Hlynur - 15.01.1974, Qupperneq 15
Ilajnarstrœti 91 (fremst d myndinni), 93 (í miðið) og nýbyggingin nr. 95 lengst undan. I meðfylgjandi grein er frá
því skýrt, hvernig þessi nýja bygging verður nýtt í aðalatriðum.
eða þar til byggð verður sér-
stök vörugeymsla fyrir kaupfé-
lagið.
Hönnun og teikningar að
þessum framkvæmdum annað-
ist Teiknistofa Sambandsins,
arkitekt Hákon Hertervig. Burð-
arþolsteikningar gerði Verk-
fræðiskrifstofa Sigurðar Thor-
oddsen, Akureyri, loftræsti- og
pípulagnateikningar Pétur
Valdimarsson tæknifræðingur
og raflagnateikningar Sigurður
Sigurjónsson, Teiknistofu Sam-
bandsins. Múrarameistari og
byggingarstjóri fyrir hönd KEA
er Gísli Magnússon, trésmíða-
meistari Aðalgeir Finnsson,
pípulagningarmeistarar Sig.
Svanbergsson og Karl Magnús-
son, málarameistari JónA.Jóns-
son, en raflögn annaðist Ljós-
gjafinn hf., raflagnameistari Ól-
afur Jónsson. Uppsetningu loft-
ræsti- og lofthitunarkerfis ann-
aðist Vélsmiðjan Oddii svo og
gufulagnir, en húsin eru hituð
upp með gufu frá Ketilhúsi KEA,
sem er sameiginleg kyndistöð
fyrir byggingar kaupfélagsins í
og við Grófargil. Innréttingar
eru ýmist erlendis frá eða smíð-
aðar af innréttingadeild Skipa-
smiðastöðvar KEA, sem einnig
annaðist uppsetningu þeirra
allra.
í upphafi þessara bygginga-
framkvæmda varð að fjarlægja
steintröppur þær og gangstig,
sem lágu frá Gilsbakkavegi nið-
ur á baklóð Hafnarstrætis 91,
um svo nefnt „Skessuhorn".
Vegna eindreginna óska frá fé-
lagsfólki hefur KEA þess í stað
látið smíða og reisa 72 þrepa
stiga úr járni og tré. Er það hin
bezta samgöngubót fyrir þá, sem
búa á Brekkunni.
(KEA-fregnir)
★
HLYNUR 15