Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 34

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 34
það sem gerist er að ég fer að vinna í meðvirkni gagnvart honum,“ segir Hulda um ógeðslegt andlegt eitrið sem mengar líf allra alkabarna. Mausað í markaleysi „Ég fann að hann hafði ekki þol fyrir þessu og ég fór að bera meiri virðingu fyrir mörkunum sem hann var reyna að setja mér,“ segir Hulda þegar sonurinn truflar hana. „Þetta er eins og að vera í fjölskylduráð- gjöf að vera hérna …“ segir hann en kemst ekki lengra þar sem Hulda er rétt að byrja: „Í alvöru. Þetta er bara þannig. Ég hefði aldrei getað gert þetta ein. Ég þurfti að fá hjálp til þess og hef verið með frábæran sálfræðing,“ segir Hulda og eys Birgi Örn Steinarsson, löngum þekktan sem Bigga í Maus, lofi. „Hann er alveg dásamlegur og er líka svona eins og skeggjaður sonur minn. Hann hefur eiginlega bara gert undur og stórmerki og hefur kennt mér að bera virðingu fyrir mörkum Mikka.“ „Mamma er í sálfræðitímum hjá Birgi Erni Steinarssyni, fyrrverandi blaðamanni Fréttablaðsins, og við erum í fjölskylduráðgjöf hjá Þórarni Þórarinssyni, blaðamanni á Frétta- blaðinu,“ segir Mikki og hlær að helst til óvæntri aðkomu tveggja fyrrverandi undirmanna hans að f jölskyldudramanu sem fengið hefur farsæla lausn. „Okkar ástarsamband hefur alltaf verið svolítil teygja. Stundum náið en síðan kemur alltaf fjarlægð. Eitthvert rof. Þetta er bara beyglað mynstur okkar á milli sem við ein getum lagað,“ segir Hulda. Mikael bætir við að það hafi fleira í sambandi þeirra verið f lókið en þau tvö. „Þarna voru líka Vottar Jehóva, mamma í sértrúarsöfnuði og svona sem ég fjalla líka um í bók- inni. Þetta er rosalega flókið þegar annar aðilinn í svona mæðginasam- bandi er einhvern veginn að bíða eftir heimsendi.“ Eitruð ást „Ég held að okkur hafi báðum tekist að skilja að samband okkar, móður og sonar, hafi verið svona „toxic relationship“, segir Mikael og fullyrðir að allir sem reynt hafi viti, óháð hvers konar ástarsam- bandi þeir voru í, að eituráhrifin eru ósýnileg þangað til stigið er út úr eitraða sambandinu. „Þangað til er fólk bara í tunn- unni með öllu eitrinu. Hvort sem það er móðir og sonur eða fólk sem er í sambandi við maka og heldur að allt sé rosa fínt þótt andrúmsloftið sé í raun geislavirkt,“ segir Mikael og bætir við að það séu ánægju- stundirnar inni á milli sem slái fólk þessari blindu. „Samband okkar var svona „toxic“ en var auðvitað gott líka. Við áttum góðar stundir,“ segir Mikael og Hulda tekur undir: „Yndislegar. Dásamlegar,“ og Mikael minnir á að merking þrífst á andstæðu sinni: „Síðan áttum við fáránlegar stundir. Ég man að þegar ég var unglingur þá var þetta náttúrlega bara … En ég held að maður geti ekki skrifað um það eða skilið það nema maður sé búinn að stíga út úr því. Þá sér maður …“ Lengra kemst hann ekki þar sem mamma grípur orðið og lokar málinu: „Það er alveg rétt. Ég er sammála því.“ Dásamlegt uppgjör Varla þarf að fjölyrða um að það er ekki andlegum heiglum hent að gera upp erfið sambönd og tilfinn- ingar fyrir augum allra sem horfa vilja. Hulda segist hins vegar vera komin á þann stað í lífinu að hún fagni innilega frásögn Mikaels af leitinni að týndu mömmunni í bréfi sem er stílað á hana. „Ég veit að bókin er bréf til mín og mér finnst það dásamlegt,“ segir Hulda bætir við að hún hafi ekki reiðst þegar Mikael sagði henni frá bréfinu, þótt hún hafi verið búin að frábiðja sér f leiri bækur um fjöl- skylduna. „Ég var búin að segja við Mikka að ég væri ekki tilbúin í f leiri partí,“ segir Hulda. „Meiri bækur,“ útskýrir Mikael áður en mamma hans heldur áfram: „Og ég fann að þetta var vont fyrir hann. Eða ég upplifði það þannig og það var erfitt fyrir mig líka að setja honum þessi mörk af því að ég hef alltaf verið tilbúin til þess að vera með honum í einhverju geimi. Svo hringir hann í mig og ég vissi það. Inni í mér. Í hjartanu að hann var að skrifa bók. Hann sagði það ekki en ég vissi það. Það eru einhver tengsl þarna á milli mín og hans sem er bara mjög erfitt fyrir fólk að skilja og ég ætlast ekki til þess.