Fréttablaðið - 30.11.2019, Side 58
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Justin Wren er alvöru hvunn-dagshetja. Hann átti erfitt á yngri árum og sökk djúpt í
þunglyndi og fíkn en hefur tekist
að snúa lífinu alveg við. Nú er
hann atvinnumaður í blönduðum
bardagalistum og hefur helgað líf
sitt góðgerðarstarfsemi.
Wren stofnaði góðgerðarsam-
tökin Fight for the Forgotten árið
2011, sem hafa grafið brunna fyrir
þúsundir pygmýja í Kongó til að
tryggja þeim aðgang að fersku
drykkjarvatni, ásamt því að sjá
þeim fyrir landsvæði og öðru sem
þeir þurfa til að lifa mannsæmandi
lífi. Pygmýjar búa við mikla kúgun
og eru hnepptir í þrældóm og
jafnvel étnir af öðrum ættbálkum
í Kongó. Nýlega hófu samtökin
að gera það sama fyrir pygmýja í
Úganda. Samtökin hafa nú safnað
yfir milljón dollurum, fjármagnað
62 brunna og keypt yfir 3.000
ekrur af landsvæði fyrir heimilis-
lausa pygmýja.
Árið 2014 hóf Wren að berjast
fyrir Bellator-bardagasamtökin
og notaði tækifærið til að vekja
athygli á baráttumálum sínum.
Hann notar stóran hluta af tekj-
unum úr bardögunum þar til að
styrkja starf samtakanna.
En vinna hans hafa tekið sinn
toll. Wren hefur ítrekað veikst
alvarlega í frumskógum Kongó
og veikindin hafa dregið dilk á
eftir sér. Árið 2016 var hann svo
greindur með áfallastreituröskun
vegna upplifunar sinnar í frum-
skóginum og hann fær enn mar-
traðir um vannærðu ungbörnin
sem létust í fanginu á honum.
Vissi hvernig honum leið
En Wren berst ekki bara fyrir
undirmálsfólk í Afríku, hann er
líka farinn að beita sér gegn einelti
í eigin heimalandi. Nýlega sagði
hann frá hinum 12 ára gamla Ray-
den Overbay sem er á einhverfu-
rófi og heyrnarlaus á öðru eyra.
Rayden hefur verið lagður í mikið
og grimmilegt einelti síðustu ár
og þegar myndbönd af heiftarlegu
of beldinu sem hann varð fyrir fóru
á netið ákveð Wren að gera eitt-
hvað í málinu.
Wren vissi alveg hvernig Rayden
leið, því hann upplifði það sama
þegar hann var á þessum aldri.
Fyrir utan líkamlegu sárin skildi
það eftir djúp sár á sálinni og fékk
hann til að efast um hvort lífið
væri þess virði að lifa.
„Ég man að fólk hló að mér,“
sagði Wren í samtali við The
Guardian. „Enginn sagði neitt eða
gerði neitt. Ég man að sá sem réðst
á mig labbaði bara í burtu. Það
kom ekkert fyrir hann. Alveg eins
og hjá Rayden.“
Wren ákvað verða sá sem hann
vildi óska að hann hefði átt að
þegar hann var barn. Örfáum
dögum síðar bauð hann fjölskyldu
Raydens í kvöldmat á skrifstofu
sinni.
Rayden hefur verið lagður í ein-
elti af bekkjarfélögum sínum síðan
hann var níu ára, en síðasta ár
hefur verið sérstaklega erfitt fyrir
hann þar sem hann þyngdist um
tæp 50 kíló vegna sykursýkislyfja
og byrjaði að ganga með heyrnar-
tæki. Þegar skólayfirvöld fundu
hann eftir heiftarlegu árásina sem
var tekin upp og sett á netið hafði
hann skrifaði „ÉG VIL DREPA
MIG“ á handlegginn á sér með
tússpenna.
Wren hafði verið á sama stað.
Hann glímdi við sjálfsvígshugleið-
ingar þegar hann var unglingur,
áður en hann skipti um skóla,
byrjaði í glímu og varð Banda-
ríkjameistari.
Hann sagði Rayden að það væri
í lagi að líða illa en að það þyrfti
ekki að vera svoleiðis áfram. „Ef þú
vilt leyfa mér það, vil ég vera vinur
þinn,“ sagði Wren við hann.
