Hlynur - 15.01.1974, Blaðsíða 16

Hlynur - 15.01.1974, Blaðsíða 16
75. tölublaðið Eins og ýmsa mun reka minni til var útgáfu HLYNS breytt seint á árinu 1967 í það horf, sem hún er nú í, og að meðtöldu þessu janúar- blaði hafa síðan samtals komið út af honum 75 tölublöð í þessu formi. Það er í sjálfu sér ekki ástæða til að minnast þessa atburðar með sér- stakri viðhöfn, en eigi að síður viljum við þó doka aðeins við og líta yfir farinn veg af þessu tilefni. Þennan tíma hefur blaðið kapp- kostað að vera vettvangur, sem spannaði sem víðast yfir allt það umfangsmikla svið, sem nefnist samvinnumál. Það er ekki aðeins, að þar sé um að ræða félagsmál og atvinnurekstur samvinnumanna á 6. !bl. 1972 Júní 1972. íslandi, svo umfangsmiklir sem þessir þættir einir út af fyrir sig eru orðnir, heldur er samvinnu- hreyfingin alþjóðahreyfing, sem hefur innan sinnan vébanda milj- ónir og aftur miljónir fólks um allan heim. Þar við bætast svo fjöldamörg atriði, sem varða marg- vísleg svið viðskipta og þjónustu og snerta samvinnumenn beint og ó- beint í störfum þeirra. Blaðið hefur reynt að rækja það hlutverk sitt eftir föngum að greina jafnan frá hinu nýstárleg- asta, sem er að gerast á þessum sviðum. Hins vegar gefur auga leið, að því er svo þröngur stakkur skor- inn bæði að því er snertir starfs- krafta og blaðsíðufjölda í mánuði, að ekki getur verið um fullkominn fréttaflutning af öllum þessum efnum að ræða, en á hinn bóginn hefur verið leitazt við að grípa á hinu fréttnæmasta hverju sinni, hvort sem er með viðtölum við leiðandi menn eða greinum um af- mörkuð efni. Af viðtökunum, sem blaðið hefur fengið hjá lesendum sínum í hópi samvinnustarfsmanna og annarra, er ekki annað að ráða en að þeim hafi fallið þetta allvel í geð og blaðið hafi notið þeirra vinsælda, sem efni stóðu til. Þá er heldur ekki úr vegi að minna á það við þetta tækifæri, að öll heftin 75, samtals um 1.200 blað- síður, eru enn fáanleg hjá Fræðslu- deild Sambandsins, en þó aðeins takmarkað upplag af sumum þeirra. Hvetjum við alla lesendur til að at- HLYNUR L TBL. 1967 Nóvember 1967. Maí 1970. huga það í tíma, hvort þeir hafi glatað einhverjum heftum, og bæta þá úr því, áður en þau ganga til þurrðar. Þessi 75 hefti eru slík náma af fróðleik um þróun samvinnu- starfsins s. 1. sex ár, að enginn sannur samvinnumaður getur án þeirra verið. H L Y N U R Blað um samvinnumál 1. tbl. 22. árg. janúar 1974 Hlynur er gefinn út af Sambandi ísl. samvinnufélaga, Landssambandi ísl. samvinnustarfsmanna og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritsfjórar eru Sigurður A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Sigurðsson. Auk þeirra eru í ritnefnd Sigurður Jónsson og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgreiðsla eru hjá Fræðsludeild Sambandsins, Ármúla 3, Reykjavík. Verð kr. 275.00 érgangurinn. Kemur út mán- aðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf. 16 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.