Fréttablaðið - 21.11.2019, Side 8
SKÓHÖLLIN
FIRÐI HAFNARFIRÐI SÍMI 555 4420
20% afsláttur
SIXMIX OG PIANO
21. - 23. nóvember
AUSTURRÍKI Reykingabann á veit-
ingastöðum og skemmtistöðum
hefur loksins tekið gildi í Austur-
ríki en lög þess efnis voru sam-
þykkt í júlí. Andstæðingar reyk-
inga hafa um árabil kallað landið
„öskubakka Evrópu“.
Umræðan hefur verið hörð í 13 ár
en til stóð að setja reykingabannið
á árið 2017 en þá kom hinn þjóð-
ernispopúlíski Frelsisf lokkur í veg
fyrir það. Heinz-Christian Strache,
leiðtogi Frelsisf lokksins til 14 ára
og sjálfur mikill reykingamaður,
taldi að ríkið ætti ekki að skipta
sér af reykingum fólks. Og reyndar
ekki heldur hraðakstri í umferð-
inni.
Um 25 prósent Austurríkis-
manna reykja sígarettur, sem er
hæsta hlutfallið í Evrópu vestan
járntjaldsins og langt yfir 18 pró-
senta meðaltali álfunnar.
Í fyrra hófst mikið átak til þess
að fá bannið í gegn. Heilbrigðis-
stofnun landsins beitti sér fyrir
undirskriftasöfnun sem tæp millj-
ón manns skrifaði undir. En Frelsis-
f lokkurinn kom í veg fyrir þjóð-
aratkvæðagreiðslu um málið, þrátt
fyrir að f lokkurinn væri almennt
hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslum
um f lest mál. Þegar Frelsisf lokkur-
inn hrökklaðist úr ríkisstjórninni
í vor eftir spillingarmál tengt
Strache gafst tækifæri til að koma
löggjöfinni í gegn. – khg
25%
Austurríkismanna reykja
sígarettur, sem er hæsta
hlutfallið í Evrópu vestan
járntjaldsins og langt yfir 18
prósenta meðaltali álfunnar.
Langri baráttu fyrir reykingabanni lokið í Austurríki
Fótboltamaður grunaður um að
vera höfuðpaur eiturlyfjahrings
SPÁNN Sergio Contreas, fyrrverandi
atvinnumaður í fótbolta, var hand-
tekinn á þriðjudag, grunaður um
að vera höfuðpaur eiturlyfjahrings
sem starfar á suðurhluta Spánar.
Contreras var á ferli sínum þekktur
sem Koke, en þó ekki hinn þekkti
landsliðsmaður Koke sem spilar
með Atletico Madrid.
Handtakan fór fram í bænum
Este pona, sem er mitt á milli
Gíbraltar höfða og hins vinsæla
ferða manna staðar Marbella. Á sama
tíma fóru fram lögregluaðgerðir víðs
vegar um suðurhluta Spánar, svo
sem í borgunum Sevilla, Malaga og
Granada. Í aðgerðunum voru alls
20 manns handteknir, hald lagt á
eitt tonn af kannabisefnum og 700
þúsund evrur í peningum, eða rúm-
lega 95 milljónir króna.
Sa m k væmt lög reg lu n n i er
Contreras grunaður um að vera
leiðtogi hópsins og að skipuleggja
starfsemina. Er honum nú haldið í
gæsluvarðhaldi í borginni Malaga.
Contreras er 36 ára gamall og lék
fótbolta frá 2001 til 2016 sem fram-
herji. Hann hóf ferilinn í heimabæ
sínum Malaga en fór ungur til
franska liðsins Marseille þar sem
hann skoraði 6 mörk í 43 leikjum.
Eftir stutt lán til Sporting Lissa-
bon spilaði Contreras í fimm ár
með gríska liðinu Aris. Eftir það
varð hann hálfgerður flækingur og
spilaði meðal annars með Houston
Dynamo í Bandaríkjunum, FC Baku
í Aserbaídjsan, Blooming í Bólivíu
og NorthEast United á Indlandi.
– khg
Contreras skoraði 6
mörk í 43 leikjum fyrir
Marseille.
