Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 84

Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 84
 FJÖLSKYLDAN ER AÐ VENJAST ÞVÍ AÐ ÞETTA ÞARF AÐ FÁ SINN TÍMA OG SINN STAÐ Á HEIMILINU. Eftir nokkurra ára búsetu á mölinni í Reykjavík f lutti Ólafur í sumar með fjölskyldunni til Selfoss. Þar unir þessi 41 árs gamli sunnlennski sveitapiltur, frá bænum Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi, hag sæinum vel í endalausu jólaskapi. Kona hans er Hanna Sigga Unnarsdóttir og eiga þau saman þrjár dætur, 15 ára, 3 ára og 18 mánaða. „Ég hef unnið í verslunum í 20 ár, sem sölumaður eða á lager,“ segir Ólafur. „Ég hef einnig þjálfað knatt- spyrnu í 20 ár og þar af fimm ár í Danmörku. Nú hafa þeir skór farið á hilluna og jólaskórnir komnir fram.“ Í september opnuðu Ólafur og Hanna verslunina Heimilið og jólin á Selfossi, en þar selja þau jólavörur, heimilisvörur og húsgögn. Í um 10 ár hefur Ólafur byggt jóla- þorp á heimilinu, með upplýstum húsum, snjó og fólki. „Þetta byrjaði allt með einu húsi. Fyrsta húsið sem ég eignaðist var reyndar svona míní-hús þar sem ég pantaði vit- laust á netinu,“ segir hann en Ólafur pantar öll sín hús hjá amerískum netverslunum. „Ég er búinn að vera mikið á f lakki vegna vinnu og þar sem fjölskyldan er á víð og dreif um landið var það dálítið heillandi að setja saman þorp sem tæki á móti mér þegar ég vakna eða kem heim.“ Jólaþorpið í ár er nú þegar orðið stórt og iðar að lífi og jólaanda. Aðspurður hversu mikil vinna það sé að setja upp þorp af þessari stærðargráðu segir Ólafur það taka um tvær vikur. „Ég hef ekki enn þá sett upp allt þorpið mitt þar sem ég á meira en hundrað hús og er með tvær litlar sem finnst gaman að fikta. Í ár höfum við því húsin í þeirri hæð að þær geta aðeins horft en ekki snert,“ segir hann og brosir. „Við byrjum alltaf á því að ákveða hvaða stað þorpið fær á heimilinu og þá sjáum við hversu stórt við getum haft það. Svo röðum við húsunum á gólfið og veljum þau hús sem við viljum hafa.“ Gerð jólaþorpsins í ár var auð- veldari en áður að sögn Ólafs, því að í gegnum verslun sína gátu þau keypt botna, bakgrunn og fylgi- hluti. Í ár var ákveðið að þemað yrði fjallaþorp. „Við eigum líka lest. Ég sé fyrir mér að þegar stelpurnar verða eldri munum við nota stórt svæði fyrir þorpið og látum lestina keyra í kringum það. Einnig myndum við setja upp fjöll fyrir aftan með húsum í hlíðunum. Þá yrði þetta skemmtilega lifandi þorp,“ segir Ólafur með tilhlökkun. Ólafi er annt um jólaþorpin og viðurkennir að hafa sýnt stjórn- semi við uppsetninguna. „Ég er svo smámunasamur að það getur verið erfitt að leyfa öðrum að koma að þessu. En þegar ég hef sett þorpið upp þá fá elsta stelpan og frúin á heimilinu að setja sitt mark á það,“ segir hann. „Í framtíðinni sé ég samt alveg fyrir mér að það verði nokk- urs konar fjölskylduviðburður að setja upp þorpið. Það verður meira lifandi og sérstakt þegar allir fá að koma með sín blæbrigði.“ Víkur nú talinu að jólaverslun- inni. „Ég er mikið jólabarn. Við vildum vinna sjálfstætt og við eitt- hvað sem okkur þætti skemmtilegt að gera. Þess vegna varð jólabúð fyrir valinu,“ segir hann. Vörurnar sem Ólafur notar í þorpin selur hann nú í nýju verslun- inni. Hann segir að hingað til hafi verið mjög erfitt að fá landslagið og ýmsa aukahluti hér á landi. „Þegar maður hefur þetta landslag þá þarf Með djúpa ástríðu fyrir jólaþorpum Ólafur Hlynur Guðmarsson, verslunarmaður á Selfossi, er óumdeilanlega eitt mesta jólabarn landsins. Hann hefur hannað sín eigin jólaþorp í tíu ár og nú í haust lét hann til skarar skríða og opnaði sína eigin jólaverslun. Ólafur hefur gert jólaþorp í tíu ár en á eftir að nota öll húsin sín 100 í einu. Ólafur eignaðist fyrsta jólahúsið fyrir einhvers konar öfugsnú- ið jólakrafta- verk þegar hann pantaði það fyrir mistök á netinu. Það klúður hefur heldur betur dregið gleði- legan dilk á eftir sér þar sem hann hefur í áratug reist mismunandi jólabæi með tilstandi sem er að verða fjöl- skylduhefð. maður ekki að vera að vesenast með frauðplast eða sand eða steina.“ Fyrstu jólin eru nú brátt að hefj- ast hjá búðareigendunum og búast má við miklum erli, gleði og stemn- ingu. „Hjá flestum ná jólin því besta út úr manni. Þú eyðir tíma með fjöl- skyldunni og leggur þig fram við að gleðja aðra,“ segir Ólafur. „Hugsaðu þér bara, ef við gerðum það allt árið.“ Ólafur er augljóslega ekki einn af þeim sem kvarta þegar jóla- skraut er sett upp í nóvember eða látið hanga fram yfir þrettándann, garga þegar jólalögin heyrast utan desembermánaðar. „Ef ég fengi að ráða þá væri þorpið mitt uppi allt árið. En núna fer það upp í septem- ber eða október og ég tek það niður í febrúar. Það er bara svo gaman að hafa þorpið uppi í rökkrinu.“ Aðspurður um hvort fjölskyldan hafi alltaf skilning á ástríðu hans fyrir jólaþorpinu og plássinu sem það tekur segir Ólafur það vera í ferli. „Fjölskyldan er að venjast því að þetta þarf að fá sinn tíma og sinn stað á heimilinu.“ kristinnhaukur@frettabladid.is 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R70 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 5 F -2 7 E 4 2 4 5 F -2 6 A 8 2 4 5 F -2 5 6 C 2 4 5 F -2 4 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.