Heimsmynd - 01.05.1993, Side 16
arstjórn segja ágreining innan borgar-
stjómarmeirihlutans mjög áberandi og það
sé af sem áður var þegar Davíð Oddsson
var þar einráður. Þegar Davíð Oddsson
yfirgaf borgarstjórastólinn eftir að hann
varð forsætisráðherra núverandi ríkis-
stjómar í júní 1991 voru uppi miklar deilur
um arftaka hans. Að minnsta kosti þrír
borgarfulltrúar í efstu sætum sóttust eftir
embættinu, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Katrín Fjeldsted og Árni Sigfússon, en
forseti borgarstjómar, Magnús L. Sveins-
son, næsti maður í valdastiganum við
Davíð, sýndi því ekki áhuga. Það segir sína
sögu að ekki náðist samstaða um nokkurt
þessara heldur var nýi borgarstjórinn sóttur
út fyrir raðir borgarstjórnarhópsins.
Markús Örn Antonsson skipaður borgar-
stjóri kann því að gjalda þess nú í sínum
flokki að hafa ekki verið lýðræðislega
kjörinn til starfans. Á þessum tveimur
árum sem liðin eru hefur Markúsi ekki
tekist að sameina hópinn undir sinni
forystu og raunar í ýmsum málum orðið að
lúta í lægra haldi með ýmis áhugamál sín
eins og glögglega kom í ljós við afgreiðsl-
una á Aflvakanum við síðustu fjárhags-
áætlun. Alls óvíst verður að telja að
Markús Öm fái ótvírætt umboð í prófkjöri
til að leiða Sjálfstæðisflokkinn til nýrra
kosninga að ári.
I skoðanakönnuninni hér var spurt að
því hvemig Markús Öm Antonsson hefði
staðið sig sem borgarstjóri. Niðurstaðan
var sú að einungis 5,5% töldu að hann
hefði staðið sig illa en 58,5% að hann hefði
staðið sig sæmilega og 36,1% að hann
hefði staðið sig vel. Engu að síður fékk
Markús Öm Antonsson flestar tilnefningar
þegar fólk var spurt hvem það vildi helst fá
sem næsta borgarstjóra eða 48,6%, en
næsti maður á eftir, Davíð Oddsson, fékk
16,7% og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
4,9%. Af öðrum borgarfulltrúum fékk Ámi
Sigfússon 4,2% en aðrir fengu miklu
minna.
Davíð Oddsson kom sér hjá því að hafa
prófkjör fyrir síðustu kosningar og ólfklegt
verður að telja að flokkurinn komist upp
með það næst að efna ekki til prófkjörs né
að kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
borgarstjóm sætti sig við að láta embættis-
manninn Markús Örn leiða flokkinn án
lýðræðislegs umboðs
Verði prófkjör gæti Markús mögulega
beðið ósigur eða fengið ófullnægjandi
umboð. Verði hins vegar ekki af prófkjöri
gæti flokkurinn klofnað og önnur framboð
á hans vegum komið fram. Ljóst er að þrjá
fulltrúa núverandi borgarstjórnarmeiri-
hluta dreymir enn um stólinn. Júlíus
Hafstein, Katrín Fjeldsted og Árni
Sigfússon eru sögð sækjast eftir embættinu
en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mun ekki
fara í slaginn af ýmsum ástæðum.
Markús Örn Antonsson borgarstjóri
neitar því að borgarstjórnarflokkurinn sé
ósamstilltur. „Eg kom inn í júní 1991 og
16
Albert Guðmundsson, hið gamla enfant
terrible Sjálfstœðisfiokksins, gegnir nú stöðu
sendiherra Islands í París en hann lcetur afþví
embœtti í október næstkomandi. Albert er
nefndur til skjalanna sem mögulegur fleygur í
raðir borgarstjórnarflokksins. Hann er nú í
sumarfríi frá sendiherrastarfinu og verður
sjötugur í haust. Albert sagði í samtali við
HEIMSMYND aðfólk vœri byrjað að þrýsta á
sig aðfara aftur út í pólitík.
Davíð Oddsson hafði tjáð mér að það væri
full sátt um skipan mína í embætti
borgarstjóra. Ég leit strax á mig sem
pólitískan leiðtoga þessa hóps sem
formaður borgarstjómarflokks og formað-
ur í borgarráði. Það kom mér því mest á
óvart að það skyldi vera opinber ágrein-
ingur um mig innan flokksins eins og
sumir borgarfulltrúanna lýstu yfir. Og ég
get svo sem sett mig í þeirra spor og skilið
þau að þessu leyti. En hópurinn er afar
samstilltur nú.“
Þessi fullyrðing Markúsar stangast á við
það sem fulltrúar minnihlutans segja en
þau halda því fram að menn eins og Júlíus
Hafstein njóti þess að etja kappi við
Markús Öm og reyna að setja hann niður.
Markús Öm segist hins vegar ekki óttast
samkeppni við næstu kosningar, hvorki af
hálfu kjörinna fulltrúa í borgarstjórn né
annarra. „Það verður að vera prófkjör fyrir
næstu borgarstjórnarkosningar. Ég tel
prófkjör sjálfsagt, eðlilegt og nauðsynlegt
og er hvergi smeykur,“ segir Markús Öm í
samtali við HEIMSMYND.
STÓRA SPURNINGIN
Hið gamla enfant terrible Sjálfstæðis-
flokksins, Albert Guðmundsson, núver-
andi sendiherra og pólitískur útlagi í París,
er þegar nefndur til skjalanna sem
mögulegur fleygur í raðir borgarstjórnar-
flokksins. Án prófkjörs gætu hins vegar
margir aðrir mikils metnir flokksmenn og
HEIMS
MYND