Fréttablaðið - 30.11.2019, Side 90
Frábær bragðmikill réttur sem er ættaður frá Mexíkó. Upp-skriftin miðast við fjóra.
6 tortilla-kökur
500 g kjúklingabringur, skornar í
þunna strimla
1 laukur, skorinn smátt
1 rauð paprika, skorin smátt
1 græn paprika, skorin smátt
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. cumin
1 tsk. kóríander
250 g rifinn ostur
Salt, pipar og jalapeño eftir smekk
Hitið ofninn í 220°C. Bragðbætið
kjúklinginn með salti og pipar og
steikið í olíu. Setjið kjötið á disk
og geymið. Steikið grænmetið
og setjið kjötið aftur á á pönn-
una þegar það er orðið mjúkt og
kryddið með cumin, paprikudufti
og kóríander.
Hitið tortilla-kökur á pönnu eða
í ofni. Setjið kjúklinga-
blöndu á hverja
köku ásamt
salsasósu,
osti og
jalapeño.
Vefjið upp
og raðið
í eldfast
mót. Setjið
salsasósu og
rifinn ost yfir og
gratínerið í heitum ofni í um það
bil 10 mínútur.
Berið fram með
salsasósu,
guacamole,
sýrðum
rjóma og
salati. Í
þennan
rétt má nota
aðra gerð af
kjöti eða ein-
göngu grænmeti.
Mjög gott enchiladas frá Mexíkó
Kennt verður að skera út laufa-
brauð í Grófinni að göngu lokinni.
Söguhringur kvenna býður öllum áhugasömum konum í jólagöngu undir leiðsögn
sögukvennanna Hallveigar
Thorlacius og Helgu Arnalds þar
sem laumast verður inn á áhuga-
verða staði undir tindrandi ljósum
miðborgarinnar. Sérstök áhersla
verður lögð á jólasiði Íslendinga
fyrr og síðar og koma Grýla, jóla-
kötturinn og jólasveinarnir 13 til
sögunnar.
Eftir hressandi gönguferð, sem
tekur um 45 mínútur, verður farið
upp á 6. hæð Borgarbókasafnsins
í Grófinni, þar sem forvitnast
verður um matarsiði Íslendinga
á jólum gegnum tíðina. Eitt af
því sem einkennir undirbúning
íslenskra jóla er laufabrauð og
verður listin að skera út og steikja
laufabrauð kennd, en hver gestur
kemur með eigið skurðarbretti.
Eftir frásögn Hallveigar og Helgu
er vonast til að heyra af hátíðar-
haldi þeirra sem mæta á viðburð-
inn og er öllum velkomið að koma
með hátíðargóðgæti eða miðla á
einn eða annan hátt því sem ein-
kennir hátíðina í eigin fjölskyldum
eða upprunalandi þeirra. Léttar
veitingar verða í boði.
Allar nánari upplýsingar um starf-
semi Söguhrings kvenna er að
finna á: borgarbokasafn.is/sogu-
hringur-kvenna og á Facebook
undir Söguhringur. Lagt er af stað
sunnudaginn 1. desember frá
Borgarbókasafninu, Tryggvagötu
15, kl. 13.30.
Kvennaganga
og laufabrauð
Það verður nóg um að vera á Kjar-
valsstöðum í dag.
Í dag verður hægt að kynnast pólskum jólahefðum og búa til jólaskraut að hætti Pólverja
í jólasmiðju fyrir fjölskyldur.
Smiðjan fer fram á íslensku og
pólsku og er fyrir börn í fylgd
með fullorðnum. Á viðburðinum,
sem ber yfirskriftina „Jólin tala
tungum: Pólskt jólaföndur“, mun
Dariusz Górski leiða föndrið sem
er opið öllum og er þátttökugjaldið
1.000 kr. á barn sem greiðist við
komu og er fyrir efniskostnaði.
Viðburðurinn verður frá
klukkan 13-16 á Kjarvalsstöðum
en hann er hluti af innleiðingu
stefnu menningar- og ferðamála-
sviðs Reykjavíkurborgar um fjöl-
breytta menningu í borginni.
Pólskt
jólaföndur
Velkomin á aðventuhátíð Kópavogs laugardaginn 30. nóvember.
Jóladagskrá fyrir alla ölskylduna í Menningarhúsunum í Kópavogi
ásamt jólamarkaði. Jólaball og skemmtun á útisvæðinu og tendrað á
ljósum jólatrésins.
13:00 - 16:00 Gerðarsafn | Jólakortasmiðja og pólskt
jólaskraut.
13:00 - 16:00 Bókasafn Kópavogs | Jólaskrautsskipti-
markaður, gjafapokagerð og fleira.
13:00 - 16:00 Náttúrufræðistofa | Jólatré úr myndum gesta.
13:00 - 16:00 Gjábakki | Laufabrauðsgerð og jólastemning.
14:00 - 14:40 Salurinn | Jólastepp. Jólatónleikar með
Valgerði Guðnadóttur.
15:45 - 16:00 Útisvæði | Jólasyrpa með Skólahljómsveit
Kópavogs.
13:00 - 17:00 Útisvæði | Jólakofar.
16:00 - 17:00 Útisvæði | Jólaskemmtun með Sölku Sól og
jólasveinum.
16:00 Útisvæði | Tendrað á ljósum jólatrés.
16:00 Midpunkt gallerí | Upplestur.
Kvennakór og Karlakór Kópavogs, flautukór úr skólahljómsveit Kópavogs og nemendur úr
Tónlistarskóla Kópavogs koma fram í Gerðarsafni og á Gjábakka.
Eftirfarandi aðilar selja varning í jólakofum:
Bjarteyjarsandur – Mariella Thayer keramiker – Rauði krossinn – Vinnustofan Ás – Pure Deli –
Möndlubásinn.
Minnum á fjölbreytta aðventudagskrá allan desember í Menningarhúsunum í Kópavogi.
Dagskrá aðventuhátíðar
10 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 0 . N ÓV E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
3
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
1
4
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
6
1
-3
8
3
4
2
4
6
1
-3
6
F
8
2
4
6
1
-3
5
B
C
2
4
6
1
-3
4
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K