Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 32

Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 32
Við hjá Landsvirkjun erum þak k lát f y rir þá viður-kenningu sem við hlutum á dögunum, þegar okkur voru veitt Hvatningarverðlaun jafn- réttismála. Verðlaunin eru okkur hvatning til að halda áfram á sömu braut, því jafnréttismál eru ekki tímabundið átak heldur eiga þau að vera eðlilegur hluti af starfsemi fyrirtækja, alltaf. Þótt við höfum náð árangri að undanförnu erum við þó ekki enn orðin „góð í jafn- rétti“. Enn er verk að vinna, en við vitum hvert við ætlum að komast. Algjört jafnrétti er ekki bara æskilegt. Það er nauðsynlegt. Um það er sem betur fer ekki lengur deilt í samfélaginu. Í orði kveðnu er það löngu afgreitt mál að við eigum öll að sitja við sama borð, hvort sem við erum konur, karlar eða tilheyrum öðrum kynjum. Jafnrétti er orðið sjálfsagt mál. En þótt tíðarandinn hafi breyst með þessum jákvæða hætti hafa raunverulegar breytingar víða látið standa á sér. Við hjá Lands- virkjun áttuðum okkur á því að við þyrftum að gera miklu betur, þegar við skoðuðum stöðu jafn- réttismála hjá okkur með gagn- rýnum augum árið 2017. Gras- rótin í fyrirtækinu hvatti okkur til dáða – myndast hafði hópur kvenna sem voru ekki nægjanlega ánægðar með stöðu jafnréttismála hjá okkur. Frá orðum til aðgerða Við ákváðum þess vegna að gera eitthvað í málunum. Við gerðum jafnrétti að einni af aðaláherslum Landsvirkjunar. Forstjóri fyrir- tækisins, undirritaður, gerðist eig a nd i á her slu verke f n i si n s innan fyrirtækisins og tók við for- mennsku í jafnréttisnefnd, auk þess sem við fengum forstöðu- mann á starfsmannasviði til þess að leiða jafnréttisvinnuna. Fram að þessu höfðum við haft frekar þröngt sjónarhorn á jafn- rétti og einblínt á kynjahlutföll og laun. Við víkkuðum út sjóndeildar- hringinn og fórum að horfa á þætti eins og menningu, samskipti og vinnuumhverfi – tókum upp eins konar 360° nálgun á jafnrétti í fyr- irtækinu. Við réðumst í umfangs- mik ið jafnréttisverkefni með Capacent – Jafnréttisvísinn – og gerðum heildstæða úttekt á stöðu jafnréttismála innan Landsvirkj- unar. Við fengum allt starfsfólkið með okkur í vegferðina, héldum starfsdag í Hörpu og þangað mætti nánast allt starfsfólk fyrirtækisins, um 300 talsins. Aðgerðaáætlun jafnréttismála Í k jölfa r st a r fsdagsins vor u umbótatillögur starfsfólks f lokk- aðar og þeim forgangsraðað. Úr varð aðgerðaáætlun jafnréttismála til þriggja ára, með skýrum mark- miðum, mælikvörðum og umbóta- verkefnum. Ávinningur verkefnanna er nú þegar orðinn áþreifanlegur. Meðal annars hefur verið farið yfir starfs- heiti út frá kynjasjónarmiðum, farið hefur verið yfir kynningar- efni fyrirtækisins með jafnrétti í huga, innleitt hefur verið nýtt ráðningarferli sem hannað er til að stuðla að jöfnum kynjahlutföllum, innleitt nýtt ferli um viðbrögð við kynferðislegri og kynbundinni áreitni, kynjahlutföll eru höfð til hliðsjónar við skipulagningu opinna funda, stofnaður hefur verið verkefnahópur sem horfir á vinnuumhverfi með tilliti til jafn- réttis og svo má lengi áfram telja. Í ár hefur áhersla verið lögð á menningu, enda var ljóst að fara þyrfti betur í saumana á henni, greina hana og breyta ákveðnum þáttum hennar, ef við ætluðum að ná markmiðum okkar í jafnréttis- málum. Jafnrétti er ekki átak Það er mikilvægt