Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 56
NBA Fara þarf aftur til vormánað-
anna 1997 til að f inna síðustu
úrslitakeppnina í NBA-deildinni
sem San Antonio Spurs tók ekki
þátt í en það stefnir allt í að 22
ára þátttöku Spurs sé lokið. Vel-
gengni Spurs-liðsins hefur verið
með ólíkindum síðustu áratugi og
hefur félagið aðeins misst fjórum
sinnum af úrslitakeppninni síðan
það f luttist til San Antonio árið
1973. Sem dæmi um hversu langt
er liðið síðan Spurs tók ekki þátt í
úrslitakeppninni var Bill Clinton
að hefja aðra stjórnartíð sína sem
forseti Bandaríkjanna þegar Spurs
missti síðast af úrslitakeppninni
en eftir tólf tapleiki í síðustu fjór-
tán leikjum eru lærisveinar Pop-
ovich í nýjum kringumstæðum.
Neyðarleg byrjun tímabilsins hjá
Golden State Warriors skyggir
aðeins á byrjun Spurs sem er
komið langleiðina með að tapa
jafn mörgum leikjum í vetur (13)
og allt tímabilið 2015-16 þegar
Spurs tapaði fimmtán leikjum.
Hinn sjötugi Popovich tók við
liðinu um mitt tímabil árið 1996
Viðvörunarbjöllur hringja í Texas
San Antonio Spurs hef-
ur byrjað tímabilið afar
illa í NBA-deildinni og
er í hættu á því að missa
í fyrsta sinn af úrslita-
keppninni á þeim 22
árum sem Gregg Popov-
ich hefur stýrt liðinu.
Eftir fína byrjun á tíma-
bilinu hefur lítið gengið
síðasta mánuðinn og er
erfitt að sjá Popovich
galdra fram töfralausn á
vandræðum liðsins.
LaMarcus Aldridge og DeMar DeRozan hafa ekki náð að halda sigurgöngu San Antonio Spurs áfram síðan Tim Duncan, sem sést hér fyrir neðan, ákvað að láta staðar numið. NORDICPHOTOS/GETTY
og var því þjálfari liðsins síðast
þegar það missti af úrslitakeppn-
inni en þessi sigursælasti þjálfari
sögunnar þarf að finna lausn á
vandamálum Spurs hið snarasta.
Tvíburaturnarnir sem byrjuðu
gullöldina í San Antonio
Þegar David Robinson kom inn í
lið Spurs á haustdögunum 1990 var
skyndilega kominn leikmaður sem
hægt var að byggja lið í kringum
og komst liðið í úrslitakeppnina
sjö ár í röð með Robinson sem var
yfirleitt titlaður „aðmírállinn“ í
fremstu röð. Meiðsli Robinsons
og f leiri lykilleikmanna árið 1996
gerði það að verkum að Spurs
missti af úrslitakeppninni og
hlaut fyrsta valrétt í nýliðavalinu
en það reyndist heillaskref. Með
fyrsta valrétt tók Spurs hinn unga
Tim Duncan sem ásamt Robinson
myndaði ógnarsterkt tvíeyki sem
var kallað „tvíburaturnarnir“.
Saman unnu Robinson og Duncan
fyrstu tvo meistaratitlana í sögu
félagsins árin 1999 og 2003 en þá
lét Robinson staðar numið. Við
það tækifæri tóku Tony Parker og
Manu Ginobili við kef linu og sáu
til þess að Spurs ynni tvo meistara-
titla, árið 2005 og aftur 2007.
Spurs átti eftir að vinna einn
meistaratitil til viðbótar þegar
hinn lítt þekkti Kawhi Leonard
skaust fram á sjónarsviðið og Spurs
náði að stöðva sigurgöngu Miami
Heat-liðsins sem LeBron James
leiddi. Þríeykið Duncan, Parker
og Ginobili átti enn nóg eftir til að
skila góðum sóknarleik en varnar-
leikur Leonards færði Spurs 4-0
sigur í einvíginu.