“ Sektarkennd dauðans Hulda segir að þegar hún hafi verið með börnin hafi meðvirknin skrúf- ast í botn. Hún hafi nánast kæft strákana sína með ást, umhyggju og ofverndun sem Mikki segir þá bræður hafa markvisst reynt að snúa upp í leiðindi og læti. „Ég var alltaf með sektarkennd dauðans og ég bara tók mig og lamdi mig niður. Þú ert ljót, þú ert vond, þú átt ekki tilverurétt, þú ert bara ógeðsleg kona, hvernig gastu látið börnin þín frá þér? Hvernig gastu verið svona vond? Ég bara tek þessa 28 ára ungu konu og bara lem hana niður í svona brjálæðislegum tilfinningum. Ég fæ sko gæsahúð þegar ég tala um þetta. Ég vissi ekkert hvar ég var stödd. Fékk enga aðstoð, enga hjálp. Ekk- ert. Og ég hætti sem vottur og fékk enga aðstoð þar og bara stóð uppi ein. Með allar mínar tilfinningar sem ég réð ekkert við og vissi ekkert hvað þær væru. Þegar ég hugsa til baka, sem 67 ára gömul kona, í dag þá var þessi 28 ára kona svolítið að hefna sín á manninum sem hún var gift. Sem er rosalega sárt,“ segir Hulda um tilfinningalegu blindgötuna sem þau Mikki villtust niður eftir að þau Torfi skildu. „Ég var búin að vera heima með krakkana mína þrjá. Hugsa um þau, hræra í kókó- maltinu, bursta skóna þeirra …“ „Þú varst náttúrlega húsmóðir í Vottum Jehóva,“ skýtur Mikael inn í og bendir á að hún hafi þannig verið undirokuð af feðraveldinu af fullum þunga. „Þú ert æðisleg mamma“ „Ég var bara alveg súpermamma en svo bara gerist það, og það er ekk- ert svo langt síðan, að ég fer að átta mig á að þessi 28 ára kona var bara rosalega týnd og leið bara of boðs- lega illa. Ég vissi ekkert hvernig ég átti að höndla það en Biggi hefur hjálpað mér með það. Hann benti mér á í sálfræðitímum hjá honum að það væri gegnumgangandi í samtölum okkar að ég talaði um það þegar ég yfirgaf strákana mína. Hann spurði mig síðan hvenær það hafi verið sem ég yfirgaf þá og ég sagði: „Þegar ég lét þá frá mér.“ Þá segir hann: „Nei, þú hefur aldr- ei yfirgefið þá. Þú hefur alltaf verið til staðar. Og ég fór út frá honum eins og … Ég get ekki lýst því. Þetta var svo ógeðslega góð tilfinning, ástartilfinning, og ég fór og keypti blóm. Stóran blómvönd handa þess- ari 28 ára gömlu konu og sagði: „Þú ert æðisleg mamma, ég er að kaupa þessi blóm handa þér. Þú ert 28 ára. Þú ert æðisleg mamma.“ Þetta var eins og að fá frelsi. Ég hafði aldrei áður getað fyrirgefið þessari konu. Ég kunni það ekki.“ Mæðginin hafa hér rétt gárað yfirborðið þess tilfinningalega hyl- dýpis sem þau spyrntu sér upp úr hvort í sínu lagi með þeim árangri að við eldhúsborðið í Heiðargerði sitja þau í dag sem svo góðir vinir að Mikael finnur ekki lengur hjá sér þörf til þess að flýja af Facebook þegar mamma gengur þar ljósum logum. Góðir Facebook-vinir „Ég þoldi þetta ekki fyrst. Það er ekki eins og ég sé algerlega heil- brigður sko. Ég var að reyna að vera rosalega gáfulegur og tala um pól- itík og mamma alltaf bara sú fyrsta sem kom strax með fjörutíu hjörtu. Ég elska þig!“ Hulda skellir upp úr: „Svo var ég tilbúin að segja frá mínum veik- indum og hver ég var og hver ég var ekki.“ „Allir þurfa einhvern tímann að ganga í gegnum það að vera vand- ræðalegir í kringum mömmu sína en einhvern tímann þarf þetta að hætta. Það getur vel verið að ég hafi verið óvenju lengi hræddur við mömmu vegna bakgrunns míns og sögu okkar. En núna sér mamma um upplestra og kynningar á bók- inni á meðan ég sinni börnum í Vín. Þannig að við erum ekki hrædd við hvort annað lengur,“ segir rithöf- undurinn sem lofar, heldur ósann- færandi, að skrifa ekki f leiri bækur um fjölskylduna. „Mamma er nú þannig að hver dagur með henni er ný saga. Önnur bók.“ ÞAÐ ER VOÐALEGA ERFITT AÐ VILJA EKKI VITA ALLT OG SITJA UPPI MEÐ MIG SEM SON. Mikki virðist ekki alveg viss um að geta haldið loforðið sem hann hefur gefið Huldu um að fjölskyldubækurnar verði ekki fleiri vegna þess að hver dagur með henni er efni í aðra sögu. Leyndarmálið „Hann birtist mér í fyrstu sem góður maður sem sagðist vilja mér vel en misnotaði svo vald sitt og traust mitt og reyndi að nauðga mér. Það að vera fórnar- lamb kynferðisofbeldis er svo flókið og margslungið að um tíma vorum við vinir eftir sem áður og þá reyndi hann aftur að nauðga mér og aftur slapp ég.“ Þannig lýsir Mikael kynferðis- legri misnotkun sem hann varð fyrir í æsku og Hulda frétti fyrst af þegar hún las bréfið. Vegna þess að: „Ég gæti til dæmis aldr- ei rætt þetta við þig, mamma, undir fjögur augu. Ég þarf að skrifa mig frá þessu eins og svo mörgu öðru.“ 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 6 1 -1 5 A 4 2 4 6 1 -1 4 6 8 2 4 6 1 -1 3 2 C 2 4 6 1 -1 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.