að hafa í huga að jafnrétti er ekki átak. Jafn- rétti á að vera ástand. Við tölum ekki um jafnréttisátak hjá Lands- virkjun, heldur jafnréttisvegferð, sem heldur áfram. Við höfum þó bætt okkur mikið og erum með- vituð um að við þurfum áfram að halda vel á spöðunum. Við vitum hvar við erum og hvert við viljum komast. Það er forsenda þess að ná árangri í jafnréttismálum. Jafnréttið er að hraða þróun fyrirtækisins Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar Við víkkuðum út sjón- deildarhringinn og fórum að horfa á þætti eins og menningu, samskipti og vinnuumhverfi – tókum upp eins konar 360° nálgun á jafnrétti í fyrirtækinu. Opnunartími: Mán-föst kl. 10-18 • Lau kl. 12-15 • Lokað sunnudaga. Sími utan opnunartíma • S. 861 2165 Black Friday Bla ck Fri da y T ilb oð 2.1 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 3.2 50. 00 0 REYNSLA OG TRAUST Í 30 ÁR SUBARU Forester premium. Árgerð 2017, ekinn 155 Þ.KM, bensín, sjálf- skiptur. Black Friday Tilboð 2.190.000. Rnr.213940. KIA Sportage ex. Árgerð 2018, ekinn 123 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 6 gírar. Black Friday Tilboð 3.250.000. Rnr.213939. MERCEDES-BENZ Gle 250 d 4matic. Árgerð 2018, ekinn 67 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 9 gírar. Black Friday Tilboð 7.990.000. Rnr.117103. KIA Soul ex. Árgerð 2017, ekinn 101 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 7 gírar. Black Friday Tilboð 1.790.000. Rnr.213783. KIA Sorento ex 7manna. Árgerð 2018, ekinn 108 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Black Friday Tilboð 4.690.000. Rnr.213918. BMW X6 xdrive30d m-tech. Árgerð 2015, ekinn 68 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 8 gírar. Black Friday Tilboð 7.990.000. Rnr.115421. TOYOTA Hilux double cab sr5. Árgerð 2008, ekinn 188 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur 4 gírar. Black Friday Tilboð 2.390.000. Rnr.213898. SKI-DOO Summit sp 154. Árgerð 2014, ekinn 4100 .KM, bensín, sjálfskiptur. Black Friday Tilboð 1.190.000. Rnr.114170. Bla ck Fri da y T ilb oð 7.9 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 7.9 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 1.7 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 2.3 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 4.6 90. 00 0 Bla ck Fri da y T ilb oð 1.1 90. 00 0 Eftir að ég varð atvinnulaus í sumar sótti ég ekki um önnur störf. Í sumar þurfti ég að segja starfinu mínu upp þar sem ekki voru nægir peningar í verk- efninu til að borga mér laun en ég tala meira um það hér. Það fyrsta sem ég gerði var að meta stöðuna og reyna komast að þvi hvað mig langaði að gera - vegna þess að ekkert fyrirtæki kallaði til mín. Í staðinn ákvað ég að vinna að verk- efninu Reboot Hack sem ég hafði stofnaði ári áður ásamt skóla- systrum mínum. Reboot Hack er hakkaþon fyrir háskólanema en hakkaþon er nýsköpunarkeppni sem fer fram á 24 tímum þar sem fyrirfram ákveðnar áskoranir frá íslenskum fyrirtækjum eru lagðar fyrir sem þátttakendur þurfa svo að þróa og að lokum kynna hug- myndir sínar að lausnum. Eftir að hafa lokið fyrsta fjár- mögnunarfasa Reboot Hack í byrjun september komust við að því að jarðvegurinn er grýttari en við höfðum talið og mér ljóst að ég gæti ekki fengið greitt fyrir vinnuna mín hjá Reboot Hack. Ég opnaði því fyrir það að taka að mér