Bætt heimssýn fyrir
niðurbrotinn dreng
Fljótlega byrjaði myllumerkið
#StandWith Rayden (#Stöndum-
MeðRayden) að fá mikla dreifingu
á samfélagsmiðlum og Wren
hvatti fylgjendur sína til að senda
Rayden skilaboð svo að hann
fengi að vita að hann stæði ekki
einn. MMA-samfélagið tók þátt
af miklum krafti, sem og glímu-
kappar úr WWE-heiminum.
Stjörnur eins og Terry Crews og
Sarah Silverman fylgdu svo í kjöl-
farið. Fljótlega ákvað sjónvarps-
leikarinn A.J. Buckley að bjóða
Rayden, foreldrum hans og níu
ára gömlum bróður hans til Los
Angeles.
Daginn eftir fékk Rayden að
sjá Kyrrahafið í fyrsta sinn af
ströndinni í Malibu, en þangað
var hann kominn í einkatíma hjá
brimbrettagoðsögnunum Laird
Hamilton og Kelly Slater. Rayden
féll strax fyrir hafinu, en var
hræddur við að fara út í.
„Við erum vinir þínir,“ sögðu
leiðbeinendurnir honum. „Við
viljum deila með þér hvað sjórinn
getur verið heilandi.“ Klukkutíma
síðar var ekki hægt að fá Rayden
til að koma upp úr.
Á síðasta degi þeirra í borginni
var fjölskyldunni boðið í Disney-
land, þar sem Rayden sagði við
Wren í gríni „ég fann tvíburabróð-
ur þinn“ þegar hann sat fyrir á
mynd með Chewbacca. Loks hafði
Rayden öðlast nægt sjálfstraust til
tjá sig á opinn og afslappaðan hátt.
Fólk hefur styrkt fjölskyldu
Raydens í gegnum GoFundMe til
að fjármagna lækniskostnað og
sálfræðimeðferð fyrir strákinn.
Ýmis fyrirtæki hafa líka gefið fjöl-
skyldunni föt, skó, mat og dýnur,
en þau eru bláfátæk og búa í hjól-
hýsahverfi í Oklahoma.
Rayden fær enn myndbands-
skilaboð daglega hvaðanæva úr
heiminum og hann hefur meira að
segja fengið aðdáendabréf.
„Rayden er ekki sami strákur
og hann var fyrir tveimur
mánuðum,“ sagði Wren við The
Guardian. „Að sjá hann koma út
úr skelinni með íþróttamönnum
og svo leikurum í Los Angeles var
eins og að sjá fiðrildi breiða úr
vængjum sínum. Allir þeir sem
hafa lagt hönd á plóg hafa hjálpað
niðurbrotnum dreng að sjá
heiminn í nýju ljósi. Það er virki-
lega sérstakt.“
Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast
með Wren og Rayden geta gert
það á Instagram-síðu Wren, @ the-
bigpygmy. Það er auk þess ein
jákvæðasta Instagram-síða sem
hægt er að finna.
Berst fyrir þá sem þurfa hjálp
MMA-bardagakappinn Justin Wren berst fyrir aðra. Hann hefur lengi hjálpað pygmýjum í
Afríku og nýlega tók hann ungan dreng sem var lagður í einelti undir sinn verndarvæng.
Justin Wren stofnaði samtökin Fight for the Forgotten árið 2011 til að bæta
lífsgæði kúgaðra pygmýja í Afríku. MYND/FIGHTFORTHEFORGOTTEN.ORG
Wren berst fyrir Bellator-bardagasamtökin. MYND/FIGHTFORTHEFORGOTTEN.ORG
Rayden
Overbay var
boðið til í Los
Angeles ásamt
fjölskyldu sinni.
INSTAGRAM/
BIGPYGMY
JÓLA-FÓLK
Viltu þú auglýsa í mest lesna
blaði landsins?
Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins.
Sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is
Alla föstudaga fram að jólum verður Fólk Fréttablaðsins stútfullt af smákökum,
kertaljósum, konfekti, mandarínum, jólamat, jólatísku, jólasögum og jólastemningu
heima og að heiman.
Vertu með í jólaskapi og komdu jólaskilaboðum þínum beint til lesenda.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudagi n 15. rs gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
6
1
-4
2
1
4
2
4
6
1
-4
0
D
8
2
4
6
1
-3
F
9
C
2
4
6
1
-3
E
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K