Fréttablaðið - 21.11.2019, Page 36

Fréttablaðið - 21.11.2019, Page 36
BÍLAR Í fyrsta skipti er kominn Must-ang fram á sjónarsviðið sem ekki er tveggja dyra, er raf-drifinn og með fjórhjóladrifi. Þessi nýi Mustang er í raun og veru jepplingur en verður boðinn bæði með afturdrifi og fjórhjóladrifi. Drægni hans í grunnútfærslu eru 370 km en hann er þá með 75,7 kWh raf- hlöðu í 255 hestafla útfærslu. Einnig verður hægt að fá hann með stærri langdrægari 98,8 kWh rafhlöðu með 282 hestafla rafmótor við afturdrifið og með rúmlega 500 km drægni samkvæmt EPA-staðlinum. EPA- staðallinn miðar meira við lang- keyrslu heldur en evrópski WLTP- staðallinn sem er meira fyrir akstur á styttri vegalengdum. Bíllinn verður boðinn í fjórum útfærslum, Select, California Route 1, Premium og GT. GT-útgáfan verður hins vegar 459 hestöfl og með 830 Newtonmetra tog. Sú útgáfa á að geta náð 100 km hraða á þremur og hálfri sekúndu. Með sjálfstýribúnaði Nýi Mustang Mach E verður búinn sjálfstýribúnaði svipuðum Tesla Autopilot-búnaðinum. Verður bún- aðurinn í Premium- og GT-línum bílsins en hugbúnaðurinn verður í boði sem aukabúnaður. Ford hefur þó ekki ákveðið hvenær þeir muni virkja þennan búnað en hann notar myndavélar og leysigeisla til að fylgjast með akstrinum. Ford hefur ekki sagt hvað búnaðurinn verði kallaður eða hvað hann muni kosta. Að sögn Gísla Jóns Bjarna- sonar, sölustjóra Ford hjá Brimborg, hefst forsala á Mustang Mach E á Íslandi næsta haust. „Við vonumst til að fá bíla í lok ársins eða í síðasta lagi byrjun árs 2021,“ sagði Gísli. GT-útgáfan mun svo ekki koma fyrr en vorið 2021 í Bandaríkjunum. Grunnútgáfa bílsins mun kosta 5,4 milljónir króna í Bandaríkjunum en GT-útgáfan 7,5 milljónir króna. Mustang Mach E frumsýndur í Los Angeles Toyota kynnti nýja tengil-t v innútgáf u R AV4 jepp-lingsins á Bílasýningunni í Los Angeles í gær. Bíllinn er tæp 300 hestöfl og er með rafhlöðu sem kemur honum 63 km í hreinum raf- akstri. Útgáfan kallast Prime og er aflmesta og eyðslugrennsta útfærsla RAV4 frá upphafi. Vélin í bílnum er 2,5 lítra bensínvél sem með raf- mótorunum tveimur kemur honum í hundraðið á 6,2 sekúndum. Raf- mótorarnir eru á báðum öxlum en bensínvélin knýr framdrifið líka. Báðir rafmótorarnir eru með hleðslubremsubúnaði sem hleður rafhlöðuna og eru f lipar á stýri til að nota það eins og við niðurgírun. Í Ameríkuútgáfunni verður bíllinn með veglínusk y njara, umferðarmerkjalesara, árekstrar- vörn,  18 tommu álfelgum og átta tommu upplýsingaskjá sem virkar fyrir Apple CarPlay, Andriod Auto og Amazon Alexa. Ekki hefur verið gefið út hvort Evrópuútgáfurnar verða öðruvísi búnar. Bíllinn fer í sölu snemma á næsta ári í Banda- ríkjunum og líklega skömmu síðar í Evrópu. Toyota RAV4 kemur í 300 hestafla tengiltvinnútgáfu Fimmta kynslóð RAV4 verður einnig fáanleg í tengiltvinnútgáfu á næsta ári. Frá frumsýningu Ford Mustang Mach E í Los Angeles á mánudaginn. Bíllinn er fyrsti rafdrifni Mustanginn og keppir við Tesla Model S. NORDICPHOTOS/GETTY Stóri skjárinn fyrir miðju minnir mikið á innanrými Tesla en bíllinn verður með sjálfstýribúnað líkt og Tesla Autopilot. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Karma forsýndi tilraunaút-gáfu SC2 ofursportbílsins rétt fyrir opnun Bílasýning- arinnar í Los Angeles. Bíllinn er raf- drifinn og skilar 1.085 hestöf lum, 1.400 Newtonmetra togi og fer í hundraðið á aðeins 1,9 sekúndum. Ekki amalegt það. Af lið kemur frá 120 kWh raf- hlöðu sem samkvæmt Karma duga r f y r ir 560 k m a k st u r. Fjöðrun og grind er þannig búin að þegar lagt er á bílinn í beygju færist álagið inn á við og á grind bílsins líkt og í Formúlu 1 bíl. Auk þess er tilraunabíllinn búinn keramik bremsum af sverustu sort. Hátæknibúnaður eins og and- litsskanni til að opna dyrnar er í bílnum auk krómglers sem hægt er að gera ógegnsætt. Ef bíllinn fer í framleiðslu má búast við honum á markað árið 2022 en fyrst mun Karma-merkið setja Revero GT á markað á næsta ári, en hann var einnig sýndur í Los Angeles í upp- færðri útgáfu. Tilraunabíllinn Karma SC2 forsýndur Karma SC2 er nánast framleiðsluhæfur en hvort hann fær allt sem tilraunabíllinn hefur er óvíst ennþá. Verður með sjálf- stýribúnaði og með 370 km drægni í grunnútfærslu. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R28 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 9 -2 6 3 4 2 4 4 9 -2 4 F 8 2 4 4 9 -2 3 B C 2 4 4 9 -2 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.