Fréttablaðið - 29.11.2019, Side 10
STJÓRNMÁL Hátt í sjötíu mál sem
ráðherrar hugðust leggja fram á
haustþingi ef marka má þingmála-
skrá ríkisstjórnarinnar hafa enn
ekki verið lögð fram á Alþingi en
samkvæmt starfsáætlun Alþingis
rennur frestur til að leggja fram mál
á haustþingi út á morgun. Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra
segir að nokkur mál verði afgreidd
úr ríkis stjórn í dag og að hún muni
óska eftir framlagningarfundi á
Alþingi áður en fresturinn rennur
út.
Meðal boðaðra mála sem ekki
hafa verið lögð fram eru frumvarp
mennta- og menningarmálaráð-
herra um stuðning við einkarekna
fjölmiðla sem áætlað var að leggja
fram í september og frumvarp
fjármálaráðherra um breytingar á
erfðafjárskatti sem leggja átti fram
í október.
Tvísýnt um styrki til fjölmiðla
Lengi hefur legið fyrir að fjölmiðla-
frumvarpið hefur mælst misjafn-
lega fyrir, sérstaklega í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins. Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, hefur nú kynnt ný
frumvarpsdrög í þingf lokkum
stjórnarmeirihlutans þar sem lagt
er til að styrkirnir verði lægri en
fyrri drög gerðu ráð fyrir. Í frum-
varpinu er gert ráð fyrir styrkjum
fyrir rekstrarárið 2019 og í fjárlög-
um sem samþykkt voru síðastliðinn
miðvikudag er gert ráð fyrir 400
milljónum til að styrkja einkarekna
fjölmiðla á grundvelli boðaðra laga.
Frumvarpið hefur hins vegar
ekki verið samþykkt í öllum þing-
flokkum meirihlutans og mjög óvíst
hvort það verður lagt fram á þessu
þingi. „Það er ekki búið að afgreiða
þetta út úr þingf lokknum,“ segir
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona
Sjálfstæðisflokksins, og bætir við:
„Við ætlum að fá betri kynningu
á því hvað nákvæmlega ráðherrann
ætlar sér og fara betur yfir þetta.
En eins og ég held að öllum sé ljóst
þá eru mismunandi hugmyndir
uppi um það hver er besta leiðin
til að koma til móts við frjálsa fjöl-
miðla. Þannig að þetta er enn þá á
umræðustigi hjá okkur. Ég held að
allir séu sammála um að styrkja
stöðu frjálsra fjölmiðla en spurn-
ingin er hver er besta leiðin og hvort
það sé sú sem þarna liggur fyrir.“
Bryndís segist ekki geta svarað því
hve langan tíma þingf lokkurinn
þurfi til að fara yfir málið. „En ég get
sjálf ekki séð fyrir mér að það skipti
öllu máli hvort slíkt frumvarp yrði
samþykkt fyrir eða eftir jól.“
Erfðafjárskatturinn bíður
Heimildir Fréttablaðsins herma
einnig að fyrirhugað frumvarp
fjármálaráðherra um breytingar
á fyrir komulagi erfðafjárskatts
mælist mjög misjafnlega fyrir í
þingflokki Vinstri grænna.
Auk þessara mála á enn eftir að
leggja fram frumvarp félagsmála-
ráðherra um heimild foreldra til
að ákveða skipta búsetu barna,
frumvarp sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra um endurskoð-
un búvörusamninga og frumvarp
dómsmálaráðherra um endurupp-
tökudómstól. Stór mál frá sam-
gönguráðherra hafa heldur ekki
enn verið lögð fram; þeirra á meðal
samgönguáætlun 2020 til 2034 og
frumvörp sem lúta að gjaldtöku í
umferð og heimild til að fela einka-
aðilum fjármögnun, framkvæmd og
veghald á tilteknum hluta þjóðvega.
Bótamálið á lokastigi
Auk nýsamþykktra fjárlaga hafa
Minni hluti stjórnarmála lagður fram
Innan við helmingur boðaðra þingmála ríkisstjórnarinnar á haustþingi hefur verið lagður fram á Alþingi. Forsætisráðherra segir
þingmálaskrána hafa verið metnaðarfulla en ráðherrar verið seinir í gang. Frestur til að leggja fram þingmál rennur út á morgun.
Tvær vikur eru eftir af þingstörfum þessa haustþings miðað við starfsáætlun Alþingis. Bjartsýni ríkir um jólafrí þingsins á réttum tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þinginu haldið gangandi með þingmannamálum
Þarna eru auðvitað dagsetningar
mál að koma fram rosalega seint
eins og fæðingarorlofið til dæmis.
Þetta er mjög skrýtið, hér er búið
að vera lítið að gera og eiginlega
engin ríkisstjórnarmál að koma
inn. Búið að setja fullt af þing
mannamálum á dagskrá sem er
spurning hvort afgreiðist út úr
nefndunum. En við erum búin að
vera að halda þinginu gangandi
með þingmannamálum af því að
ríkisstjórnarmálin eru að koma
svo seint fram.
