Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 118

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 118
 „Það var hennar ástríða að skrifa, hún var um tíma afkastamesti kvenrithöfundur landsins,“ segir Málfríður um Guðrúnu Lárusdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Guðrún tuttugu og þriggja ára með frumburðinn, Lárus, í fanginu. Hjónin Sigurbjörn Á. Gíslason og Guðrún ásamt dætrunum Guðrúnu Val- gerði og Sigrúnu Kristínu, sem fórust í Tungufljóti með móður sinni. Á leið úr Dómkirkju til Alþingis- húss. Þetta er eina myndin sem til er af Guðrúnu frá átta ára þingferli. Þögnin var alger – sorg ríkti á meðal fólksins, íslensku þjóðina setti hljóða.Það var frétt um bíl-slys í Tunguf ljóti sem hálflamaði þjóðina. Guðrún Lárus- dóttir alþingismaður og tvær dætur hennar, Guðrún Valgerður og Sigrún Kristín, höfðu drukknað. Þannig hefst bókin En tíminn skundaði burt … Fyrsti kafli hennar lýsir útför mæðgnanna þriggja og mágkonu annarrar dótturinnar laugardaginn 27. ágúst 1938 og þeirri ríku samkennd og hluttekningu sem borgarbúar sýndu á þeirri stundu. „Meðan líkfylgdin fór frá kirkjunni og í Suðurgötukirkjugarðinn var klukkum allra kirkna bæjarins hringt,“ segir í lýsingu sr. Þorsteins Briem á útförinni. Næsti kafli er hins vegar gleði- legur. Hann hefst á þessum orðum: „Barnsgrátur rauf þögnina áttunda dag hins nýja árs 1880 á kirkjustaðn- um Valþjófsstað í Fljótsdal – barnið var lifandi fætt.“ Heimilisfólkið gladdist og húsmóðirin Kirstín Katr- ín lét kalla fólkið saman og bjóða upp á kaffi. Ungu prestshjónunum, Kirstínu Katrínu Pétursdóttur og sr. Lárusi H. Halldórssyni, hafði fæðst dóttir sem nú lét í sér heyra. Hún fékk nafnið Guðrún eftir móður- ömmu sinni. Það er Málfríður Finnbogadóttir menningarstjórnandi sem á heiður- inn af þessum skrifum. Hún hefur skilað af sér greinagóðri bók um líf og starf Guðrúnar Lárusdóttur, alþingismanns og rithöfundar. Þegar ég spyr hvort sú bók sé ekki full seint á ferð þar sem þeim fari fækkandi sem muni eftir aðalpersónunni svarar hún: „Jú, en hún Guðrún var tíu barna móðir, bæjarfulltrúi í Reykjavík, mikilvirk í félagsstarfi, rithöfundur og fátækrafulltrúi. Svo var hún önnur konan á Íslandi til að setjast á þing og sú fyrsta til að ná kjöri í almennum kosningum, hún var alþingismaður átta síðustu árin sín. Það þarf að segja sögu svona merkra kvenna, þó seint sé.“ Um hálft landið á hestum Hvert ár frá 1899 fær einn kafla hjá Málfríði. Í upphafi hvers kafla eru línur um mannfjölda, árferði og stærstu viðburði á landsvísu. Einnig setning um það helsta sem gerist í lífi Guðrúnar og fjölskyldu, eins og þessi um 1905: Þetta ár einkennist einkum af tvennu, fæðingu annars sonar og síðar utanlandsferð þeirra hjóna til Þýskalands og Norðurlandanna. Málfríður segir í raun merkilegt hversu oft Guðrún fór til útlanda og í ferðalög um landið líka – ýmist á hestum eða með strandferða- skipum. „Þegar hún gifti sig kemur hún ríðandi til Þingvalla og þaðan halda brúðhjónin norður í Skaga- fjörð á hestum og svo austur til Vopnafjarðar. Þetta var eitthvað sem hún naut. Hún elskaði hesta og var stundum með þá hér í bænum. Það er mynd af henni í bókinni í útreiðartúr með fleira fólki, þar situr hún í söðli, spengileg í fínum fötum og með hatt.“ Reikna má með að Guðrún hafi alltaf riðið í söðli. „Hún segir reynd- ar að pabbi hennar hafi ekki gert athugasemd við að hún riði berbakt þegar hún var krakki,“ tekur Mál- fríður fram. „En væntanlega hefur hún setið í söðli þegar hún var í reið- túrum hér í nágrenni borgarinnar, upp í Grafarholt, suður í Hafnarfjörð eða Hrólfsskála. Sendibréfin hennar eru mörg og þar liggur mikill fróð- leikur. Á einum stað er sagt frá því að þau hjón hafi farið suður á Vífilsstaði í vagni, það hefur verið hestvagn.“ Málfríður segir Guðrúnu hafa staðið að stofnun Kvenfélags Frí- kirkjusafnaðarins og Trúboðsfélags kvenna, verið meðal stofnenda Barnavinafélagsins Sumargjafar og Slysavarnadeildar kvenna, starfað í stúkunum Hvöt og Ársól, einnig Hvítabandinu, KFUK, Mæðrastyrks- nefnd og Húsmæðrafélagi Reykja- víkur. „Hún hélt margar ræður og skrifaði fjölda greina. Barðist fyrir bættum heimi og margir leituðu ásjár hjá henni. Til er frásögn af því að maður hafi komið til hennar sem búið var að bera út á götuna með konu og fjögur eða fimm börn og sagt: „Ég fæ hvergi inni, hvað á ég að gera?“ „Komdu bara,“ sagði hún og ruddi stofuna. Þar var fjölskyldan þar til úr leystist. Óslökkvandi þörf fyrir að skrifa Það kom strax fram í Guðrúnu sem barni að hún mátti ekkert aumt sjá, að sögn Málfríðar. „Hún var líka ein- læglega trúuð, það leynir sér ekki. Einhvers staðar lýsir hún því í bréfi að tvö börnin hennar séu lasin, hún hafi margsinnis gengið með þau um gólf sitt á hvorum handlegg og verið að hugsa um hvað lengi hún kæmist úr sporunum fyrir þreytu en guð gæfi þróttinn sem nægði hverjum deginum.“ Guðrún hafði líka óslökkvandi þörf fyrir að skrifa, að sögn Mál- fríðar. „Það var hennar ástríða að skrifa, hún var um tíma af kasta- mesti kvenrithöfundur landsins og bækur hennar voru mikið lesnar. „Ég beið eftir sögunum hennar,“ segir eldra fólk við mig. Að lokum tekur Málfríður fram að titill bókarinnar En tíminn skundaði burt með liðnu dagana í fanginu sé tilvitnun í Guð- rúnu Lárusdóttur. Það þarf að segja sögu svona merkra kvenna  En tíminn skundaði burt … er saga Guðrúnar Lárusdóttur, alþingismanns og rithöfundar (1880-1938), skráð af Málfríði Finnbogadóttur. Framhald titilsins er á bakhlið bókarinnar: … með liðnu dagana í fanginu. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R64 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 1 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 6 1 -1 5 A 4 2 4 6 1 -1 4 6 8 2 4 6 1 -1 3 2 C 2 4 6 1 -1 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.