Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 56

Fréttablaðið - 30.11.2019, Page 56
Félagið er að halda upp á 116 ára afmælið sitt núna í janúar þannig að þetta er eitt af elstu kven- félögum landsins. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Ertu alltaf að elda sömu réttina og langar að prófa eitthvað nýtt? Vantar þig hugmyndir og innblástur að góðum mat sem hentar stórum sem smáum? Ertu ástríðukokkur og leggur mikið á þig til að finna nýjar og spenn- andi uppskriftir? Heimsókn á vefsíðu Gott í matinn er í öllum tilvikum góður staður til að byrja á, en þar er að finna stærsta upp- skriftasafn landsins og í hverri viku bætast nýjar við. Á síðunni er að finna yfir 1.000 uppskriftir af ýmsum toga og má þar nefna kjúklinga- og saumaklúbbsrétti, brauð- og smákökuuppskriftir, osta- og eftirréttahugmyndir og uppskriftir fyrir hin ýmsu tilefni á borð við jól og afmæli. Þú getur unnið Kitchenaid hrærivél Gottimatinn.is fékk hressilega andlitslyftingu í októbermánuði og er óhætt að segja að vel hafi tekist til og þykir nýja síðan sérstaklega notendavæn í bæði snjalltækjum og borðtölvum. Af þessu tilefni hefur Gott í matinn efnt til leiks þar sem einn heppinn netklúbbsfélagi getur unnið Kitch enaid hrærivél en skráðir félagar fá sent fréttabréf tvisvar í mánuði með girnilegum og góm- sætum uppskriftum. Hugmyndir fyrir vikumatseðilinn Það hentar mörgum að útbúa vikumatseðil og kaupa inn samkvæmt honum, en slíkt getur sparað fólki búðarferðir og peninga í leiðinni en á sama tíma getur það hjálpað okkur að festast ekki í því sama viku eftir viku. Á forsíðu gottimatinn.is er að finna hugmynd að vikumat- seðli sem hægt er að styðjast við og sækja innblástur í en þar er leitast við að hafa einfaldar, fjöl- breyttar og umfram allt góðar uppskriftir í aðalhlutverki. Til hátíðarbrigða læðast svo inn uppskriftir að ljúffengum eftir- réttum og sætum kökum, en auð- vitað snýst mataræði og matseld um að finna hinn gullna meðalveg og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á nýrri og endurbættri heimasíðu, gottimatinn.is. Gómsætt, gott og girnilegt á gottimatinn.is Það eru yfir eitt þúsund uppskriftir á síðunni gottimatinn.is og úr mörgum frábærum réttum að velja. Vikumatseðlar og vinsælar upp- skriftir á nýrri og endurbættri heimasíðu. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á stærstu og skemmtilegustu upp- skriftasíðu landsins. Þetta er árlegt jólakaffi og happdrætti sem Hringurinn er með núna í Hörpu fyrsta desember, þetta er búið að vera samfleytt í vel rúm 40 ár, alveg óslitið, alltaf á fyrsta sunnudag í aðventu,“ segir Anna. „Ég held að þetta sé fimmta eða sjötta árið sem við höldum þetta í Hörpu.“ Anna segir þennan viðburð, ásamt öðrum, þýðingarmikinn fyrir starfsemi félagsins. „Þetta er ein af okkar 5-6 stærstu fjár- öflunum. Við erum að líka að selja jólakort og jólanælur, það er nýtt hjá okkur. Síðan er það jólabasarinn sem er alltaf fyrsta sunnudaginn í nóvember. Síðan er það Reykjavíkurmaraþonið og svo veitingastofan niðri á Barnaspítala, þetta eru okkar stóru fjáraflanir. Svo erum við náttúrulega með minningarkort líka. Þetta eru okkar helstu tekjuliðir.“ Konur á öllum aldri Félagið er fjölmennt og eru með- limir á öllum aldri. „Við erum eigin- lega alveg að fylla fjórða hundraðið, rétt tæplega fjögur hundruð konur. Þær eru nokkrar sem eru komnar yfir nírætt og eru starfandi ennþá. Þær eru mjög duglegar. Svo eru nokkrar sem eru rúmlega tvítugar. Og það er gaman að segja frá því að ein stjórnarkonan var nú að eiga barn, bara í síðasta mánuði. En ég myndi segja að meðal- aldurinn væri um 55 til 60 ára.