auka verkefni til að halda mér uppi. Fyrsta verkefnið sem ég tók að mér var í gegnum fyrri samstarfs- aðila Reboot Hack 2019. Verkefnið fólst í því að vera ráðgjafi við framkvæmd hakkaþons á vegum Snjallborgarinnar, verkefnis á vegum Reykjavíkurborgar. Þar gat ég nýtt þá þekkingu og færni sem ég hef öðlast í gegnum störf mín við hakkaþon ásamt færni mína í samskiptum og viðburðar- stjórnun. Það fréttist út og stuttu seinna fékk ég annað hakkaþons verkefni í hendurnar en í það skipti var mér falið að sjá um alla framkvæmd hakkaþonsins. Þegar á leið það verkefni kom í ljós að ekki var til nægt fjármagn ásamt því að ekki var nægjanlegur tími til stefnu til þess að klára allt sem þurfti. Því var ákveðið að hætta við framk væmdina. Þá sömu viku kom upp í hendurnar á mér annað hakkaþon - í þetta skipti fyrir Tónlistarborgina Reykjavík en hakkaþonið fór fram undir leiðsögn MIT Bootcamps sem byggir á hugmyndafræði frá sér- fræðingum við MIT-háskólann og einblínir á hvernig á að leiða hópa í hugmyndavinnu. Starf mitt síðustu mánuði hefur því þróast í það að vera hakka- þonráðgjafi, sem er blanda af verk- efnastjórnun, viðburðarstjórnun, markaðsstörfum og almanna- tengslum. Ég hef þróað með mér enn betri færni til þess að vinna sjálfstætt sem og hæf ileikann til þess að koma inn í í teymi og vinna samhliða þeim á mest krefj- andi tímum verkefnisins. Starfið felur í sér að geta haldið mörgum boltum á lofti frá mismunandi verkefnum. Það felur í sér mikið skipulag og úthald þar sem fjöldi funda er mikill þegar nær líður hakkaþonunum sjálfum, sem og hakkaþonin sjálf krefjast mikill- ar viðveru þegar að þeim loksins kemur. Ég hef kynnst fjölmörgu fólki innan nýsköpunarsenunnar ásamt því að hafa myndað tengsl milli þeirra verkefna sem finna má í mínu umhverfi og hvatt fólk til þess að taka þátt í gegnum það sterka tengslanet sem ég hef þróað í gegnum störf mín. Það skiptir mig miklu máli að tengja þessi verkefni saman og hakkaþon- áhugafólk ætti að geta sótt öll þau hakkaþon sem eru í boði á Íslandi. Þegar ég var yngri dreymdi mig alltaf um að vinna við eitthvað sem hafði ekki enn verið fundið upp. Síðustu ár hef ég síðan stefnt að því að vinna við krefjandi og síbreytilegt starf sem krefst þess að ég leggi mig stöðugt fram um að læra nýja hluti. Að geta fylgt þessu eftir, uppfylla markmiðin og hafa skapað mér mín eigin tækifæri hefur verið gríðarlega lærdóms- ríkt. Í dag er ég gríðarlega stolt af því að hafa tekist að skapa mér tímabundna atvinnu sem hakka- þonráðgjafi. Ef þú hefur áhuga á því að halda hakkaþon, kynnast hugmyndafræðinni betur eða taka þátt í Reboot Hack ekki hika við að hafa samband. Ég er hakka þon ráð gjafi, en þú? Kristjana Björk Barðdal framkvæmda- stjóri Reboot Hack Þegar ég var yngri dreymdi mig alltaf um að vinna við eitthvað sem hafði ekki enn verið fundið upp. Síðustu ár hef ég síðan stefnt að því að vinna við krefjandi og síbreytilegt starf sem krefst þess að ég leggi mig stöðugt fram um að læra nýja hluti. 2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R30 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 9 6 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 5 F -1 9 1 4 2 4 5 F -1 7 D 8 2 4 5 F -1 6 9 C 2 4 5 F -1 5 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 9 6 s _ 2 8 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.