Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 10
STJÓRNMÁL Hátt í sjötíu mál sem ráðherrar hugðust leggja fram á haustþingi ef marka má þingmála- skrá ríkisstjórnarinnar hafa enn ekki verið lögð fram á Alþingi en samkvæmt starfsáætlun Alþingis rennur frestur til að leggja fram mál á haustþingi út á morgun. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að nokkur mál verði afgreidd úr ríkis stjórn í dag og að hún muni óska eftir framlagningarfundi á Alþingi áður en fresturinn rennur út. Meðal boðaðra mála sem ekki hafa verið lögð fram eru frumvarp mennta- og menningarmálaráð- herra um stuðning við einkarekna fjölmiðla sem áætlað var að leggja fram í september og frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á erfðafjárskatti sem leggja átti fram í október. Tvísýnt um styrki til fjölmiðla Lengi hefur legið fyrir að fjölmiðla- frumvarpið hefur mælst misjafn- lega fyrir, sérstaklega í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Lilja Alfreðs- dóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, hefur nú kynnt ný frumvarpsdrög í þingf lokkum stjórnarmeirihlutans þar sem lagt er til að styrkirnir verði lægri en fyrri drög gerðu ráð fyrir. Í frum- varpinu er gert ráð fyrir styrkjum fyrir rekstrarárið 2019 og í fjárlög- um sem samþykkt voru síðastliðinn miðvikudag er gert ráð fyrir 400 milljónum til að styrkja einkarekna fjölmiðla á grundvelli boðaðra laga. Frumvarpið hefur hins vegar ekki verið samþykkt í öllum þing- flokkum meirihlutans og mjög óvíst hvort það verður lagt fram á þessu þingi. „Það er ekki búið að afgreiða þetta út úr þingf lokknum,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, og bætir við: „Við ætlum að fá betri kynningu á því hvað nákvæmlega ráðherrann ætlar sér og fara betur yfir þetta. En eins og ég held að öllum sé ljóst þá eru mismunandi hugmyndir uppi um það hver er besta leiðin til að koma til móts við frjálsa fjöl- miðla. Þannig að þetta er enn þá á umræðustigi hjá okkur. Ég held að allir séu sammála um að styrkja stöðu frjálsra fjölmiðla en spurn- ingin er hver er besta leiðin og hvort það sé sú sem þarna liggur fyrir.“ Bryndís segist ekki geta svarað því hve langan tíma þingf lokkurinn þurfi til að fara yfir málið. „En ég get sjálf ekki séð fyrir mér að það skipti öllu máli hvort slíkt frumvarp yrði samþykkt fyrir eða eftir jól.“ Erfðafjárskatturinn bíður Heimildir Fréttablaðsins herma einnig að fyrirhugað frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á fyrir komulagi erfðafjárskatts mælist mjög misjafnlega fyrir í þingflokki Vinstri grænna. Auk þessara mála á enn eftir að leggja fram frumvarp félagsmála- ráðherra um heimild foreldra til að ákveða skipta búsetu barna, frumvarp sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um endurskoð- un búvörusamninga og frumvarp dómsmálaráðherra um endurupp- tökudómstól. Stór mál frá sam- gönguráðherra hafa heldur ekki enn verið lögð fram; þeirra á meðal samgönguáætlun 2020 til 2034 og frumvörp sem lúta að gjaldtöku í umferð og heimild til að fela einka- aðilum fjármögnun, framkvæmd og veghald á tilteknum hluta þjóðvega. Bótamálið á lokastigi Auk nýsamþykktra fjárlaga hafa Minni hluti stjórnarmála lagður fram Innan við helmingur boðaðra þingmála ríkisstjórnarinnar á haustþingi hefur verið lagður fram á Alþingi. Forsætisráðherra segir þingmálaskrána hafa verið metnaðarfulla en ráðherrar verið seinir í gang. Frestur til að leggja fram þingmál rennur út á morgun. Tvær vikur eru eftir af þingstörfum þessa haustþings miðað við starfsáætlun Alþingis. Bjartsýni ríkir um jólafrí þingsins á réttum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þinginu haldið gangandi með þingmannamálum Þarna eru auðvitað dagsetningar­ mál að koma fram rosalega seint eins og fæðingarorlofið til dæmis. Þetta er mjög skrýtið, hér er búið að vera lítið að gera og eiginlega engin ríkisstjórnarmál að koma inn. Búið að setja fullt af þing­ mannamálum