“ Þá er afmæli handan við hornið og segir Anna að nýjar konur bætist við hvert ár. „Félagið er að halda upp á 116 ára afmælið sitt núna í janúar þannig að þetta er eitt af elstu kvenfélögum landsins. Við tökum alltaf inn nýjar konur á fyrsta félagsfundi í október. Í fyrra komu 23 konur í félagið, þær voru rúmlega tíu núna. Þannig að það er alltaf ásókn í félagið og við erum voðalega glaðar með það, að fá inn nýjar konur í félagið. Það kemur alltaf ferskur andi og nýtt blóð með nýju fólki.“ Aðspurð hvort karlmenn hafi einhvern tíma sóst eftir inngöngu svarar Anna: „Ekki af neinni alvöru,“ og hlær. „Það er bara einn herra sem er heiðursfélagi í Hringnum og það er hann Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á Barna- spítalanum.“ Árleg gæðastund hjá mörgum fjölskyldum „Hjá mörgum fjölskyldum er þetta hefð, að hittast á jólakaffinu, af því að þetta er fyrsta aðventuhelgin og sunnudagur í aðventu. Þá koma fjölskyldur saman, gleðjast og styrkja gott málefni. Þetta er svo skemmtilegt, jólasveinarnir koma í heimsókn og listamenn koma og gefa vinnuna sína en það eru yfirleitt mjög góð skemmtiatriði. Heimabakaðar hnallþórur eins og enginn hefur séð áður og svo er það happdrættið, en það eru barna- læknarnir frá Barnaspítalanum sem ganga um og selja happ- drættismiðana sem er virkilega skemmtileg hefð líka. Krakkarnir eru alveg rosalega ánægðir með happdrættið, miðarnir seljast upp bara á fyrsta hálftímanum. Það er ofsalega gaman að afhenda happ- drættisvinninga og sjá spennuna og gleðina í augunum á börnunum. Það er alveg ólýsanlegt.“ Það er til mikils að vinna. „Vinn- ingshlutföllin eru mjög góð, við erum með nærri 2.500 vinninga. Það er allt frá góðri bók og upp í utanlandsferð. Þannig að það er allur gangur á því. Allur ágóðinn af kaffisölunni og happdrættis- sölunni rennur óskiptur í Barna- spítalasjóð Hringsins, hver einasta króna sem kemur inn.“ Félagið safnar fyrir hinum ýmsu málefnum. „Jólakortasalan okkar er miðuð að því að safna fyrir endurnýjun á íbúðum sem Barna- spítalinn á. Þær eru komnar til ára sinna og orðnar lélegar. Þetta eru íbúðir sem fólk sem býr úti á landi notar og þarf að vera með börn á spítalanum til lengri tíma. Það sem kemur inn af jólakaffinu og happdrættissölunni fer í Barna- spítalasjóðinn þar sem við veitum styrki eftir því sem beiðnir berast til okkar frá Barnaspítalanum, vökudeildinni eða jafnvel skurð- deildunum á Landspítalanum ef það er eitthvað sem er sérstaklega ætlað börnum. Við erum búin að veita núna á þessu ári 57 milljónir í styrki.“ Anna segir að það verði eitthvað fyrir alla, líka þau sem ekki neyti dýraafurða. „Við báðum allar þær konur sem kunna að búa til kaffi- brauð fyrir vegan-fólk eða fyrir fólk með einhvers konar óþol, að gera þannig kökur og við ætlum að hafa þær á sérborði og merkja þær sér- staklega. Það eru margar konur sem eru vegan hérna í Hringnum og við viljum að sjálfsögðu reyna að koma til móts við þær. Við verðum auð- vitað að fylgjast með því sem er að ske og finnst það alveg sjálfsagt.“ En hvað er vinsælast? „Ég held að það sé fátt sem heillar jafn mikið og góð marengs terta,“ segir Anna. Nánari upplýsingar: Húsið opnað kl. 13 og dagskráin byrjar 13.30. Verð er 2500 kr. fyrir 13 ára og eldri, 1000 kr. fyrir 6-12 ára og frítt fyrir 5 ára og yngri. Happdrættismiðinn kostar kr. 1000. Marengstertur alltaf vinsælastar Anna Björk Eðvarðsdóttir, formaður Hringsins, hvetur alla til að mæta í árlega jólakaffið í Hörpunni á sunnudaginn. MYND/UNNUR MAGNA Anna Björk Eð- varðsdóttir, for- maður Hringsins, segir alla vel- komna í kökukaffi Hringsins sem fram fer í Hörpu á sunnudaginn. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 3 0 -1 1 -2 0 1 9 0 4 :5 6 F B 1 4 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 1 4 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 6 1 -3 3 4 4 2 4 6 1 -3 2 0 8 2 4 6 1 -3 0 C C 2 4 6 1 -2 F 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 4 4 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.