Contreras í leik Aris gegn AEK árið 2009. NORDICPHOTOS/GETTY
BANDARÍKIN Gordon Sondland,
sendiherra Bandaríkjanna hjá
ESB, segir að Donald Trump Banda-
ríkjaforseti hafi skipað sér að beita
stjórnvöld í Úkraínu þrýstingi til að
hefja rannsókn á Joe Biden. Þetta
kom fram í vitnisburði Sondlands
fyrir nefnd Bandaríkjaþings sem
rannsakar embættisfærslur for-
setans.
Sondland sagði Trump hafa beðið
sig að vinna með Rudy Giuliani,
lögmanni Trumps, að stefnumótun
varðandi Úkraínu. Það hafi hann
gert þvert gegn vilja sínum því ann-
ars hefði mikilvægt tækifæri til að
bæta samskipti landanna glatast.
Opnar vitnaleiðslur í málinu
héldu áfram í gær en þeim lýkur í
dag. Tilefni rannsóknar fulltrúa-
deildar þingsins á forsetanum er
símtal hans við úkraínskan starfs-
bróður sinn þann 25. júlí síðast-
liðinn.
Snúast ásakanirnar um að Trump
hafi reynt að fá úkraínsk stjórn-
völd til að rannsaka viðskipti Joes
Biden, sem sækist eftir að verða
forsetaframbjóðandi Demókrata
í kosningum næsta árs, og sonar
hans, Hunters.
Reuters-fréttastofan segir að
Sondland, sem áður hafði borið
vitni fyrir luktum dyrum, hafi í
gær gengið mun lengra í lýsingum
sínum á þátttöku ýmissa embættis-
manna í málinu. Sjálfur hafi hann
lagst gegn því að 400 milljóna doll-
ara hernaðaraðstoð til Úkraínu
yrði frestað á meðan þrýst væri á
rannsóknina á Biden-feðgum.
„Það voru allir inni í þessu. Þetta
var ekkert leyndarmál,“ sagði
Sondland. Hann staðfesti einn-
ig að Trump hefði stungið upp
á að Zelenskí, forseta Úkraínu,
yrði boðið í opinbera heimsókn í
Hvíta húsið gegn því að rannsókn
á Biden-feðgunum færi fram. Hér
hefði einfaldlega verið um greiða á
móti greiða að ræða.
Sjálfur hefur Trump sagt að ekk-
ert óeðlilegt hafi átt sér stað í sam-
skiptum hans við Zelenskí. Þá hefur
hann algjörlega hafnað því að hafa
boðið greiða á móti greiða.
Sondland vék einnig að þætti
Mikes Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í málinu. Vísaði
hann meðal annars í tölvupóstsam-
skipti þeirra um hernaðaraðstoð-
ina til Úkraínu. Pompeo vildi ekki
tjá sig við fréttamenn um vitnis-
burð Sondlands.
Adam Schiff, formaður þing-
nefndarinnar sem fer með rann-
sóknina, sagði vitnisburð Sond-
lands mikilvægan kaf la í sögu
rann sók nar innar. Þar na vær i
komið að mútum og öðrum póli-
tísk um misgjörðum.
„Við heyrðum líka í fyrsta sinn
um hversu útbreidd vitneskja um
þessa áætlun var,“ sagði Schiff.
sighvatur@frettabladid.is
Trump hafi þrýst á um
rannsókn á Joe Biden
Gordon Sondland við vitnaleiðslurnar í þinginu í gær. NORDICPHOTOS/GETTY
Yfirheyrslur nefndar
fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings vegna
rannsóknar á emb-
ættisfærslum Donalds
Trump héldu áfram í
gær. Sendiherra Banda-
ríkjanna hjá ESB segir
að forsetinn hafi skipað
sér að beita úkraínsk
stjórnvöld þrýstingi til
að rannsaka pólitíska
andstæðinga hans.
Deilt hefur verið um reykingabann í þrettán ár. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
9
-4
3
D
4
2
4
4
9
-4
2
9
8
2
4
4
9
-4
1
5
C
2
4
4
9
-4
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K