Hlynur - 15.12.1984, Síða 34
Ormar Skecjgjason hefur unniö hjá
Sambandi Isl. Samvinnufélaga um
28 áratímabil og gegnt þarýmsum
ábyrgðarstörfum af alúð og dugn-
aði. Síðustu 15-20 ár hefur Ormar
starfað í húsi því sem nú ber
nafnið Torgið og hefur lengst af
verið þar verslunarstjóri og síðustu
ár framkvæmdastjóri og þá einnig
fyrir Herraríkin. Hinn 1. nóv. sl. lét
Ormar af störfum hjá Torginu og
þá jafnframt hjá Sambandinu og
mun flestum sem til þekkja finnast
að þar sé einum góðum starfs-
manni færra en áður. Við þessi
tímamót var Ormari haldið kveðju-
hóf og þar var honum flutt eftirfar-
andi kvæði í nafni starfsfólks
Torgsins:
Söknuður
Skrifstofan þín, Ormar er eyðileg
og tóm
og ekkert skráf í blöðum eða penna
og enginn talar lengur og hlær með
hlýjum róm.
Þar hljótt er allt og dagsins stundir
renna.
Þetta er sú staðreynd sem nú er
lýðum Ijós,
það læðist kaldur blær um sálir
manna.
í fæðingunni andast sérhver fögur
hugarrós.
Hér fundum við þó áður gleði
sanna.
Þú horfinn ert úr Torginu og heldur
þína leið,
en hugir okkar fylgja þér úr hlaði
og verða munu í ferðum með þér,
ómælt æviskeið
sem undirstrikuð Ijóð af þessu
blaði.
Þakkir okkar margfaldar er ekki
unnt að tjá,
en alla tíma varstu sannur maður
sem húsbóndi og félagsbróðir fólki
þínu hjá,
með frjálslegt viðmót, ætíð hress
og glaður.
Við kveðjum þig með söknuði, en
kyrrum okkar tár
og kvörtum ei, en látum sönginn
hljóma.
í fortíðinni geymast munu þín og
okkar ár
sem áður gáfu dagsins striti Ijóma.
Lóa Þorkelsdóttir
Valný Benediktsdóttir í Hafnarfirði
yrkir um vorið og ekki mun hún ein
um sínar óskir:
Sólin gyllir gróðurreit
glaðir söngvar hljóma.
Ó mig langar upp í sveit
í angan vors og blóma.
Og einnig:
Nú Ijómar eygló Ijúf og hrein
og lífsins eykur hag.
Og fuglinn Ijóðar létt á grein
sinn lista fagra brag.
•
Svohljóðandi kveðju fékk Land-
samband íslenskra Samvinnu-
starfsmanna frá Steinunni Sigur-
björnsdóttur í Grimsey og sannast
þar að víða eigum við fólk sem
getur raðað orðum á snyrtilegan
hátt svo úr verði Ijóð. Við sendum
kveðjur til landa okkar á eyjunni við
heimskautsbaug.
Moldarnæringar meiðurinn
þarfnast
svo megi hann laugast í birtunni
fagur
Megi þér líka í för þinni
farnast
framundan langurog bjarturdagur.
Sólin mun koma og sá yfir
skini
Syngjandi fuglar í laufinu vaka.
Iðnir sér búa hreiður í Hlyni
hlývindar munu þar undir taka.
•
Sjalfsagt er stundum erfiður róður-
inn í peningamálum hjá Sverri
Bergmann kaupfélagsstjóra á fsa-
firði svo sem fleirum Að minnsta
kosti sendi hann þessa vísu þegar
hann greiddi jólakveðju eftir ítrek-
un en hvort hann hefur meint hana
í gamni eða alvöru skal ósagt látið
en skemmtileg er hún hvort sem er.
Okkar er skömmin og Ijóðurinn
því erfiður er róðurinn.
En við skulum borga þér góðurinn
þótt galtómur sé sjóðurinn.
•
Eftirfarandi vísu orti ÓÞ í orðastað
manns sem stundar hesta-
mennsku i tómstundum:
Skjól frá vanda vinnudags
víst er gott að eiga
og við fákinn leita lags
- loftið hreina teiga.
Og um veðurfræðina:
Yfir landið banvænn berst
bitur næðingurinn.
Einn í hinsta vígi verst
veðurfræðingurinn.
34
HLYNUR