Hlynur - 15.12.1956, Blaðsíða 24
4. ÁRG. 11.—12. TBL. NÓV.—DES. 1956.
9
otl aí uita.
• •
að nú er ár liðið frá því að Hlynur hóf
göngu sína í núverandi búningi. Fyrsta
blaðið kom út í nóvember 1955. Þetta
telst þó vera fjórði árgangurinn, því
þrír höfðu komið áður en blaðinu var
breytt.
að útbreiðsla Hlyns hefir gengið mjög vel
á þessu ári. Blaðið hefir víðast hvar
fengið hinar beztu viðtökur. Munið að
Hlynur er blað samvinnustarfsmanna
og því hinn æskilegasti vettvangur fyr-
ir hvers konar hugðarefni þeirra.
að Hlynur er smátt og smátt að taka upp
annað sendingarkerfi, til starfsfólks
kaupfélaganna, en verið hefir. Mun
blaðið sent beint heim til starfsfólks-
ins, en ekki í einu lagi til hvers kaup-
félags. Eru viðkomandi félög beðin að
gleyma ekki að senda lista yfir starfs-
fólk sitt.
að merkispjöld þau, sem talað er um í
þættinum um eignaeftirlit í síðasta
blaði, eru úr alúmíníum. Má því beygja
þau eftir vild, og afar auðvelt er að
koma þeim fyrir, hvernig svo sem hlut-
irnir eru lagaðir.
að greinin vakti mikla athygli. Kaupfélag
Hafnfirðinga og SIS-Austurstræti hafa
þegar gert pöntun á slíkum merki-
spjöldum og hyggjast reyna þau.
að Kaupfélag V.-Húnvetninga, Hvamms-
tanga, hefir nýlega fest kaup á kvik-
myndasýningatækjum (mjófilmuvél),
sem það hyggst nota í fræðslu- og
félagsmálastarfi sínu.
að kvikmyndir þær, sem forstöðukona til-
raunaeldhúss sænska samvinnusam-
bandsins, sýndi hér á húsmæðrafund-
um fyrir nokkru, eru nú í eigu fræðslu-
deildar SÍS.
að þau kaupfélög, sem hafa sitt hvora
frumbókina fyrir félags- og utanfé-
lagsmannaviðskipti og halda þeim
þannig alveg sundurskildum, full-
nægja þeim kröfum, sem skattayfir-
völdin gera til samvinnufélaga hvað
þetta snertir.
að Egill Thorarensen, kaupfélagsstjóri á
Selfcssi, er nýlega kominn heim frá út-
löndum, en hann hefir dvalizt ytra í
sumar.
að salan hjá vefnaðarvörudeild KRON
gengur mjög vel og hefir aldrei verið
hlutfallslega meiri í október og nóvem-
ber en nú í ár.
að verksmiðjur samvinnumanna leggja
sinn skerf af mörkum til aukins um-
ferðaöryggis. Mun framvegis fylgja
smekklegt sjálflýsandi öryggismerki
hverri barnaúlpu frá Heklu.
að árlega bætast 600—800 nýir nemend-
ur í Bréfaskóla SÍS. Námsgreinar
skólans eru nú orðnar 24 og kennar-
ar 17. Friðrik Ólafsson, hinn kunni
skákmaður, er að semja kennslubréf
í skák fyrir skólann.
er gefinn út af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Starfs-
mannafélagi SIS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri er
Orlygur Hálfdanarson, en auk hans í ritnefnd Guðrún Þor-
kelsdóttir og Gunnar Sveinsson, Keflavík. Ritstjórn og af-
BLAÐ SAMVINNU-
greiðsla hjá fræðsludeild SÍS, Sambandshúsinu, Reykjavík
STARFSMAN N A Verð: 35.00 kr. árg., 3.00 kr. hefti. Kemur út mánaðarlega