fékk bætur fyrir voru handtaka, hús- leit, haldlagning og rannsókn f jarskiptagagna, kyrrsetning á eignum og haldlagning fjármuna á bankareikningi hans. Landsréttur hafnaði hins vegar kröfu Gísla um bætur vegna ummæla sem Helgi Magnús Gunnarsson, þá yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra, lét falla á sérstökum blaðamannafundi sem boðað var til um málið þegar það var á rann- sóknarstigi. Í ákvörðun sinni um áfrýjunar- leyfi féllst Hæstiréttur á að dómur um þetta atriði geti haft fordæmis- gildi en beiðni Gísla byggist meðal annars á því að Hæstirréttur hafi ekki áður fjallað um hvar leyfileg mörk umf jöllunar lögreglu og ákæruvalds séu um mál sem til rannsóknar eru. Stjórnarskrárvar- in réttindi vegist á við slíkt mat. – aá Leggja á línur um opinbera umfjöllun Helgi Magnús Gunnarsson sat fyrir miðju á blaðamannafundi rannsak- enda um Aserta-málið árið 2010. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -4 8 C 4 2 4 4 9 -4 7 8 8 2 4 4 9 -4 6 4 C 2 4 4 9 -4 5 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.