Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 45

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 45
ÉG HEF VERIÐ ÞEIRRAR SKOÐUNAR AÐ ÞAÐ SÉ EKKI ENDILEGA RÉTT AÐ EINBLÍNA Á HVORT KERFIÐ TRÚI ÞOLENDUM EÐA EKKI. Halla getur bætt líf sitt með félagslega viðurkenndum leiðum og dregið úr brotum. Þá notum við líka hugræna atferl- ismeðferð sem er mjög árangursrík. Meðferð og stuðningur þarf því hafa tvíþætt markmið, að draga úr áhættu en einnig að virkja og styðja verndandi þætti og byggja á styrk- leikum hvers einstaklings. Margt getur f lokkast undir verndandi þætti, til dæmis að ef la jákvæða lausnaleit og jákvæð bjargráð, til- f inningastjórn, jákvæð virkni svosem stöðugleiki í atvinnu og/ eða námi, fjölskyldutengsl, jákvætt félagslegt stuðningsnet og húsnæði. Halla: Kynferðisof beldi er svo algengt að það er eiginlega hvers- dagslegt. Brotin eiga sér oft stað við hversdagslegar aðstæður og tíðnin er þannig að á meðan við sitjum hér er ef til vill verið að fremja kynferð- isbrot einhvers staðar í samfélaginu. Mýtan um að gerendur eigi einhver sameiginleg einkenni sem megi greina lifir enn frekar góðu lífi. En svo þegar konur og aðrir þolendur verða fyrir of beldi þá passar það ekki endilega inn í þá mynd. Við- brögð okkar sem samfélags þurfa að taka mið af þessu. Þolendur segja oft frá þeirri upp- lifun sinni að þeim sé ekki trúað og þeir upplifa að auki skömm og virðingarleysi í meðferð mála sinna. Hvað finnst ykkur? Er hægt að bæta úr þessu? Þorbjörg: Auðvitað er hægt að gera betur og það hefur töluvert verið unnið að því innan kerfisins og þar skiptir miklu að fólk finni að það sé unnið faglega og því mætt af virðingu. Varðandi umræðuna um að brotaþolum sé ekki trúað þá finnst mér hún dálítið varhuga- verð, því hún getur fælt þolendur frá því að segja frá. Það sem sak- sóknarar skoða er sönnunarstaða. Ég get haft mína skoðun á því hvað mér finnst líklegt að hafi gerst en það er ekki það sem starfið snýst um. Það er bara ekki þannig að það ráði úrslitum hverju til dæmis saksóknari trúir, starfið felst í því að ganga úr skugga um að mál séu rannsökuð faglega af lögreglu og síðan þetta erfiða mat um hvort það sem fram er komið í málinu sé talið nægilegt eða líklegt til sakfellingar í dómi eða ekki. Þetta sönnunarmat er erfitt. Þar skiptir máli að við skiljum veru- leika þessara brota, að við höfum skilning á eðli brotanna, við séum læs á aðstæður þeirra og þekkjum afleiðingarnar, lítum til dæmis til vottorða sérfræðinga. Þetta er yfir- leitt heildstætt mat og það er flókið. Hér myndi ég þó segja að hafi orðið heilmikil framþróun um nálgun. Halla: Ég hef verið þeirrar skoð- unar að það sé ekki endilega rétt að einblína á hvort kerfið trúi þolend- um eða ekki. Í Bretlandi var það gert að einhvers konar opinberri stefnu að lögreglan ætti að trúa þolendum. Það breytti litlu um niðurstöðu mála eða sönnunarkröfurnar, þótt auðvitað væri ákveðin virðing við þolendur fólgin í þessari afstöðu. En síðan þótti þetta vera „komið út í öfgar“ og þá var þetta orðið að pólitískri umræðu. Í kjölfarið var ákveðið að hverfa frá þessari stefnu, lögreglan ætti alls ekki að trúa þolendum. Svona umræða er náttúrlega hringavit- leysa. Hlutverk rannsakenda hlýtur að vera að vinna rannsóknina fag- lega, óháð því hvort viðkomandi leggur trúnað á frásögn málsaðila eða vitna. Að vinna rannsóknina faglega þýðir