Hlynur - 15.12.1956, Síða 4
HAFNFIRZKAR
FRÉTTIR
Haraldur
Kaupfélag Hafnfirðinga opnaði fyrir
nokkru aðra kjörbúð sína að Kirkju-
vegi 16, en þar rak það áður verzlun
með afgreiðslufyrirkomulaginu. A opn-
unardegi búðar-
innar var um það
\ bil ár liðið frá
því að kaupfélag-
ið opnaði kjör-
búðina við Strand
I götu. Það er í
frásögur færandi
að breytingin átti
sér stað á einni
helgi, því að
verzlað var í búð-
inni fram á laug-
ardagskvöld, en þ^ var innrétting öll
tekin úr og hin nýja sett í staðinn þá
um helgina.
Verzlunarstjóri hinnar nýju búðar er
Haraldur Hafliðason, sem starfað hefir
lengi hjá félaginu. Hann er fæddur á
Siglufirði 6.2. 1929. Fimmtán ára gamall
réðist hann í veiðafæraverzlun Sigurð-
ar Fanndals á Siglufirði og starfaði þar
fram til ársins 1951, er hann réðist til
Kf. Hafnfirðinga. Deildarstjóri varð
hann að Strandgötu 28 árið 1953, og
tók við verzluninni að Kirkjuvegi 1955,
eins og áður segir, og veitir nú hinni
nýju kjörbúð forstöðu.
Fleira er fréttnæmt frá Hafnarfirði,
þar hefir Sigurður Sigfinnsson fyrrum
starfsmaður Kf. „Fram“, Norðfirði
gerst deildarstjóri skó- og vefnaðar-
vörudeildar. Sigurður er fæddur að
Kleif í Breiðdal 21.7. 1903. Árið 1920
réðist hann að verzlun Sigfúsar Sveins-
sonar á Norðfirði og vann hann þar við
alhliða verzlunarstörf næstu 26 árin,
Sigurður
en þá gekk hann
í þjónustu kaup-
félagsins „Fram“.
Hefir hann fram
til síðustu mán-
aðamóta, er hann
réðist til Hafnar-
fjarðar, veitt for-
stöðu vefnaðar-
vörudeild félags-
ins og jafnframt
verið aðalinn-
kaupastjóri þess.
SKÓÚTSTILLING
Það er hægt að stilla út skóm þótt
kaupfélagið eigi ekki hverfil. Hér er
eitt ráð við því. Klæðið masónít-nlötu
með pappír, skreytið hana með grein-
um og öðru tiltæku. Festið síðan skón-
um á plötuna með smánöglum undir
hælinn. Einnig mætti, ef platan væri
götuð, draga örþunnt girni yfir skóinn
og hnýta það baka til.
4