Dýrkeypt skipti við Toronto
Í Leonard var Spurs með öf lugan
leikmann á báðum endum vallar-
ins sem hægt væri að byggja fram-
tíðarlið á og var Spurs fastagestur í
úrslitakeppninni næstu árin þrátt
fyrir að Duncan léti staðar numið
líkt og Manu Ginobili. Næst komst
Leonard því að koma Spurs í úrslit-
in á vordögunum 2017 en meiðsli
í fyrsta leik úrslita Vesturdeildar-
innar komu í veg fyrir að hann
tæki þátt gegn Golden State Warri-
ors sem sópaði Spurs í sumarfrí.
Ári síðar voru meiðsli að hrjá
Leonard sem lenti í útistöðum við
forráðamenn Spurs og krafðist
þess að sér yrði skipt frá félaginu.
Að lokum tókst Spurs að komast
að samkomulagi við Toronto
Raptors um að senda Leonard og
Danny Green til Kanada í skiptum
fyrir DeMar DeRozan til að koma
í veg fyrir að Leonard yrði áfram
í Vesturdeildinni. Í DeRozan fékk
San Antonio fínan leikmann sem
var ekki þekktur fyrir afrek sín í
úrslitakeppninni og féll Spurs út í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
Á sama tíma náði Leonard að leiða
lið Raptors að fyrsta meistaratitl-
inum í sögu félagsins í vor.
Vandræði Spurs hafa haldið
áfram á þessu tímabili en eftir
f jóra sigurleiki í fyrstu f imm
umferðunum gegn lakari liðum
deildarinnar hefur liðið nú aðeins
unnið sex leiki af nítján, þar af tvo
þeirra gegn slakasta liði deildar-
innar, New York Knicks. Varnar-
leikurinn sem var aðalsmerki liðs-
ins hefur hrunið og er lið Spurs við
botninn í f lestum tölfræðiþáttum
þegar kemur að varnarleik. Sókn-
arleikur liðsins gengur enn eins
og vel smurð dísilvél og er liðið í
fimmta sæti deildarinnar þegar
kemur að tölfræði yfir sóknarleik
en varnarleikurinn veldur þjálf-
arateyminu höfuðverk. „Það er
engin töfralausn á þessum vanda-
málum. Á þessum tíma í fyrra
vorum við líka í vandræðum en þá
vorum við miðlungslið í vörn. Í ár
erum við lélegasta lið deildarinnar
í vörn á mörgum sviðum og það er
að kosta okkur. Við erum að setja
nógu mörg stig til að vinna leiki en
það þarf líka að verjast sem er eitt-
hvað sem við erum ekki að gera,“
sagði Popovich, aðspurður út í
vandamál liðsins á dögunum.
kristinnpall@frettabladid.is
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R42 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
8 Spurs tapaði á
dögunum
átta leikjum
í röð í fyrsta
sinn í 23 ár.
Nokkrum
vikum síðar
tók Pop
ovich við
liðinu.
22 ár eru liðin
síðan San
Antonio
missti síðast
af úrslita
keppninni.
Spurs deilir
því meti
með Phila
delphia
76ers frá
árunum
19501971.
7 Spurs hefur
aldrei endað
neðar en
í 7. sæti á
heilu tíma
bili í Vestur
deildinni
undir stjórn
Popovich.
5 Meistaratitla
hefur Spurs
unnið undir
stjórn Pop ov
ich. Aðeins
Lakers hefur
unnið jafn
marga titla
síðan 1996.
1 Spurs hefur
leikið sex
sinnum til
úrslita og
aðeins tapað
einu sinni
undir stjórn
Popovich,
gegn Miami
Heat vorið
2013.
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
5
F
-6
8
1
4
2
4
5
F
-6
6
D
8
2
4
5
F
-6
5
9
C
2
4
5
F
-6
4
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K