að sýna þolendum virðingu. Þolendur viti af hverju þeir eru spurðir ákveðinna spurninga og af hverju þeir þurfi að undirgangast læknisskoðun eða aðrar skoðanir. Að þeir séu fyllilega upplýstir um ferlið. Leiðarljósið í þeim breyt- ingum sem nú er verið að innleiða og þeim tillögum sem er verið að móta er einmitt að rannsókn sé alltaf faglega unnin og besta mögu- lega þekking sé fyrir hendi á því hvernig megi tryggja að upplýsingar sem fást fram séu sem nákvæmastar og réttastar. Í því felst einmitt að mæta þolendum af virðingu. Að búa til umhverfi þar sem þeir geta greint frá málsatvikum. Í því felst líka að efla skilning og þekkingu á því hvernig þolendur segja frá. Sólveig Fríða: Og það á í raun líka við um gerendur. Þegar þeir eru yfirheyrðir þarf líka að reyna að fá fram skilning á því hvað hefur átt sér stað. Þetta eru oft f lókin mál í þeirra huga. Það þarf þekkingu á því líka. Halla: Kerfið hefur oft ætlast til hegðunar sem við getum ekki staðið undir. Ég man eftir góðum dæmum sem Liz Kelly prófessor gaf þegar hún hélt hér fyrirlestur í tengslum við samráð um meðferð nauðgunar- mála árið 2011. Þar fjallaði hún um gjána á milli þess til hvers er ætlast af fólki sem hefur orðið fyrir kyn- ferðisof beldi og síðan hvernig við sem manneskjur erum líkleg til að hegða okkur eða bregðast við. Segjum til dæmis að samstarfs- maður minn spyrji mig hvort ég vilji ekki kíkja í kaffi með honum í dag. Mig langar að segja nei, kannski vegna þess að ég kann ekkert sér- staklega vel við hann. En það er frekar ólíklegt að ég segi skýrt „nei og spurðu mig aldrei að þessu aftur“. Ég segi líklega að það hefði verið gaman en ég komist bara alls ekki. Í mannlegum samskiptum forðumst við að segja nei við fólk, svo sterk er félagsmótunin, en þegar kemur að umræðum um kynferðisleg mál- efni er ætlast til að fólk segi nei með einhverjum miklu skýrari hætti en í almennum samskiptum. Síðan er annað dæmi og það er að við viljum gjarnan svara spurning- um. Ef þú spyrð mig hvert hitastigið sé þá er ég líkleg til að reyna að svara þótt ég hafi ekki hugmynd um það. Þegar fólk situr fyrir framan rann- sóknarlögreglu þá vill það líka svara spurningum. Það vill ekki endilega Framhald á síðu 44 Kolefnishlutlaus árið 2025 Ein stærsta áskorun mannkyns á næstu áratugum er að fást við loftslagsbreytingar. Endurnýjanleg orkuvinnsla er hluti af lausninni og þar leikur Landsvirkjun stórt hlutverk. Markmið okkar er að ná kolefnishlutleysi árið 2025. Á fundinum kynnum við nýja aðgerðaáætlun til að ná því metnaðarfulla markmiði. Opinn fundur um aðgerðir á tímum loftslagsbreytinga Nauthóll 4. des. 2019 kl. 14.00 – 15.30 Verið velkomin Skráning á landsvirkjun.is Opnun fundar Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Nauðsyn á kolefnishlutleysi Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs Aðgerðaáætlun um kolefnishlutleysi 2025 Jóna Bjarnadóttir, forstöðumaður umhverfis og auðlinda Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, sérfræðingur í umhverfisstjórnun Viðhorf til loftslagsmála Ólafur Elínarson, sviðsstjóri markaðsrannsókna Gallup Loftslagsmál og grænar lausnir Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 43L A U G A R D A G U R 3 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 6 1 -5 A C 4 2 4 6 1 -5 9 8 8 2 4 6 1 -5 8 4 C 2 4 6 1 -5 7 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.