Heimsmynd - 01.05.1993, Blaðsíða 44
smáf réttir
ástarævintýri og er örugglega að segja satt. Því miður, bæta
bresku blöðin við og benda á að Catrina Skepper sé á
konunglegri framabraut og sniðin fyrir safaríkasta starfið sem
er í boði í landinu. Á hertogaynjuskala fær hún toppeinkunn á
öllum sviðum, segja blöðin, og bæta við að ekki sé óhugsandi
að Catrinu snúist hugur því þegar sé ljóst að prinsinn falli fyrir
alþýðustúlkum og gjarnan ljóskum.
En það eru fleiri fiskar í sjónum en umrædd fyrrum
ljósmyndafyrirsæta. Það er aragrúi velættaðra, vel tengdra,
aðlaðandi og greindra ungra og einhleypra kvenna, sem
prinsinn gæti valið úr, segja bresku blöðin og eru vongóð. En
þó eru nokkrar sem eiga betri möguleika en hinar og af þeim
birti The Sunday Times myndir nýverið. Aðalsmerki þessara
kvenna er að þær kjafta ekki frá, segir blaðið. Þær gefa ekki á
sér færi í slúðurblöðum og forðast að stæra sig af tengslum við
kóngafjölskylduna.
Þær sem sækjast eftir stöðu hertogaynjunnar af Jórvík númer
2 hafa lært sína lexíu af hertogaynju númer 1: Þagmælska og
vera vandlát á þá sem veitt eru viðtöl við. Blátt bann er lagt á
The Sun og Hello.
Hefði blessaður prinsinn fengið sínu fram löngu fyrir daga
Fergie væri hann ef til vill hamingjusamlega giftur
klámstjörnunni Koo Stark en sú er nefnilega orðvör, segja
bresku blöðin. Hún er þannig persóna, halda þau áfram, að
hægt er að gera hvað sem er við hana og það heyrist ekki múkk.
Koo Stark er reyndar á listanum yfir vonbrúðirnar en hún er
nýskilin við frímerkjaerfingjann Tim Jeffries.
En það þarf meira til en þagmælsku til að krækja í prinsinn.
Utlitið þarf að vera passandi. Hin unga kona má ekki virka of
hirðulaus né má hún vera of áberandi glæsileg. Þá þarf hún að
kunna að nota hatt. Og hafa verður í huga að Andrew prins er
búinn að fá sig fullsaddan af þjóðbúningapilsum og flatbotna
skóm.
Hið ljósa man sem vill krækja í prinsinn verður einnig að
hafa rétta vonbiðla að baki. Þær sem koma til greina hafa flestar
verið í tygjum við Linley greifa (son Margrétar), ein hefur verið
í tygjum við markgreifann af Milford Haven, fjarskyldan
frænda Mountbattens lávarðar og ein (ótrúlegt!) hefur verið
orðuð við Játvarð, litla bróður Andrews (sem bresk aðalskona
sagði að væri „not the marrying kind“ sem er kurteisisleg
afneitun fyrir hans hönd á kvenkyninu). Að minnsta kosti þrjár
umræddra eru sagðar nánar vinkonur James Gilbey, sem á að
vera trúnaðarvinur Díönu, en hann er höfundur sögunnar um
Díönu sem olli svo miklu uppþoti síðastliðið ár.
Hin verðandi hertogaynja verður að hafa úthald eins og þær
sem koma til greina. Það er alveg ljóst að hinar útvöldu hafa
fundið til köllunar strax í móðurkviði og undirbúið sig alla tíð
síðan fyrir umrætt hlutverk. Þær hafa ekki tekið bónorðum
peningamanna eða aðalsmanna af lægri stigum með minni titla
en prins eða hertogi.
Hin verðandi hertogaynja af Jórvík er líkleg til að vekja upp
þær kenndir hjá fólki, sérstaklega aðlinum, að vera kunnugleg.
Svo virðist sem prinsinn hafi alla tíð þekkt hana eða vitað á
henni deili. Þegar hún fer í sitt fyrsta, stóra viðtal er æskilegt að
hún geti rifjað upp einhverja skondna minningu úr bemsku, til
dæmis þegar Andrew var að stríða henni í átta ára afmælinu
hennar
Og stúlkumar sem gera sér þessar vonir eiga það að öllum
líkindum sammerkt að vera ekkert of rómantískar. Kvöldverður
við kertaljós er ekkert keppikefli. Þær eru alveg til í tuskið við
matarborðið, til dæmis að skvetta skyri. Andrew prins er miklu
hrifnari af hressu kvenfólki sem hann getur átt að vinum en að
hann sækist eftir vinskap við einhverjar gyðjur. Hann er enginn
Talleyrand hvað varðar etíkettur og diplómatískar kröfur. Hann
sækist eftir konu í líkingu við Pamelu Harriman (sjá
HEIMSMYND: 2. tbl. 1993), konu sem skipuleggur
samkvæmislífið fyrir hann, hóar í vinina til að fara á hljómleika
með Elton John og kemur gestum í stuð á síðkvöldum.
Smekkur prinsins sjálfs hlýtur að ráða úrslitum að lokum
burtséð frá öllum væntingum. The Sunday Times bendir á að
prinsinn sé ekki mjög fágaður. Hann hafi svokallaðan
klósetthúmor enda varð hann ástfanginn af Fergie í leik yfir
kvöldverðarborði sem var fólginn í því að kasta mat hvort á
annað og æpa eitthvað um leið. Hin verðandi hertogaynja þarf
að geta hlegið stórkarlalega að bröndurum prinsins um áveitur
í nýlendunum og hún verður helst að hafa metnað til að finna
upp svipaðar skrýtlur.
Það er því ekki útilokað að sá hópur þrengist sem sækist eftir
hlutverki hertogaynjunnar af Jórvík númer 2.
Þorvarður Elíasson (skólastjóri): Þær eru
margar. Sú síðasta var með frúnni í
París í desember síðastliðnum. Við
gengum um, skoðuðum borgina, fórum
út að borða. Það er svo heillandi
andrúmsloft í París, þótt Frakkarnir
sjálfir séu frekar leiðinlegir.
Helga Hilmarsdóttir (kaupmaðwj: Þegar ég hitti manninn
minn í Los Angeles. Hann kom mér gjörsamlega á óvart
og ók mér beint á Beverly Wilscher-hóteliö þar sem
kvikmyndin Pretty Woman var kvikmynduð. Þar vorum
við tvo sólarhringa, sem voru æði.
Vernharður Linnet (tónlistarmaðuij:
Þegar ég sat með konunni minni og við
horfðumst í augu yfir glasi af Gr0n
Tuborg og fiðlutónar Sven Assmusen
hljómuðu á fóninum.
Róman-
tískasta
stundin
ilifi
þínu?
HEIMS
44
MYND