Fréttablaðið - 30.11.2019, Blaðsíða 118
„Það var hennar ástríða að skrifa, hún var um tíma afkastamesti kvenrithöfundur landsins,“ segir Málfríður um Guðrúnu Lárusdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Guðrún tuttugu og þriggja ára með
frumburðinn, Lárus, í fanginu.
Hjónin Sigurbjörn Á. Gíslason og Guðrún ásamt dætrunum Guðrúnu Val-
gerði og Sigrúnu Kristínu, sem fórust í Tungufljóti með móður sinni.
Á leið úr Dómkirkju til Alþingis-
húss. Þetta er eina myndin sem til
er af Guðrúnu frá átta ára þingferli.
Þögnin var alger – sorg ríkti á meðal fólksins, íslensku þjóðina setti hljóða.Það var frétt um bíl-slys í Tunguf ljóti sem
hálflamaði þjóðina. Guðrún Lárus-
dóttir alþingismaður og tvær dætur
hennar, Guðrún Valgerður og Sigrún
Kristín, höfðu drukknað.
Þannig hefst bókin En tíminn
skundaði burt … Fyrsti kafli hennar
lýsir útför mæðgnanna þriggja og
mágkonu annarrar dótturinnar
laugardaginn 27. ágúst 1938 og þeirri
ríku samkennd og hluttekningu sem
borgarbúar sýndu á þeirri stundu.
„Meðan líkfylgdin fór frá kirkjunni
og í Suðurgötukirkjugarðinn var
klukkum allra kirkna bæjarins
hringt,“ segir í lýsingu sr. Þorsteins
Briem á útförinni.
Næsti kafli er hins vegar gleði-
legur. Hann hefst á þessum orðum:
„Barnsgrátur rauf þögnina áttunda
dag hins nýja árs 1880 á kirkjustaðn-
um Valþjófsstað í Fljótsdal – barnið
var lifandi fætt.“ Heimilisfólkið
gladdist og húsmóðirin Kirstín Katr-
ín lét kalla fólkið saman og bjóða
upp á kaffi. Ungu prestshjónunum,
Kirstínu Katrínu Pétursdóttur og sr.
Lárusi H. Halldórssyni, hafði fæðst
dóttir sem nú lét í sér heyra. Hún
fékk nafnið Guðrún eftir móður-
ömmu sinni.
Það er Málfríður Finnbogadóttir
menningarstjórnandi sem á heiður-
inn af þessum skrifum. Hún hefur
skilað af sér greinagóðri bók um
líf og starf Guðrúnar Lárusdóttur,
alþingismanns og rithöfundar. Þegar
ég spyr hvort sú bók sé ekki full seint
á ferð þar sem þeim fari fækkandi
sem muni eftir aðalpersónunni
svarar hún: „Jú, en hún Guðrún
var tíu barna móðir, bæjarfulltrúi í
Reykjavík, mikilvirk í félagsstarfi,
rithöfundur og fátækrafulltrúi. Svo
var hún önnur konan á Íslandi til að
setjast á þing og sú fyrsta til að ná
kjöri í almennum kosningum, hún
var alþingismaður átta síðustu árin
sín. Það þarf að segja sögu svona
merkra kvenna, þó seint sé.“
Um hálft landið á hestum
Hvert ár frá 1899 fær einn kafla hjá
Málfríði. Í upphafi hvers kafla eru
línur um mannfjölda, árferði og
stærstu viðburði á landsvísu. Einnig
setning um það helsta sem gerist í lífi
Guðrúnar og fjölskyldu, eins og þessi
um 1905: Þetta ár einkennist einkum
af tvennu, fæðingu annars sonar og
síðar utanlandsferð þeirra hjóna til
Þýskalands og Norðurlandanna.
Málfríður segir í raun merkilegt
hversu oft Guðrún fór til útlanda
og í ferðalög um landið líka – ýmist
á hestum eða með strandferða-
skipum. „Þegar hún gifti sig kemur
hún ríðandi til Þingvalla og þaðan
halda brúðhjónin norður í Skaga-
fjörð á hestum og svo austur til
Vopnafjarðar. Þetta var eitthvað
sem hún naut. Hún elskaði hesta og
var stundum með þá hér í bænum.
Það er mynd af henni í bókinni í
útreiðartúr með fleira fólki, þar situr
hún í söðli, spengileg í fínum fötum
og með hatt.“
Reikna má með að Guðrún hafi
alltaf riðið í söðli. „Hún segir reynd-
ar að pabbi hennar hafi ekki gert
athugasemd við að hún riði berbakt
þegar hún var krakki,“ tekur Mál-
fríður fram. „En væntanlega hefur
hún setið í söðli þegar hún var í reið-
túrum hér í nágrenni borgarinnar,
upp í Grafarholt, suður í Hafnarfjörð
eða Hrólfsskála. Sendibréfin hennar
eru mörg og þar liggur mikill fróð-
leikur. Á einum stað er sagt frá því að
þau hjón hafi farið suður á Vífilsstaði
í vagni, það hefur verið hestvagn.“
Málfríður segir Guðrúnu hafa
staðið að stofnun Kvenfélags Frí-
kirkjusafnaðarins og Trúboðsfélags
kvenna, verið meðal stofnenda
Barnavinafélagsins Sumargjafar og
Slysavarnadeildar kvenna, starfað
í stúkunum Hvöt og Ársól, einnig
Hvítabandinu, KFUK, Mæðrastyrks-
nefnd og Húsmæðrafélagi Reykja-
víkur. „Hún hélt margar ræður og
skrifaði fjölda greina. Barðist fyrir
bættum heimi og margir leituðu
ásjár hjá henni. Til er frásögn af því
að maður hafi komið til hennar sem
búið var að bera út á götuna með
konu og fjögur eða fimm börn og
sagt: „Ég fæ hvergi inni, hvað á ég að
gera?“ „Komdu bara,“ sagði hún og
ruddi stofuna. Þar var fjölskyldan
þar til úr leystist.
Óslökkvandi þörf fyrir að skrifa
Það kom strax fram í Guðrúnu sem
barni að hún mátti ekkert aumt sjá,
að sögn Málfríðar. „Hún var líka ein-
læglega trúuð, það leynir sér ekki.
Einhvers staðar lýsir hún því í bréfi
að tvö börnin hennar séu lasin, hún
hafi margsinnis gengið með þau um
gólf sitt á hvorum handlegg og verið
að hugsa um hvað lengi hún kæmist
úr sporunum fyrir þreytu en guð
gæfi þróttinn sem nægði hverjum
deginum.“
Guðrún hafði líka óslökkvandi
þörf fyrir að skrifa, að sögn Mál-
fríðar. „Það var hennar ástríða að
skrifa, hún var um tíma af kasta-
mesti kvenrithöfundur landsins og
bækur hennar voru mikið lesnar. „Ég
beið eftir sögunum hennar,“ segir
eldra fólk við mig. Að lokum tekur
Málfríður fram að titill bókarinnar
En tíminn skundaði burt með liðnu
dagana í fanginu sé tilvitnun í Guð-
rúnu Lárusdóttur.
Það þarf að segja sögu svona merkra kvenna
En tíminn skundaði burt … er saga Guðrúnar Lárusdóttur, alþingismanns og rithöfundar (1880-1938), skráð
af Málfríði Finnbogadóttur. Framhald titilsins er á bakhlið bókarinnar: … með liðnu dagana í fanginu.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R64 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
6
1
-1
5
A
4
2
4
6
1
-1
4
6
8
2
4
6
1
-1
3
2
C
2
4
6
1
-1
1
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K