Fréttablaðið - 30.11.2019, Síða 8
Langmesta aukningin
undanfarinn áratug er hins
vegar meðal þeirra sem
skráðir eru utan trú- og
lífsskoðunarfélaga og eru
með ótilgreinda skráningu í
trúfélög samkvæmt Þjóð-
skrá.Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI
AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Komdu í kaff i
á brauðið, pönnuna og í baksturinn
✿ Mannfjöldi utan félaga og með ótilgreinda skráningu
✿ Fækkun í þjóðkirkjunni
eftir aldurshópum
50.000
40.000
30.000
20.000
10.000
TRÚMÁL Meðlimum í þjóðkirkjunni
hefur fækkað um tæplega tuttugu
þúsund á áratug. Greiðendum
sóknargjalda í þjóðkirkjunni hefur
hins vegar aðeins fækkað um tæp
tíu þúsund en greiðsla þeirra hefst
við 16 ára aldur.
Á síðustu tíu árum hefur með-
limum kirkjunnar á aldrinum 0 til
17 ára fækkað um tíu þúsund. Þeir
voru 68.790 árið 2010 en eru í ár
54.248. Langstærstur hluti þessarar
fækkunar hefur færst yfir á þá sem
eru skráðir utan trú- og lífsskoðun-
arfélaga eða eru með skráninguna
„ótilgreint“ í þjóðskrá.
Í Fréttablaðinu í gær var fjallað
um hve mjög hefur dregið úr skrán-
ingum í þjóðkirkjuna við fæðingu
en hlutfall þeirra barna sem skráð
eru við fæðingu fór fyrst niður fyrir
50 prósent á síðasta ári.
Langmesta aukningin undan-
farinn áratug er hins vegar meðal
þeirra sem skráðir eru utan trú- og
lífsskoðunarfélaga og eru með ótil-
greinda skráningu í trúfélög sam-
kvæmt þjóðskrá. Hlutfall þessara
hópa var tæplega tíu prósent lands-
manna árið 2010 en er nú komið
upp í 20 prósent.
Þau trú- og lífsskoðunarfélög
sem mest hafa bætt við sig í með-
limafjölda undanfarin tíu ár eru
Kaþólska kirkjan, Ásatrúarfélagið
og Siðmennt.
Fjöldi meðlima í trú- og lífs-
skoðunarfélögum ræður fjárhæð
sóknargjalda þeirra úr ríkissjóði.
Sóknargjöld hvers árs miðast við
skráningu í félög eins og hún er
1. desember árið á undan. Þann-
ig miðast greiðsla sóknargjalda til
skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga
árið 2020 við fjölda meðlima í
hverju og einu þeirra eins og hann
Fækkunin í kirkjunni
mest af yngri kynslóð
Þeim fjölgar hratt sem skráðir eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða eru með
óskilgreinda trúfélagaskráningu í Þjóðskrá. Að sama skapi fækkar meðlimum
þjóðkirkjunnar hratt. Langmest fækkun þar er meðal fólks undir sautján ára.
Síðustu tíu árin hefur meðlimum kirkjunnar á aldrinum 0 til 17 ára fækkað um tíu þúsund. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
er 1. desember næstkomandi, sem
er á morgun.
Í sérstöku viðbótarsamkomu-
lagi ríkisins við þjóðkirkjuna sem
ríkisstjórnin undirritaði í haust, um
greiðslur ríkisins til kirkjunnar, er
sérstaklega kveðið á um að hvor-
ugur samningsaðila geti borið fyrir
sig fjölgun eða fækkun á meðlimum
þjóðkirkjunnar sem leiða kunni af
mögulegum breytingum á lögum
eða reglum um skráningu í trúfélög
eða á framkvæmd skráninga.
Með samkomulaginu skuldbind-
ur ríkið sig til að greiða þjóð kirkj-
unni 3,45 millj arða á ári hverju,
fyrir utan sóknargjöld. Um leið er
horfið frá því fyrirkomulagi að ríkið
greiði tilteknum fjölda starfsmanna
kirkjunnar laun og fer kirkjan nú
með sjálfdæmi um starfsmannamál
sín. adalheidur@frettabladid.is
0-17 ára 18 ára og eldri
2010 64.790 186.697
2011 63.548 183.697
2012 62.414 183.042
2013 61.563 183.621
2014 60.597 183.843
2015 59.321 183.422
2016 57.774 180.164
2017 56.628 179.853
2018 55.580 178.635
2019 54.248 178.343
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
n Ótilgreint n Utan trú- og lífsskoðunarfélaga
VESTFIRÐIR Fulltrúar meirihluta
Sjálfstæðisf lokksins og Fram-
sóknarf lokksins á Ísafirði hafa
falið Guðmundi Gunnarssy ni
bæjarstjóra að óska eftir samstarfi
við Bolungarvíkurkaupstað og
Súðavíkurhrepp um endurskoðun
almenningssamgangna. Einnig er
kallað eftir því að Fjórðungssam-
band Vestfirðinga komi að verk-
efninu.
Samk væmt st utt r i g reinar-
gerð hefur verið skortur á góðum
almenningssamgöngum á Ísafirði,
meðal annars með tilliti til tóm-
stunda og íþróttaæfinga. Strætis-
vagnar Ísafjarðar bjóða upp á fjór-
ar til sex ferðir á milli Ísafjarðar,
Hnífsdals, Holtahverfis, Flateyrar,
Suðureyrar og Þingeyrar á dag.
Engu að síður þurfa íbúar oft að
bíða lengi eftir ferðum. – khg
Vestfirðingar vilja betri
almenningssamgöngur
Skortur er á almenningssamgöngum á Ísafirði FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-1
0
B
4
2
4
6
1
-0
F
7
8
2
4
6
1
-0
E
3
C
2
4
6
1
-0
D
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K