Fréttablaðið - 29.11.2019, Blaðsíða 38
Þá styttist í jólin og því ekki úr vegi að rifja upp heimildirnar um fæðingu Jesú, en jólin, eða
Kristsmessa eins og hátíðin heitir
upp á ensku, er fæðingarhátíð hans.
Það eru tveir guðspjallamenn sem
geyma heimildirnar um fæðingu
hans í Betlehem, þeir Matteus og
Lúkas. Samkvæmt Biblíunni fædd-
ist Jesús á meðan Heródes mikli var
leppkonungur Rómverja í Ísrael.
Nú er það svo að Heródes dó árið
fjögur fyrir Krist. Matteus segir svo
frá að Heródes hafi sent hermenn til
Betlehem til að myrða öll sveinbörn
tveggja ára og yngri, eftir að hann
hafði fengið fréttina af fæðingu
meistarans. Þess vegna hlýtur Jesús
að hafa fæðst að minnsta kosti 5-6
árum fyrir tímatal okkar, 5-6 árum
fyrir fæðingu sína. „Fæðing Jesú“ er
hugtak sem er notað í sambandi við
tímatal. Við teljum frá fæðingu Jesú,
„á því Herrans ári“ eins og sagt er.
Þetta hugtak er ekki sagnfræðilegt
heldur tilbúið, tímapunktur sem
menn ákváðu í byrjun 6. aldar. Þá
misreiknuðu menn fæðingu Jesú
um 5- 6 ár. Dionysius Exiguus hét
sá er var falið þetta reiknihlutverk.
Hann bjó í Róm. Áður höfðu Róm-
verjar gefið árunum tölu og heiti
miðað við upphaf Rómaborgar eða
heiti rómversku keisaranna. Eftir
árið 500 var miðað við fæðingu Jesú.
En fæðingarár hans var fest við árið
754 frá upphafi Rómaborgar – sem
er sem sagt nokkrum árum of seint.
Guðspjallamaðurinn Lúkas segir
að Jesús hafi fæðst árið sem Kýren-
íus var landstjóri í Sýrlandi og kall-
aði alla til skráningar fyrir hönd
Ágústusar keisara. Eitthvað ruglar
Lúkas þar saman árum, því Kýren-
íus varð fyrst landstjóri í Sýrlandi
árið 6 eftir Krist. Líklegast hefur
Jesús þá verið orðinn 12 ára gamall.
Svo aftur sé nú vikið að guðspjöll-
unum tveimur eftir þá Matteus og
Lúkas, þá ber frásögnum þeirra af
fæðingu Jesú og uppruna hans á
engan hátt saman. Það eina sem
þeir virðast vera sammála um er
að María hafi verið meyja, trúlofuð
Jósef, sem var ekki líffræðilegur faðir
barnsins – og að Jesús hafi fæðst í
Betlehem. Matteus lætur til dæmis
fjölskyldu Jesú koma frá Betlehem.
Hvergi minnist Matteus á fjárhús
eða skráningu skattayfirvalda. Þegar
stjörnuspekingarnir hans koma til
Betlehem til að heiðra barnið, ganga
þeir beint „inn í húsið“ (Matt. 2:11).
Stjörnuspekingarnir (vitringarnir)
og sér í lagi stjarnan sem þeir fylgdu,
hafa reyndar verið tilefni mikilla
vangaveltna í gegnum aldirnar.
Hvað var eiginlega þessi stjarna, jóla-
stjarnan sem blikar yfir Betlehem?
Það er ekki gott að segja, en hitt
er staðreynd að halastjarna sást á
himninum um tveggja mánaða skeið
árið 5 fyrir Krist – eða með öðrum
orðum um það leyti sem Matteus
segir frá að Jesús hafi fæðst. Sam-
kvæmt kínverskum stjörnuspek-
ingum var ferill hennar skráður að
vori, í mars til apríl – en á þeim tíma
hefur Jesús þá líklegast fæðst.
