Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 14

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 14
Bærinn Norður-Hvoll er skammt vestan Dyrhólaeyjar í Mýrdalshreppi. STJÓRNSÝSLA „Maður er náttúrlega svo vanur að eiga heima á Norður- Hvoli að maður segir það og skrifar áfram,“ segir Birna Viðarsdóttir, ábúandi á Norður-Hvoli í Mýrdals- hreppi sem Þjóðskrá vill að heiti Hvoll 2. Birna segir þau hjónin óvænt hafa fengið bréf frá Þjóðskrá í október í fyrra um að frá og með næstu ára- mótum þar á eftir myndi bærinn þeirra heita Hvoll 2. Bærinn hefur hingað til heitið Norður-Hvoll og hét það er þau Birna og Einar Magnús- son fluttust þangað fyrir 35 árum. Þar stunda þau nú rófurækt og eru með 150 vetrarfóðraðar kindur. „Þetta hefur reyndar verið í tugi ára í búfjárskýrslum og maður hefur aðeins rekist á það þar að bærinn hafi verið skráður sem Hvolur 2. En svo kom þetta bréf frá Þjóðskrá og og síðan eru öll bréf og allt sem við fáum bara merkt sem Hvoll 2,“ segir Birna. Það stendur þó áfram Norður- Hvoll á skiltinu út við veg en Birna segir póstinn og aðra þó vel rata á réttan stað. Nágrannabærinn Suður-Hvoll hefur sloppið við nafnabreytingu. „Það er mjög skrítið að það var engin breyting þar þótt þau séu líka í þessum afgömlu bændaskýrslu- skrám sem Hvoll 1. Það erum bara við sem eigum ekki lengur heima á Norður-Hvoli. Og í rauninni ætti okkar bær að vera Hvoll 1 því það er komið að honum á undan Suður- Hvoli,“ bendir Birna á og hlær að öllu saman. „Þetta er reyndar svolítið fyndið í aðra röndina,“ viðurkennir hún. Í bréfi Þjóðskrár til Einars og Birnu kemur fram að nafni bæjar- ins hafi verið breytt til samræmis við skráningu í fasteignaskrá. Sam- kvæmt lögum skuli allar fasteignir bera heiti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Birna og Einar ósk- uðu því liðsinnis Mýrdalshrepps og mun sveitarstjórinn skrifa Þjóðskrá og óska eftir að breytingin verði afturkölluð. Jafnframt vill Mýrdals- hreppur fá yfirlit yfir allar sambæri- legar breytingar sem Þjóðskrá hafi gert á þessum lagagrunni. „Mér skilst að það eigi ekki að vera mikið mál að breyta þessu,“ segir Birna Viðarsdóttir á Norður-Hvoli bjartsýn. gar@frettabladid.is Vilja að bærinn heiti áfram Norður-Hvoll Hjónin á bænum Norður-Hvoli í Mýrdalshreppi vilja að undið verði ofan af nafnabreytingu á bænum sem Þjóðskrá tilkynnti þeim um í fyrra. Ekki hafi verið haft samráð við ábúendur jarðarinnar um nýju nafngiftina á bænum. Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um til dæmis hænu, geit, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis. GEFÐU GJÖF SEM GEFUR www.gjofsemgefur.is GEFÐU HÆNU P IP A R \T B W A • S ÍA • 102985 DÓMSMÁL Í gær fór fram fyrirtaka í máli Skúla Mogensen gegn Sveini Andra Sveinssyni, skiptastjóra þrotabús WOW air. Áður hefur komið fram að Skúli, fyrrverandi forstjóri f lugfélagsins, vilji að Sveinn Andri víki. Vill Skúli meina að Sveinn Andri hafi veitt villandi og rangar upplýsingar um búið í fjölmiðlum og vanrækt upp- lýsingagjöf um skiptakostnað og þóknanir. Dómari í málinu, Ingiríður Lúð- víksdóttir, tjáði blaðamanni að um fund væri að ræða en ekki opið þinghald og vísaði honum út. Reim- ar Pétursson, lögmaður Skúla, vildi ekki ræða málið. Sveinn Andri krefst frávísunar á málinu og vísar til aðildar. „Ég lét bóka að Skúli hefði ekki aðild að málinu þar sem forgangskröfu hans í búið hefur verið hafnað og ekki tekin afstaða til almennra krafna,“ segir Sveinn. „Að mínu mati hefur hann ekki stöðu til að hafa slíka kröfu uppi,“ segir hann. Verður úrskurðað um frávísunarkröfuna í desember. „Aðalkrafa hans er að ég víki og til vara að sett verði ofan í við mig,“ segir Sveinn aðspurður um kröfur Skúla. – khg Krefst frávísunar málsins vegna aðildarskorts Skúla Sveinn Andri, skiptastjóri þrotabús WOW air. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI STJÓRNMÁL Félagsmálaráðuneytið mun ekki gera breytingar á frum- varpi um breytta tilhögun fæð- ingarorlofs. Líkt og Fréttablaðið greindi frá nýverið hafa verðandi foreldrar gagnrýnt það vegna skipt- ingu mánaðanna milli foreldra. Í þeim umsögnum sem hafa bor- ist frá foreldrum er almenn ánægja með að fæðingarorlofið sé lengt um einn mánuð en ekki að mánuðurinn sé bundinn við feður. Hefur einn- ig verið bent á að slík fyrirhögun stangast á við leiðbeiningar Emb- ættis landlæknis um að börn skuli vera á brjósti lengur en sex mánuði. Embættið sendi frá sér umsögn vegna frumvarpsins. Er það mat ráðuneytisins að sú tilhögun á skiptingu fæðingar- orlofsréttar milli foreldra sem lögð er til í frumvarpinu sé til þess fallin að koma til móts við þau ólíku sjónarmið sem fram koma í framan- greindum umsögnum auk þess að vera í samræmi við markmið laga um fæðingar- og foreldraorlof um að tryggja barni samvistir við báða foreldra og að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjöl- skyldu- og atvinnulíf. – ab Fæðingarorlofsfrumvarp verður lagt fram óbreytt Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ég lét bóka að Skúli hefði ekki aðild að málinu þar sem forgangs- kröfu hans í búið hefur verið hafnað og ekki tekin afstaða til almennra krafna. Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Verðandi foreldrar hafa gagnrýnt frumvarpið vegna skiptingar mánaðanna milli foreldra. 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 1 3 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 6 1 -0 B C 4 2 4 6 1 -0 A 8 8 2 4 6 1 -0 9 4 C 2 4 6 1 -0 8 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.