Þetta gerist of oft að málin
eru að koma mjög seint fram og
þá kemur þrýstingur á okkur að
afgreiða hlutina fljótt. Það gerir
það að verkum að mistök eru gerð
og út úr þessu kemur allt of oft
óvönduð lagasetning. Það er það
sem ég hef mestar áhyggjur af.
Þetta eru svo slæm vinnubrögð.
Þetta eru auðvitað ólíkir flokkar
í ríkisstjórninni og það er að koma
meira og meira í ljós hvað þeir í
raun og veru ganga ekki í takt.
Vorum hæg í gang
Það er alveg ljóst að þingmálaskrá
ríkisstjórnarinnar var metnaðar
full og við vorum hæg í gang. Ég
er búin að skoða þingmálaskrár
aftur í tímann og mér sýnist besti
árangurinn hafa verið í fyrra. Við
erum ekki að ná því meti núna
þótt við höfum tekið verulegan
kipp núna síðustu daga. Stór hluti
mála er kominn í ferli á Alþingi og
starfið í nefndum gengur vel.
Stjórnarliðar hafi slugsað í allt haust
Við erum auðvitað búin að klára
fjárlögin mjög tímanlega núna.
En það er ekkert skrýtið við það
vegna þess að innan við helm
ingur boðaðra stjórnarmála sem
áttu að koma fram í september og
október skilaði sér.
Núna á síðustu dögum hafa
verið að koma inn risamál eins
og menntasjóður námsmanna,
fæðingarorlofsmálið, sameining
Íbúðalánasjóðs og Mannvirkja
stofnunar og úrvinnsla eigna og
skuldasafns Íbúðalánasjóðs. Síðan
hafa þau látið glitta í fleiri mál eins
og fjölmiðlafrumvarpið.
Með öðrum orðum eru þau
búin að slugsa í allt haust og geta
bara einfaldlega ekki krafist þess
að þessi mál klárist án mikillar
umræðu hér í þinginu. Þannig að
ég reikna nú ekkert með að við
förum neitt sérstaklega tíman
lega heim í jólafrí og engin ástæða
til. Ef fjaðrirnar fara nú að reytast
af stjórnarmeirihlutanum í meiri
mæli en orðið hefur í þessari viku,
þá fer nú að þyngjast undir fæti.
Hlutfallslega flest mál frá Flokki fólksins
Þingmenn hafa sjálfir lagt
fram 177 mál það sem af
er þessu haustþingi.
Flokkur fólksins á
langflest þeirra
miðað við höfða
tölu en þingmenn
flokksins sem eru
tveir hafa lagt fram
19 þingmál. Enginn
þingflokkur hefur lagt
fram fleiri mál en Píratar sem lagt
hafa fram 17 frumvörp og
11 þingsályktunartillögur,
samtals 28 mál. Það eru
4,7 mál á hvern þingmann
flokksins. Þingflokkur
Viðreisnar leggur að
sama skapi fram mörg
mál en fjórir þingmenn
flokksins hafa lagt fram
samtals 18 mál.
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur@frettabladid.is
aðeins þrjú stjórnarfrumvörp
verið samþykkt á Alþingi það
sem af er þessu haustþingi en þó
nokkur fjöldi mála er til meðferðar
í nefndum þingsins. Þeirra á meðal
eru frumvarp til nýrra lyfjalaga,
frumvarp til nýrra sviðslistalaga
og nýrra laga um menntasjóð náms-
manna; frumvörp um neyslurými,
um lengingu fæðingarorlofs, um
breytingar á lagaumgjörð um æru-
vernd, um vernd fyrir uppljóstrara,
um þjóðarsjóð og um sameiningu
Íbúðalánasjóðs og mannvirkja-
stofnunar í nýja stofnun svo nokkur
séu nefnd.
Nokkur mál eru lengra komin
og bíða nú þriðju umræðu og loka-
afgreiðslu. Þetta eru frumvörp um
bætur vegna sýknudóms í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálum, frum-
varp til nýrra laga um skráningu
einstaklinga, frumvarp um breyt-
ingar á barnabótum og frumvarp
um lækkun á bankaskatti.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti
Alþingis, segist bjartsýnn á að unnt
verði að ljúka þingstörfum annan
föstudag eins og starfs áætlun þings-
ins gerir ráð fyrir. Það sé mikið gleði-
efni að tekist hafi að ljúka afgreiðslu
fjárlaga svona tímanlega en það
megi meðal annars þakka breyt-
ingum á samkomudegi þingsins
fyrr að hausti og nýjum lögum um
opinber fjármál.
Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓRLogi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
2 9 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
5
F
-4
A
7
4
2
4
5
F
-4
9
3
8
2
4
5
F
-4
7
F
C
2
4
5
F
-4
6
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
2
8
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K