Sögunum um fæðingu Jesú í guð-
spjöllunum er þannig ekki ætlað að
flytja sagnfræðilega annála, heldur
leiða okkur í sannleikann um að
Jesús sé Frelsarinn, Kristur og Drott-
inn. Líklegast fæddist Jesús í Nasaret.
Pabbi hans hét ef til vill Jósef. Móðir
Jesú hét María – eða Mirijam – lík-
lega fæddist Jesús árið 6-4 fyrir Krist.
Að vori. Alla vega örugglega ekki
25. desember. Annað vitum við ekki
um fyrstu æviár Jesú, bernsku og
æsku – í raun og veru – ekki fyrr en
hann kemur til Jóhannesar skírara
fullorðinn maður og lætur skírast
í ánni Jórdan. En þar hefst einmitt
Jóhannesarguðspjall.
En 25. desember var ákveðinn
fæðingarhátíð Krists samkvæmt
kirkjunni í hinu gamla rómverska
ríki. Sú kirkja varð seinna rómversk-
kaþólska kirkjan og lútersku kirkj-
urnar, þar með íslenska þjóðkirkjan,
eru sprottnar frá henni. 25. desem-
ber hafði verið hátíð hinnar miklu
sólar í hinni fornu Róm fyrir daga
Jesú. Rök kirkjunnar fyrir að helga
þann dag fæðingunni voru þau, að
Jesús hafi verið fullkominn maður
og því hlyti hann að hafa verið get-
inn á fullkomnum degi. 25. mars var
talinn fullkomnasti dagur ársins
í Rómaveldi, því þá var álitið að
heimurinn hefði verið skapaður.
Jesús hlaut því að hafa verið getinn
þann dag. Sögðu kirkjubændur. Sem
þýddi að hann hlaut að hafa fæðst 9
mánuðum síðar, 25. desember. Auk
þess er Jesús hin nýja sól heimsins
og því vel við hæfi að fagna honum á
hinum forna hátíðisdegi sólarinnar.
Aðfangadagur, 24. desember, verð-
ur dagur fæðingarhátíðarinnar hjá
okkur því það er eini dagur ársins
þar sem miðað er við hið forna daga-
tal Gyðinga. Samkvæmt Gyðingum
byrjar nýr dagur kl. 18.00 að kveldi.
Þannig hefst 25. desember kl. 18.00
þann 24. desember – en einmitt þá
hringjum við jólin inn á Íslandi!
Gleðileg jól!
Rök kirkjunnar fyrir að helga
þann dag fæðingunni voru
þau, að Jesús hafi verið full-
kominn maður og því hlyti
hann að hafa verið getinn á
fullkomnum degi. 25. mars
var talinn fullkomnasti dagur
ársins í Rómaveldi, því þá
var álitið að heimurinn hefði
verið skapaður. Jesús hlaut
því að hafa verið getinn þann
dag. Sögðu kirkjubændur.
Fæddist Jesús árið 6 fyrir Krist?
Þórhallur
Heimisson
prestur og
fararstjóri
„LESTRARNAUTN.“
EGILL HELGASON / KILJAN
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Þessi saga hittir okkur beint í hjartastað.“
STEFÁN PÁLSSON
Leiftrandi skemmtileg og listavel skrifuð
örlagasaga eftir Sigrúnu Pálsdóttur.
„Afbragsgóð og afar forvitnileg skáldsaga.“
BJÖRN ÞÓR VILHJÁLMSSON / VÍÐSJÁ
„Skrifuð af sjaldséðu listfengi.“
GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON
„Stóð mig að því að vilja spara mér lesturinn.“
VERA KNÚTSDÓTTIR / BÓKMENNTABORGIN.IS
„Þrælspennandi og tilvalin jólanæturbók.“
ÞORGEIR TRYGGVASON / KILJAN
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R36 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-7
1
F
4
2
4
5
F
-7
0
B
8
2
4
5
F
-6
F
7
C
2
4
5
F
-6
E
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K