á dagskrá sem er spurning hvort afgreiðist út úr nefndunum. En við erum búin að vera að halda þinginu gangandi með þingmannamálum af því að ríkisstjórnarmálin eru að koma svo seint fram. Þetta gerist of oft að málin eru að koma mjög seint fram og þá kemur þrýstingur á okkur að afgreiða hlutina fljótt. Það gerir það að verkum að mistök eru gerð og út úr þessu kemur allt of oft óvönduð lagasetning. Það er það sem ég hef mestar áhyggjur af. Þetta eru svo slæm vinnubrögð. Þetta eru auðvitað ólíkir flokkar í ríkisstjórninni og það er að koma meira og meira í ljós hvað þeir í raun og veru ganga ekki í takt. Vorum hæg í gang Það er alveg ljóst að þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar var metnaðar­ full og við vorum hæg í gang. Ég er búin að skoða þingmálaskrár aftur í tímann og mér sýnist besti árangurinn hafa verið í fyrra. Við erum ekki að ná því meti núna þótt við höfum tekið verulegan kipp núna síðustu daga. Stór hluti mála er kominn í ferli á Alþingi og starfið í nefndum gengur vel. Stjórnarliðar hafi slugsað í allt haust Við erum auðvitað búin að klára fjárlögin mjög tímanlega núna. En það er ekkert skrýtið við það vegna þess að innan við helm­ ingur boðaðra stjórnarmála sem áttu að koma fram í september og október skilaði sér. Núna á síðustu dögum hafa verið að koma inn risamál eins og menntasjóður námsmanna, fæðingarorlofsmálið, sameining Íbúðalánasjóðs og Mannvirkja­ stofnunar og úrvinnsla eigna­ og skuldasafns Íbúðalánasjóðs. Síðan hafa þau látið glitta í fleiri mál eins og fjölmiðlafrumvarpið. Með öðrum orðum eru þau búin að slugsa í allt haust og geta bara einfaldlega ekki krafist þess að þessi mál klárist án mikillar umræðu hér í þinginu. Þannig að ég reikna nú ekkert með að við förum neitt sérstaklega tíman­ lega heim í jólafrí og engin ástæða til. Ef fjaðrirnar fara nú að reytast af stjórnarmeirihlutanum í meiri mæli en orðið hefur í þessari viku, þá fer nú að þyngjast undir fæti. Hlutfallslega flest mál frá Flokki fólksins Þingmenn hafa sjálfir lagt fram 177 mál það sem af er þessu haustþingi. Flokkur fólksins á langflest þeirra miðað við höfða­ tölu en þingmenn flokksins sem eru tveir hafa lagt fram 19 þingmál. Enginn þingflokkur hefur lagt fram fleiri mál en Píratar sem lagt hafa fram 17 frumvörp og 11 þingsályktunartillögur, samtals 28 mál. Það eru 4,7 mál á hvern þingmann flokksins. Þingflokkur Viðreisnar leggur að sama skapi fram mörg mál en fjórir þingmenn flokksins hafa lagt fram samtals 18 mál. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is aðeins þrjú stjórnarfrumvörp verið samþykkt á Alþingi það sem af er þessu haustþingi en þó nokkur fjöldi mála er til meðferðar í nefndum þingsins. Þeirra á meðal eru frumvarp til nýrra lyfjalaga, frumvarp til nýrra sviðslistalaga og nýrra laga um menntasjóð náms- manna; frumvörp um neyslurými, um lengingu fæðingarorlofs, um breytingar á lagaumgjörð um æru- vernd, um vernd fyrir uppljóstrara, um þjóðarsjóð og um sameiningu Íbúðalánasjóðs og mannvirkja- stofnunar í nýja stofnun svo nokkur séu nefnd. Nokkur mál eru lengra komin og bíða nú þriðju umræðu og loka- afgreiðslu. Þetta eru frumvörp um bætur vegna sýknudóms í Guð- mundar- og Geirfinnsmálum, frum- varp til nýrra laga um skráningu einstaklinga, frumvarp um breyt- ingar á barnabótum og frumvarp um lækkun á bankaskatti. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, segist bjartsýnn á að unnt verði að ljúka þingstörfum annan föstudag eins og starfs áætlun þings- ins gerir ráð fyrir. Það sé mikið gleði- efni að tekist hafi að ljúka afgreiðslu fjárlaga svona tímanlega en það megi meðal annars þakka breyt- ingum á samkomudegi  þingsins fyrr að hausti og nýjum lögum um opinber fjármál. Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓRLogi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 F -4 A 7 4 2 4 5 F -4 9 3 8 2 4 5 F -4 7 F C 2 4 5 F -4 6 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.